Feykir


Feykir - 10.09.2003, Blaðsíða 5

Feykir - 10.09.2003, Blaðsíða 5
30/2003 FEYKIR 5 Vandamál sem getur valdið veldis vaxandi áhrifum Sigurður Sigurðarson ráðgjafi Invest kynnir skýrslu sína um aldursskiptingu í Nv á þingi SSNV á Skagaströnd. Sigurður Sigurðarson ráð- gjafí hjá Iðnþróunarfélagi Norðurlands vestra lauk í sum- ar við skýrslu um þróun aldurs- skiptingar á Norðurlandi vestra frá árinu 1992 til síðasta árs, 2002. Þróunin er svipuð á öll- um svæðum landshlutans. Unga fólkinu hefiir fækkað og hlutfallslega ljölgar gamla fólkinu, þó því sé samt ekki að fjölga á svæðinu. Ibúum Norð- urlands vestra hefur fækkað um 11% ffá 1992. Svo virðist sem nokkurs konar „kynslóða- bil” sé að myndast á svæðinu og raunar víðast um lands- byggðina. Skýringin er sú að það vantar unga fólkið. „Unga fólkið fór” er yfírskrift skýrslu Sigurðar, enda er eins og áður segir fækkunin mest í yngri aldurshópunum, þeim sem telj- ast til hinnar virku fjölskyldu- myndar, þ.e. yngri en 45 ára. „Þessi skýrsla bendir til þess að fækkun ungs fólks og hækk- andi meðalaldur á Norðurlandi vestra sé vandamál sem getur valdið veldisvaxandi vanda innan tiltölulegra fárra ára. Við vandanum þarf að bregðast með ákveðnum og samhæfð- um aðgerðum”, segir höfúndur í niðurstöðum sínum. I inngangi skýrslunar segir m.a. „Hér er hugtakið vinnu- markaður notað um fólk á aldr- inum 20-64 ára. Þessu fólki hefúr fækkað um 3,5% á síð- ustu ellefú ámm. Visir hefúr myndast að „karlaveldi” á Norðurlandi vestra. Karlar em 1,8% fleiri og í flestum sveitar- félögum er kynjamunur miklu meiri. Tólf sveitarfélög em á Norðurlandi vestra þar af sjö í dreifbýli. Mjög misjafnt er hvemig fólksfækkunin kemur niður á einstökum sveitarfélög- um. Sé landshlutinn skoðaður sem ein heild er ljóst að fækk- unin er mikil og bitnar það að einu eða öðm leyti á öllum sveitarfélögum. Er þörf fyrir menntun nógu vel sinnt? Einhver ástæða er fyrir því að ungu fólki fækkar á Norður- landi vestra. Tvennt ætti að skipta máli fyrir þróun byggðar. * Ákvarðanir fjölskyldunn- arum búsetu * Ákvarðanir fólks á vinnu- markaði um búsetu Forsendumar sem liggja til grundvallar ákvörðunarinnar skilja á milli þessara tveggja hópa. Þessir tveir hópar skarast að sjálfsögðu en þar sem fækk- unin hefúr eingöngu verið meðal þeirra sem em yngri en 45 ára kann það að benda til að mennun og atvinna skipti hér mestu. Það leiðir hugann að því hvort þörfúm fyrir menntun á Norðurlandi vestra sé nógu vel sinnt? Einnig má spyija hvort atvinnulíf sé svo einhæft í landshlutanum að ungt fólk flytjist í burtu eða kjósi að koma ekki aftur eftir að hafa menntað sig? Upplýsingar um aldurs- skiptingu geta gagnast sveitar- stjómum og rikisvaldi við að hanna byggðaáætlanir sem taki mið af aðstæðum. Gera má ráð fyrir að ffamhaldsskóli á Sauð- árkróki geti t.d. skýrt minni fækkun í sveitarfélaginu Skagafirði en annars staðar. Hugsanlega mun nýr vegur yfir Þverárfjall draga úr fólksfækk- un á Blönduósi og Skagaströnd þar sem ungt fólk getur brátt stundað framhaldsskólann á Sauðárkróki án þess að þurfa að flytjast af heimilum sínum. Lítill árangur í inngangi segir að mark- miðið með ritinu sé að skoða aldurssamsetningu í landshlut- anum á árunum 1992 og 2002 og finna út hvaða breytingar hafa orðið á svæðinu sem og einstökum sveitarfélögum. Niðurstöðuna má nota til að skilja hvemig þau eru saman sett en slíkt getur hjálpað við að móta staðbundna byggðastefnu sem hugsanlega getur haft áhrif á þróun búsetu. Sífelld fækkun íbúa í sveit- arfélögum utan suðvestur- homsins hefúr hafl í för með sér alvarleg vandmál fyrir þjóðfélagið. Reynt hefúr verið að draga úr þessari byggða- röskun án mikils árangurs. Fækkunina má rekja til marg- víslegra þjóðfélagsbreytinga sem hafa ýmist leitt til ákveðins vilja fólks til að flytja á höfúð- borgarsvæðið eða þvingaðs flutnings vegna aðstæðna þar sem fólk hefúr ekki átt annan kost en að flytja. Ástæðumar geta verið margvíslegar, t.d. at- vinnumál, skortur á þjónustu, þörf á menntun sem ekki er til á staðnum, menntun bama, ein- angrun o. s. frv. Yngra fólk er ekki eins bundið átthögum sín- um, allir flutningar em auð- veldari, ekki bara um ísland heldur til annarra landa. Röskun á rótgrónu búsetu- mynstri í kringum landið hefúr valdið miklum erfiðleikum fyr- ir einstaklinga og fyrirtæki sem eftir sitja og sveitarfélögin. Tækni- og upplýsingabyltingin hefur valdið gríðarlegum breytingum á atvinnuháttum, ffamleiðsluhættir hafa breyst og þá sérstaklega í ffumfram- leiðslunni, landbúnaði og fisk- veiðum, og nýjar atvinnugrein- ar hafa orðið til. Nú afkasta fyr- irtæki margfalt meim en áður með margfalt færra starfsfólki. Afleiðingar tækni- og upplýs- ingabyltingarinnar hafa verið margvíslegar á þjóðfélagsgerð, lífshætti, viðhorf og fleira. All- ar þessar breytingar hafa stuðl- að að brottflutningi fólks ffá landsbyggðinni ýmist beint eða óbeint vegna þess að þar átti þessi bylting litlar rætur fyrr en á allra síðustu ámm og þá í mjög litlum mæli. Framhald á 6. síðu. an sólarhringinn, og ég er ekki órólegur að fara heim að kveldi.” - Þú varst nú heppinn að það skyldi einmitt nýbúið að setja bundið slitlag á Krist- jánsklaufina þegar þú opnaðir á þessum nýja stað? „Já ég var ánægður með það. Við tókum höndum sam- an að þetta yrði oíuborið, enda hefði ég ekki getað farið þama inn með fyrirtækið í þeim ryk- mekki sem ofl var héma, enda með viðkvæman búnað eins og t.d. ffamköllunarvélina.” - Ertu bjartsýnn á að Gamli bærinn lifhi við frekar en nú er, eða er allt í lagi með Gamla bæinn? „Gamli bærinn er að færast nær þeim bæ sem ég man eft- ir, til að mynda þá er kominn miklu meiri umferð en ég bjóst við í Gamla bæinn. Ég fann stórlega fyrir því núna í sumar að Þverárfjallið er mik- ið notað og umferð þannig að aukast í gegnum bæinn. Svo er ég sannfæður um það að við nýjan Strandveg og það sem búið er að gera við gömlu fjör- una, á eftir að aukast mikið umferð um Gamla bæinn. Gamli bærinn verður allur byggilegur eftir að þessar göt- ur verða komnar í ffamtiðar- horf’, segir Brynjar Pálsson. SLÁTURMATUR á frábæru verði! 179-« Blóð 2,5 ltr. 389,- 379i-M 99-* I^ahjorta 199'- 659,- Gervikeppir 5 í pk.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.