Feykir - 12.03.2003, Qupperneq 7
9/2003 FEYKIR 7
Stofnað félag ungra vinstri
grænna í SkagaGrði
Stofiifundur Ungliðahreyf-
ingar Vinstri Grænna í
Skagafirði var haldinn 27.
febrúar sl. Um 30 manns tóku
þátt í að mynda hreyfmguna.
Rúnar Páll Stefánsson, sem var
í undirbúningshópi að stofnun
samtakanna, sagði við setningu
fiindarins að Ung Vinstri Græn
í Skagafirði væru vettvangur
ungs fólks sem vill hafa áhrif á
daglega umræðu og mótun
þjóðfélagsins til framtíðar.
Snúa þyrfti vöm í sókn í
byggðamálum og móta grund-
völl fyrir blómlegu og fjöl-
breyttu atvinnulífi á lands-
byggðinni, þar sem menntunin
væri homsteinn byggðar í
landinu.
Gestir fundarins vom
Katrín Jakobsdóttir formaður
Ungra Vinstri Grænna og Ami
Steinar Jóhannsson alþingis-
maður VG. Þau sátu fyrir
svömm og vom umræður líf-
legar. Samþykktar vom tvær
ályktanir á fiindinum, önnur
gegn innrás í írak og hin þar
sem skorað er á mennta-
málaráðherra að afturkalla
samræmd stúdentspróf í
framhaldsskólum:
Alyktun stofnfundar
Ungra Vinstri Grænna í
Skagafirði um innrás í Irak:
Stofnfundur Ungra Vinstri
Grænna í Skagafirði lýsir yfir
andstöðu sinni við áform um
innrás í Irak og krefst þess að
stjómvöld beiti sér gegn
slíkum hemaðaraðgerðum.
Arás á Irak og íröksku þjóðina
gæti haft varanleg áhrif á fríð
og friðarumleitanir í
heiminum. Ef að vestrænar
þjóðir með Bandaríkin í broddi
fylkingar ráðast á íraka, mun
hinn vestræni heimur fyrst og
ffemst uppskera hatur i sinn
garð í Mið-Austurlöndum.
Slíkt hatur getur orðið
skæðasta vopnið í höndum
öfgafullra hryðjuverkamanna,
eins og þeirra sem réðust á
Bandaríkin þann 11. september
2001. Island er vopnlaus og
fríðelskandi þjóð, og á að vera
það áffam. Það er skýr krafa
fiindarins að íslensk stjómvöld
heimili hvorki afhot af aðstöðu
á íslensku yfirráðasvæði né að
um verði að ræða neins konar
þátttöku af íslands hálfu ef til
hemaðs gegn Irak kemur.
Jafríffamt er það afdráttarlaus
krafa fundarins að ef til stríðs
kemur, þá lýsi ríkisstjóm
Islands yfir algjöru hlutleysi.
Alyktun stofnfundar
Ungra Vinstri Grænna í
Skagafirði um afturköllnn
samræmdra stúdentsprófa í
framhaldsskólum:
Stofhfundur Ungra Vinstri
Grænna í Skagafirði skorar á
menntamálaráðherra að aftur-
kalla ákvörðun sína um sam-
ræmd stúdentspróf í fram-
haldsskólum landsins. Sam-
ræmd stúdentspróf vega að
sjálfstæði ffamhaldsskólanna í
landinu og skerða svigrúm
þeirra til að vera með mismun-
andi áherslur hver á sínu sviði.
Samræmd stúdentspróf bitna á
nemendum, því áhersla skólan-
na mun í auknum mæli beinast
að þeim greinum sem prófað er
í og möguleikar framhalds-
skólanna í landinu til fjöl-
breytts námsffamboðs skerðist.
Tímasetning prófanna er ein-
nig mjög óhentug, sérstaklega
fyrir áfangaskólana. Fundurinn
mótmælir einnig ffamkvæmd
prófanna, þau hafa lítið verið
kynnt nemendum og skella því
á nokkuð fyrirvaralaust fyrirþá
nemendur sem eiga að þreyta
þessi próf í byrjun árs 2004.
Hvað varðar samræmt mat á
nemendum til inntöku í
háskóla telur fúndurinn æski-
legra að háskólamir annist slíkt
mat sjálfir fyrir viðkomandi
deildir telji þeir það nauðsyn-
legt. Við teljum ennffemur að
Qármunir þeir sem færu í
ffamkvæmd samræmdra stúd-
entsprófa yrði betur varið í
skólakerfinu sjálfu.
Eftirtaldir voru kosnir í
stjóm Ungra Vinstri Grænna í
Skagafirði: Bára Hlynsdóttir
Tunguhálsi I, Grétar Þór Stein-
þórsson Sauðárkróki, Inga
Dóra Ingimarsdóttir Sauðár-
króki, Rúnar Páll Stefánsson
Grindum og Steinunn Rósa
Guðmundsdóttir Sauðárkróki.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Húsbíll til sölu. Lítill Fiat
Dueate vel innréttaður með
öllu, ekinn 140.000. Ásett verð
1450.000. Upplýsingar í síma
860 0041 og 453 5187.
Kvígur til sölu, burðartími í
apríl. Upplýsingar gefur Jón í
síma 453 8258 á hádeginu og á
kvöldin.
Þrír hvolpar fást gefins.
Upplýsingari síma467 1054.
Spilavist!
Spilakvöld í Höfðaborg á
Hofsósim fimmtudaginn 13.
mars kl. 21,00. Verðlaun og
kaffiveitingar. Mætum eldhress
að vanda. Allir velkomnir!
Félag eldri borgara Hofsósi.
Húsnæði!
Til sölu fimm herbergja 133
fm. íbúð á efri hæð Skólasatíg
1 Sauðárkróki. Upplýsingará
kvöldin í síma 453 6394.
Oska eftir litlu húsi til leigu
á Sauðárkróki eða í næsta
nágrenni ffá 1. apríl 2003.
Upplýsingar í síma 849 6700.
Herbergi til leigu niðri í bæ.
Upplýsingar í síma 453 5774
og 895 5774.
Auglýsing í Feyki
ber árangur!
Nú er það úrslitakeppnin!
Tindastóll - Haukar
í Sfldnu ki. 19,15
nk. sunnudagskvöld.
Komið og hvetjið Tindastól til sigurs!
Munið skrifstofu Krabbameinsfélagsins Aðalgötu lOb.
Nýtísku fjós til sýnis
á Brúsastöðum
í lok febrúarmánaðar var til
sýnis nýtískulegt fjós í Vatnsdal.
Hátt í 300 manns notuðu tæk-
ifærið að skoða nýtt fjós á
bænum Brúsastöðum í Vatnsdal
þegar hjónin Sigurður Ólafsson
og Gróa Margrét Lámsdóttir
ábúendur þar vom með „opið
hús”. Nýja fjósið er 520 ferme-
tra límtréshús klætt með
yleiningum og er útbúið allri
nýjustu tækni.
Fjósið var byggt á liðnu
sumri og er það fyrir 58 kýr og
uppfýllir ströngustu kröfúr um
mjólkurframleiðslu. Kýmar
ganga lausar um básana og á
hálsi þeirra er tölvukubbur sem
forritaður er með tölvu.
Tölvukubburinn geymir
upplýsingar um hve mikill
fóðurbæti viðkomandi kýr á að
fá og ýmsar aðrar upplýsingar
sem máli skipta fyrir velferð
kýrinnar. Kýmar fara síðan sjál-
far á ákveðinn bás í fjósinu þar
sem tölvulesari les upplýsingar
kubbsins og skammtar fóðurbæti
eftir því hvaða kýr á í hlut. Hægt
er að mjólka 10 kýr í einu en
Sigurður segir að þau hjónin séu
40-60 mín að mjólka þær 42 kýr
sem nú em mjólkandi.
Heim. Húnahomið..
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir gíróseðlunum
fyrir áskriftargjöldunum.
Skilvfsi ykkar er gaindvöllurinn
fyrir útgáfu blaðsins.
Opið þriðjudaga frá kl 11-13 og fimmtudaga frá kl
17-19. Sími 453 6030 og 863 6039.
ÍWig Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Sérfræðikomur í mars og apríl:
Tímapantanir í síma 455-4000
17.03 - 21.03 Haraldur Hauksson, æðaskurðlæknir
24.03 - 28.03 Hafsteinn Guðjónsson, þvagfæraskurðlæknir
31.03 - 04.04 Edward Kiernan, kvensjúkdómalæknir
07.04 - 11.04 Bjarki Karlsson, bæklunarskurðlæknir
28.04 - 02.05 Shree Datye, skurðlæknir