Feykir - 12.03.2003, Síða 5
9/2003 FEYKIR 5
Þorramót hjá
Grókufólkinu
íþróttafélagið Gróska í
Skagafirði stendur fyrir
æfmgum í boccia einu sinni í
viku í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki. Gróskufólk tekur
þátt í nokkrum mótum að
vetrinum, en þar standa hæst
íslandsmótið og Hængsmótið
á Akureyri, sem ávalt er haldið
í maíbyqun og er núorðið hluti
af íslandsmótinu. Gróska
stendur árlega fyrir eigin móti,
það er svokallað þorramót og
bíður þá jafnan til sín, kiwanis-
mönnum úr Drangey, sem hafa
reynst Gróskufólki mjög hjálp-
legir um tíðina, og sveitar-
stjóminni. Þorramót Grósku
var haldið 22. febrúar sl.
Að þessu sinni var
sveitarstjóm Skagafjarðar for-
fölluð, þar sem að þessa helgi
stóð yfir námskeið fyrir
sveitarstjómarmenn, sem þeir
urðu að sækja og þurfú því að
neita sér um leik á
Gróskumótinu.
Engu að síður var líflegt á
þorramótinu. Eins og áður var
keppt í tveggja manna sveitum
og vom 19 sveitir skráðar til
leiks. Þær vom skipaðar
Gróskufólki bæði yngri og
eldri, en allmargir eldri borg-
arar stunda bocciaæfmgamar.
Þá sendu kiwanismenn í
Drangey sveitir í keppnina og
einnig mætti til leiks sveit frá
heimilinu á Egilsá.
Keppnin var hin tvísýnasta
og stóð þónokkuð fram eftir
degi. Að lokum varð það a-
sveit Grósku sem stóð uppi
sem sigurvegari, en hana
skipuðu Ómar Ólafsson og Jón
Sigfús Bæringsson. Hlutu þeir
farandbikarinn sem Kiwanis-
klúbburinn Drangey gaf, en
vegleg verðlaun em á
þorramótinu.
Hitann og þungan að starfí
Gróksu bera þau uppi hjónin á
Mel, Salmína Tavsen og
Steinn Sigurðsson, og kemur
Kiwanismenn í Drangey hafa oft aðstoðað Gróskufólkið, en að þessu sinni voru þeir meðal
keppenda á mótinu: Agúst Kárason, Ragnar Guðmundsson, Pálmi Ragnarsson og Guð-
mundur Brynjar Ólafsson.
það sér oft vel þegar þarf að
ferðast á mót, að Steinn er
lipur bílstjóri. Venjulegast em
það um 15 manns sem mæta á
bocciaæfingamar í íþróttahús-
inu, en virkir meðlimir í
Grósku em á þriðja tug. Þá
hafa nemar úr fjölbrautinni
verið duglegir að aðstoða við
æfmgamar í vetur.
Aðspurð segir Salmína,
sem er formaður Grósku, að
það séu ýmsir sem styðji við
bakið á félaginu, stykir fáist ffá
sveitarfélaginu og fleiri
aðilum. Aðalfjáröflunin sé þó
sala á jólakortum og þá hafí
nokkrar tekjur fengist af
merkjasölu, s.s. á kosninga-
dag.
Þá má að endingu geta þess
að einn liðsmaður Grósku
Aðalheiður Bára Steinsdóttir
var valin af ÍF til þátttöku á
norræna meistaramótið í Sví-
þjóð á liðnu vori. Þar keppti
Bára í sveit ásamt Haraldi
Brynjari Sigurðssyni sem
ættaður er frá Skagaströnd.
Lentu þau í þriðja sæti, en
Aðalheiður Bára hlaut einnig
bronsverðlaun í einstak-
lingskeppninni.
Jón Sigfús Bæringsson og Ómar Ólafsson voru í
sigursveitinni á mótinu.
Þátttakendur voru á öllum aldri og nutu sín mjög vel í
skemmtilegum leik.