Feykir


Feykir - 12.03.2003, Síða 2

Feykir - 12.03.2003, Síða 2
2 FEYKIR 9/2003 Húnaþlng vestra með veiði- réttinn í Syðra-Kvíslarvatni Húnaþing vestra er eigandi veiðiréttar í Syðra-Kvíslar- vatni á Núpsheiði í Miðfirði að undanskildum veiðirétti þeirn sem nú fylgir Efra-Núpi i Mið- firði en áður fylgdi jörðinni Þverá samkvæmt landa- merkjabréfi fyrir Þverá frá 31. maí 1887. Þannig hljóðar dómsorð í nýuppkveðnum dómi Héraðsdóms Norður- lands vestra en deilt hefúr ver- ið um veiðirétt í Syðra-Kvísl- arvatni á Amarvatnsheiði og til að fá úr því skorið höfðaði Húnaþing vestra mál gegn eig- endum Efri-Núps, Sigurrós K. Indriðadóttur og Ömólfi Björgvinssyni, sem búsett em í Mosfellsbæ. I niðurstöðum dómsins seg- ir að sýnileg gögn, svo sem sölusamningar varðandi Efri- Núp, lýsingar á hlunnindum jarðarinnar og skráning í fast- eignamat bendi ekki til þess að veiðiréttur Núpsheiðar í Syðra-Kvíslarvatni hafi verið lagður til Efri-Núps. Steíhda hafi ekki tekist að sanna að það hafi verið gert og verður því ekki fallist á með honum að hann sé eigandi veiðiréttarins af þessum sökum. Skriflegar yfirlýsingar og framburður vitna þess efnis að alltaf hafi verið farið með veiðiréttinn í syðra vatninu sem eign Efri- Núps breyta þessu ekki. Sala Núpsheiðar, sem er í eigu Húnaþings vestra, átti sér stað á árinu 1896 en Hjörtur Líndal seldi jörðina á árinu 1919 og þá fyrst gat hefðartími byijað að líða enda út frá því gengið að ósannað sé að hann hafi skilið veiðiréttinn frá við söluna. Samkvæmt 8. gr. laga nr. 46/1905 um hefð getur hefð á ósýnilegum ítökum ein- göngu unnist með 40 ára óslit- inni notkun og öðrum skilyrð- um eignarhefðar uppfylltum. Er því útilokað að fúllur hefð- artími hafi verið liðinn þegar lög nr. 15/1923 tóku gildi og verður því ekki fallist á með stefhda að hann hafi eignast veiðiréttindin fyrir hefð. Með hliðsjón af úrslitum málsins og málavöxtum öllum þykir rétt að hvor aðili beri sinn kostnað af málinu. Máls- kostnaður fellur niður. Anna Sigga og Fríkirkju- kórinn í Sauðárkrókskirkju Senn líður að næstu tónleik- um Tónlistarfélags Skaga- fjarðar. Laugardaginn 15. mars heimsækir okkur Fríkirkjukór- inn í Reykjavík ásamt Önnu Sigriði Helgadóttur og Carli Möller. Þau halda tónleikana kl. 17 á laugardaginn. Önnu Siggu þarf vart að kynna hér um slóðir en hún starfaði sem söngkennari við tónlistarskólann í tvö ár, 1994- 1995, og hefúr haldið tónleika nokkmm sinnum í Skagafirði sem alltaf hafa verið vel sóttir hvort sem hún kemur ein eða með öðmm. Hún hefúr stjóm- að Frikirkjukómum undanfar- in tvö ár ásamt Carli Möller pí- anó- og orgelleikara. Það er alltaf von á líflegum tónleikum þegar Anna Sigga er annarsvegar og verður ör- ugglega engin undantekning á því nú. Með í för verða nokkr- ir vel valdir hljóðfæraleikarar og munu þau flytja blandaða tónlist að hætti Önnu Siggu. Þar er að finna m.a. gömul dægurlög, gospel og negrasálma og fleira. Anna Sigga mun taka lagið eins og henni einni er lagið. Þetta em tónleikar fyrir fólk á öllum aldri sem engin ætti að missa af. Miðaverð er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir félaga í Tónlist- arfélaginu. Hægt er að panta miða í síma 862 6711 og 861 2610. Athugasemd fráFeyki Svolítil mistök hafa orðið í umbroti í síðustu Feykis- blöðurn. í síðasta blaði féll t.d. niður höfundannerking á skemmtilegri grein um ískappreiðar á Holtstjöm. sem haldnar vom til minningar um Dúdda á Skörðugili. Greinina skrifaði Ami Gunnarsson frá Flatatungu. Jafntefli I biskups- kjöri tíl Hóla Svo ólíklega vildi til þegar seinni umferð í kjöri vígslu- biskups fór fram að báðir frambjóðendumir, séra Jón Aðalsteinn Baldvinsson og séra Kristján Valur Ingólfs- son, hlutu jafnmörg atkvæði, en talning fór ffarn í síðustu viku. Báðir hlutu þeir 30 at- kvæði, en það vom 62 sem kusu af 63 sem vom á kjör- skrá. Tveir skiluðu auðu. Það mun koma í hlut Sól- veigar Pétursdóttur kirkju- málaráðherra að úrskurða hvor umsækjendanna verði vígslubiskup, en Kristján Val- ur hlaut nokkuð fleiri atkvæði þegar kosið var fyrra sinnið. Þá vom einnig meðal um- sækjenda prófastamir Dalla Þórðardóttir á Miklabæ er hlaut 14 atkvæði og séra Guðni Þór Ólafsson á Mel- stað með 4 atkvæði. Bjarni Maronsson fær viðurkenningu fyrir aðlögunarhæfni frá þeim Stefáni Hrólfssyni og Gísla Konráðssyni. Hjálmar Guðjónsson á Tunguhálsi að byrja að fara upp í einu laganna. Sigurði Hansen og Steinþóri í Kýrhoiti lýst ekki á að fylgja honum eftir á hæstu hæðir söngsins. Ingimar Ingimarsson les texta viðurkenningar til handa Sigurði Frostasyni loftsmala og Stefáni á Keldulandi er greinilega skemmt. Gestir streyma til aðalfundar gagnamanna. Það er Gísli Frostason hinn loftsmalinn sem afgreiðir aðgöngumiðana. Kemur út á miðvikudögutn. Útgefandi Feykir hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir @ krokur. is. og feykir@simnet.is Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. Áskriftarverð 210 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & Svart hf.

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.