Feykir - 05.12.2001, Blaðsíða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Veitt 11 milljónum til forn-
leifarannsókna á Hólum
Stærsta úthlutunin kristnihá-
tíðarsjóöi að þcssu sinni fara til
rannsókna fornminja á Hól-
um. Úthlutunin fór fram sl.
laugardag og var 48 milljón-
um veitt til átta aðila, en um-
sóknir voru 29. Alls var 18
milljónum úthlutað til verk-
efna á Norðurlandi, þar af 11
milljónum til Bvggðasafns
Skagfirðinga, Hólaskóla og
hjóðminjasafn íslands, til for-
leifarannsókna á Hólum.
Verkefni við Gása og Laufás í
Eyjafirði hlutu einnig stvrki.
Ragnheiður Traustadóttir
fornleifafræðingur hefur verið
ráðinn til að hafa umsjón með
verkefninu á Hólum, en unnið
hefur verið að sagnfræðilega
hluta þess á síöustu misserum
af Arna Daníel Jónssyni.
Ragnheiður sagði i samtali
við Feyki að þessar úthlutanir úr
Kristnihátíðarsjóði ættu væntan-
lega eftir að hafa gífurleg áhrif á
rnnsóknarstarf á sviði fomleifa-
rannsókna á næstu árum en
markmið sjóðsins, sem úthlutað
verður úr 100 milljónum næstu
fimm árin, er að kosta fomleifa-
rannsóknir á helstu kirkju- og
sögustöðum og stuðla að varð-
veislu menningar- og trúararfs
þjóðarinnar. Ragnheiður segir
verkefiiið á Hólum mjög spenn-
andi, en þar er talið að séu um 70
húsarústir í jörðu. Aætlað er að
um 40 manns komi að þessum
rannsóknum þegar mest verður.
Hólar í Hjaltadal var höfúð-
staður Norðurlands um aldir og
geymir í jörðu miklar upplýsing-
ar urn sögu kirkju og þjóðar. Þar
hefúr verið ráðist í takmarkaðar
fornleifa- og sagnfræðilegar
rannsóknir, þrátt fyrir að til séu
ítarlegar fomar ritheimildir um
staðinn. Hólar eru því í fom-
fræðilegu tilliti að miklu leyti ó-
plægður akur, en mjög frjósam-
ur; t.d. eru þar leifar einstakrar
húsaþyrpingai'. Nákvæmar fom-
leifa- og sagnfræðirannsóknir,
sem fara ffam samhliða, geta
væntanlega varpað ljósi á byggð
á Hólum og þýðingu hennar í
tímans rás - og auk þess styrkt
fjölþætt rannsóknarstarf af öðr-
um toga, sem þegar er stundað á
hinu foma fræðasetri.
Meginmarkmið verkefhisins á
Hólum era m.a. kanna efhahag
biskupanna/biskupstólsins og
skipulag „þorpsins”. Rannsaka
lífshætti íslenskra yfirstétta á mis-
munandi tímum og félagslega
samsetningu. Kanna húsagerð,
en hvergi hefur gefist tækifæri til
að grafa upp jafhmargar mis-
munandi húsategundir á einum
stað, kanna tengsl við aðra staði
tengda Hólum, s.s. Hof, Kolkós,
Þingeyrar, Reynistað o.fl.
Byggja upp ferðamennsku á
Hólum á fræðilegum grundvelli,
menningartengda ferðamennsku.
Leggja grann að þverfaglegum
rannsóknum á Hólum og þar
með efla starfsgrandvöll ís-
lenskrar fomleifaffæði til ffam-
búðar með þjálfún stúdenta,
ffæðimanna, samvinnu innlendra
og erlendra vísindamanna.
Lúsíur í 7. bekk Árskóla leiddu nemendur og gesti í nýja
skólann sl. laugardag. Meira uni vígsiuhátíðina á 2. síðu.
Tillögur um framtíð félagsheimila
væntanlegar upp úr áramótum
Búið að opna
skíðasvæðið
Skíðasvæðið í Tindastóli var opnað í
fyrsta sinn á þessum vetri um síðustu helgi og
var þar með fyrsta skíðasvæðið Norðanlands
í notkun. Aðsóknin var þokkaleg þessa fyrstu
daga, um 50 manns hvorn dag, en snjórinn
var í minna lagi og þurfti að fara varlega á
köflum. í gær, þriðjudag, snjóaði talsvert, og
veðurútlit fyrir vikuna er þannig að væntan-
lega er kominn nægur snjór, þannig að óhætt
verður fyrir alla að drífa sig á skíðin. Sam-
kvæmt áætlun veróur skíðasvæðið í Tinda-
stóli opið alla daga vikunnar, nema mánudaga
og fimmtudaga, en upplýsingar er að hafa á
símasvara skíðadeildarinnar og einnig verða
upplýsingar um skiðasvæðið á heimasiðu
Tindastóls á Intemetinu.
„Við þurfúm að fá miklu meiri við-
brögð ffá fólki, meira af hugmyndum
varðandi framtíð félagsheimilanna.
Okkur vantar einmitt liðsinni ibúanna
varðandi lausn á þeim vandamálum
sem tengjast rekstri félagsheimilanna í
Skagafirði”, segir Jón Garðarsson í
Neðraási sem nú gegnir formennsku í
menningar-, íþrótta- og æskulýðsnefhd,
í veikindaforfollum kjörins formanns,
Emu Rósar Hafsteinsdóttur. Jón segir
að ekki verði lengur hjá því komist að
ganga ffá formlegum tillögum varðandi
félagsheimilin og megi búast við þeim
upp úr áramótum. Hann segir að málin
líti þannig út að ekki verði komist hjá
afsetningu einhverra félagsheimila,
annaðhvort sölu eða leigu.
Málefhi félagsheimilanna átta i
Sveitarfélaginu Skagafirði hafa verið
talsvert til umfjöllunar síðustu misserin,
eða síðan Atvinnuþróunarfélagið Flring-
ur gerði skýrslu unt stöðu þeirra. Jón í
Neðraási segir að umfjöllun um þá
skýrslu hafði birst all einhliða, aðallega
varðandi hugsanlega sölu sumra þeirra.
Staðreyndin væri hinsvegar sú að staða
félagsheimilanna í héraðinu væri
þannig að engir fjármunir væru til að
standa að viðhaldi þeirra og skuldastaða
sumra afar slæm, einkanlega Biffastar á
Sauðárkróki. Það væri nokkuð ljóst að
vænlegra væri að reyna að koma sum-
um félagsheimilinum í hendur á aðilum
sem gætu staðið að viðhaldi þeirra og
rekstri, þannig að þau grotni ekki niður.
„Þannig blasa málin við okkur í
nefndinni og við viljum gjaman heyra
meira ffá fólki varðandi þessi mál, sem
við ætlum að vinna uppi á borðinu og
að allir fái að fylgjast með. Svona mál
verða ekki unnin öðru visi”, segir Jón
Garðarsson og víst er að mörgum íbú-
um héraðsins er annt um félagsheimil-
in sín og vilja sjálfsagt koma að málum.
—chiDI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
. VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
bíhverkstæðj
sími: 453 5141
Sæmundorgato Jb 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
jfcBílaviðgerðir O Hjólbarðaviðgerðir
x fíéttingar ^ Sprautun