Feykir - 14.01.2003, Síða 2
2 I'EYKIK 2/2003
Rarik framkvæmir við Krókinn
Starfsmenn RARIK hafa
undanfarnar vikur unnið að
því að grafa niður 3,3 km af
háspennujarðstrengjum
ofan við Sauðárkróksbæ frá
aðveitustöðinni norður fyrir
Sauðárgil. Háspennustaur-
arnir sem hafa staðið þarna
í tugi ára verða fjarlægðir á
næstu vikum.
Að sögn Hauks Asgeirsson-
ar umdæmisstjóra Rariks á
Blönduósi er seinnipart ársins
svo fyrirhugað að fjarlægja það
sem eftir er af tveimur þessara
lína frá Sauðárgili að Steinull-
arverksmiðjunni og rafstöð-
inni. Golfarar við Hlíðarenda
ættu því að geta glaðst yfir því
að „steinullarlínan” sem legið
hefur yfír golfvöllinn mun þá
verða fjarlægð. Skagalina frá
Sauðárgili verður hins vegar
látin standa óbreytt um hríð.
Rarik hefur einnig unnið að
miklum endurbótum í aðveitu-
stöðinni við Sauðárkrók. Stöð-
in hefur verið gerð fjarstýran-
leg og vamar- og öryggisbún-
aður verið endumýjaður. A s.l.
ári var sett upp ný spennistöð
við hesthúsahverfið Flæða-
gerði og unnið er að uppsetn-
ingu nýrrar spennistöðvar á
hafnargarðinum sem m.a. mun
þjóna landtengingu skipa.
Farskól-
innkaupir
nýjan fjar-
fimdabúnað
Farskóli Norðurlands vestra-
miðstöð símenntunar hefúr
gengið til samninga við Ný-
heija um kaup á nýjum fjar-
fundabúnaði sem gerir skól-
anum kleift að tengja allt að 12
staði samtímis á sama fjar-
fúndinn.
I tilkynningu segir Anna
Kristín Gunnarsdóttir, skipu-
lagsstjóri, að nú verði hægt að
bjóða upp á margvíslega
menntun á viðráðanlegu verði
og miðla námi frá öðmm
skólastofúunum.
Þar á meðal er sjúkraliða-
nám sem Fjölbrautaskóli Norð-
urlands vestra heíúr haft á
sínum snæmm undanfarin
misseri og kennt til Hvamms-
tanga, Blönduóss og Siglu-
fjarðar en fyrir lá að skólanum
væri ekki kleift að halda
kennslunni áffam að óbreyttu
vegna kostnaðar við brúar-
tengingu.
Baggaplast
úr sorp-
gámunum
Umhverfisnefhd Skaga-
fjarðar ítrekaði á fúndi sínum
á dögunum að gefnu tilefni,
að stranglega bannað er að
setja heyrúllu- og heybagga-
plast í þá sorpgáma sein sveit-
arfélagið rekur. Bent er á að
heyrúllu- og heybaggaplast
verði sótt heim á bæi um
mánaðamótin janúar-febrúar
og april-maí.
Ekki Feykir
í næstu viku
Feykir kemur ekki út í næstu
viku, sökum þess að ritstjóri
blaðsins er að fara í stutt
vetrarffí.
Næsta blað kemur því út
miðvikudaginn 29. janúar.
Grímur
heiðraður
Grímur Gíslason á
Blönduósi hefúr verið að fá
ýmsar viðurkenningar síðustu
árin, eins og þessi aldna kempa
verðskuldar fyllilega. A ný-
ársdag var Grímur meðal 15
Islendinga sem hlotnaðist sá
heiður að þigga boð Forseta
íslands, Olafs Ragnars
Grímssonar á Bessastöðum, þar
sem íslenska fálkaorðan var
afhent þessum aðilum.
I viðtölum í fjölmiðlum var
Grímur hógvær að vanda, en lét
af fegurð á Álftanesinu og
sagðist gjaman vilja koma á
þennan stað þegar hann skartaði
sínu fegursta að vorlagi. Mikið
náttúmbam Grímur.
Sló út tvisvar
Raftnagnslaust varð á Sauð-
árkróki sl. miðvikudagsmorgun.
Gerðist það tvívegis með
skörrunu millibili á tíunda og
ellefta tímanum, fimm mínútur í
fyrra skiptið og korter í það
seinna.
Ástæður vom minniháttar
fyrir þessari rafmagnsbilun,
vanstilling í spennustöð er leiddi
til þess að rofar slóu út.
Til gamans má geta þess að
vitað er að tveimur spaugilegum
atvikum er áttu sér stað þennan
morgun í þann mund er raf-
magnið fór af. í öðm tilvikinu
var Sigurður Aadnegard starfs-
maður Rarik að sýna Rúnari
Bjömssyni símamanni teikn-
ingu að lagnakerfi á tölvuskjá.
Um leið og Sigurður varpaði
myndinni á skjáinn, hvarf hún
og ljósin einnig. Á sama augna-
blíki vom menn ffá Símoni
Skarphéðinssyni gröfúmanni að
vinna við götulagnir í Öldu-
stígnum. Siguijón Leifsson einn
starfsmanna lagði ffá sér skófl-
una, ofan á kapal í skurðinum.
Um leið dofnuðu götuljósin og
rafmagnið var farið af bænum.
Mönnunum fannst þetta ein-
kennilegt, en hlumir skýrðust
þegar betur var að gáð, og þetta
var þá bara símakapall sem
skóflan hafði verið lögð á.
Eldri borgarar
syngja á Hofsósi
Sönghópur eldri borgara í
Skagafirði býður til söng-
skemmtunar í Höfðaborg
Hofsósi sunnudaginn 19. jan.
kl. 15.
Félag eldri borgara í fyrrum
Hofshreppi verður með kaffi-
sölu. Eldri borgarar vona að
sem flestir sjái sér fært að mæta
og eiga góða stund í
Höfðaborg, segir i tilkynningu
ffá eldri borgumm.
Inn a slaginu!
Börn I2 ára og
yngri mega ekki
vera úti eftir
kl. 20.
Foreldrar vita öllum betur hvað börnum þeirra er fyrir bestu.
I nýlegri könnun kemur i Ijós að um 90% þeirra segjast virða
reglur um útivistartíma barna og unglinga. Er gott til þess að
vita, þar sem fátt er betur til forvarna fallið en samverustundir
foreldra með börnum sínum.
Frá I. sept. til I. maí mega börn 12 ára og yngri ekki vera á almannafæri
eftir kl. 20. Börn á aldrinum 13-16 ára mega ekki vera á almannafæri á
þessu tímabili eftir kl. 22 nema í fylgd með fullorðnum (undanskilið bein
^ heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu).
Ekki þarf annað en að skoða á hvaða tímum sólarhrings börn
byrja að fikta með áfengi og aðra vímugjafa og hvenær alvarlegar
líkamsárásir og óæskileg kynlífsreynsla eiga sér stað.til að skilja
að útivistarreglurnar eru ekki settar fram af neinni tilviljun.
Þess utan er nægur svefn mikilvæg forsenda vellíðunar og
árangurs í skólanum.
Við styójum alla foreldra heilshugar í því að vera samtaka, ákveðnir
og elskulegir og virða reglur um útivistartíma barna sinna.
Verum vel heima í reglunum um útivist barna og unglinga.
oreldrar, lögreglan og sveitarfélög - samtaka í stuðningi við börn og unglinga.
Ssunliilia
JL. ói íáð frcttablað á Norðurla ndi \ estra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftai’verð 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.