Feykir


Feykir - 12.03.2003, Side 1

Feykir - 12.03.2003, Side 1
raf s já hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI Byggðafráð Skagafjarðar Starfshópur um byggingarmálin Á fundi byggðarráðs í síð- ustu viku lagði Gisli Gunnars- son fonnaður ráðsins Ifam til- lögu þess efnis að skipaður yrði starfshópur vegna bygg- ingaframkvæmda í Skagafirði, en ástæða tillögunnar er sú lægð sem verið hefúr í bygg- ingarffamkvæmdum að und- anfornu, en vonandi er eitt- hvað að lagast eins og vikið var að í síðasta Feyki. For- manni skipulags- og byggingar- nefndar Skagafjarðar er ætlað að leiða starfshópinn, en í hon- um verða aðilar ffá sveitarfé- laginu og byggingarfyrirtækj- um_í Skagafirði. I greinargerð með tillög- unni segir að nokkur lægð sé í byggingaffamkvæmdum um þessar mundir og komi sam- dráttur á því sviði niður á at- vinnulíff i Skagafirði. Engu að síður hafi ýmsar hugmyndir verið til umræðu varðandi byggingarframkvæmdir og teikningar eru til nú þegar af nokkrum byggingum, svo sem fjölbýlishúsum, heimavist FNV, nemendagörðum á Hól- um, skrifstofuhúsnæði o.fl. Starfshópurinn á að leita raun- hæffa leiða til þess að efla byggingariðnaðinn í Skaga- firði og leita samstarfs þeirra aðila sem að málum kunna að koma hveiju sinni. Markaðs- og þróunarsvið Skagaflarðar Tæplega þrj átíu umsækj endur Nýlega rann út umsóknar- frestur um stöðu sviðsstjóra markaðs- og þróunarsviðs hjá sveitarfélaginu Skagafirði. 28 umsóknir bárust, en ráðningu var frestað á síðasta fundi byggðarráðs og sveitarstjómar. Umsækjendur um stöðuna em effirtaldir: Atli V. Hjartar- son, Ágúst Þór Bragason, Ámi Ragnarsson, Áskell Heiðar Ás- geirsson, Bjöm Ami Olafsson, Bjöm Baldursson, Bjöm Stein- ar Pálmason, Einar Hannesson, Eymundur Gunnarsson, Gylfí Þórisson, Helgi Rafn Gunnars- son, Hörður Gunnarsson, Ind- riði Þröstur Gunnlaugsson, Jó- hannes E. Levy, Kristbjörg Marta Jónsdóttir, Kristján Ei- riksson, Magnús Gunnarsson, Maria Dröfn Sigurðardóttir, Matthías Pálmi Imsland, Ólafúr Tryggvi Brynjólfsson, Sigríður Helga Sverrisdóttir, Sigurður H. Engilbertsson, Sigurður Sig- urðsson, Steingrímur Ólafsson, Steinn Kárason, Stella Hrönn Jóhannsdóttir, Þorsteinn T. Broddason og Þór K. Laxness. Nýja flæöilínan í Fiskiðjunni á að skapa helmings vinnusparnað. Heims-tæknivæðing í frystihúsi Fiskiðjunnar Þessa dagana er verið að pmfúkeyra nýja flæðilínu í ffystihúsi Fiskiðjunnar Skag- ftrðings á Sauðárkróki. Um mikla tæknibyltingu að ræða, sem hugvitsmaðurinn Ingólf- ur Ámason hjá Skaganum á Akranesi hefúr hannað og er frumkvöðull að. Tækninýj- ungin felst í því að stúlkan á bandinu þarf hvorki að ná í flakið né leggja það ffá sér og er þar um helmings vinnu- spamað að ræða. Það er Skaginn, hugbúnað- ar- og tæknifyrirtæki sem stofnað var upp úr því þekkta fyrirtæki Þorgeiri og Ellert, sem ffamleiðir flæðilínuna, og Ingólfúr Ámason helsti hönn- uður og tæknimaður fyrirtæk- isins fúllyrðir að þetta sé sú fyrsta sinnar tegundar í heim- inum, og verður hún kynnt á sjávarútvegssýningu í Japan á næstu dögum. Ingólfúr segir að menn hafi lengi verið að glíma við það að fá reglulegt flæði á línuna, það er að bæta meðferð hrá- efnisins þannig að stúlkan þurfí sem minnst að með- höndla það. Það var fyrr í vet- ur, Ingólfúr segir að það haft verið þegar Man. Utd. vann Arsenal í deildinni, sem lausn- in lá allt í einu fyrir. Og lausn- in virðist í sjálfú sér einfold. Skammtari telur inn á Iínuna jafnmörg flök og stúlkumar em, sú sem er innst á bandinu tekur innsta flakið og þannig koll að kolli, það er síðan still- ingaratriði hve mikinn tíma stúlkumar fá í snyrtinguna, og það virtist ganga mjög vel upp úr hádeginu sl. föstudag, en línan var ræst eftir morgun- kaffið. Ljóst er að um mikla vinnuhagræðingu er að ræða, og þeir Ingólfúr Ámason og Jón E. Friðriksson fram- kvæmdastjóri FISK vom sam- mála um að betri meðhöndlun hráefnis þýði aukin gæði, enda veiti kannski ekki af að vega á móti háu gengi krón- unnar um þessar mundir. Tómas Árdal verkstjóri hjá FISK segir að gmnnurinn að því að þessi mikla bylting skili sér, sé ný og fúllkomin Bader flatningsvél sem skili flökun- um mjög góðum í snyrting- una. —KTeH£»í! chiDI— Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN bílaverkstæði ° 'v _____________________ Æ JLJM.M-JM. sími: 95-35141 Sæmundargato Ib 550 Sauðárkrókur Fax: 36140 ^Bflaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir Réttingar Sprautun

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.