Feykir - 08.10.2003, Síða 2
2 FEYKIR 34/2003
Danimir í heim-
sókn í Árskóla
Á síðustu árum hafa átt sér
stað gagnkvæm samskipti milli
eldri bekkja Árskóla og Hastr-
up-skólans í Koge vinabæjar
Sauðárkróks. Hópur danskra
krakka kom í heimsókn til
Sauðárkróks í síðustu viku og
gistu á heimilum jafhaldra sinna
í Árskóla.Danski hópurinn kom
til Sauðárkróks á mánudag og
hófst formleg dagská heim-
sóknarinnar með kvöldverði í
félagsmiðstöðinni Friði.
Nemendur 10. bekkjar Ár-
skóla tóku virkan þátt í móttöku
Dananna, m.a. með því að elda
kvöldverðinn sem í boði var. Þá
var farið í Rafting á Jökulsá
vestari og gist á Bakkaflöt, auk
ýmsa atriða sem á dagskránni
var í þessari heimsóknarviku
dönsku nemendanna í Árskóla.
Danimir héldu síðan til síns
heima á laugardag að lokinni
viðburðarríkri og skemmtilegri
viku í Skagaftrði í boði Árskóla.
Gróskumikið sumar að baki
Enginn vaft virðist á að árstíðaskipti
eiga sér nú stað. Við sjáum að baki
löngu og gróskumiklu sumri, líklega því
besta sem komið hefur frá því fyrir
miðja síðustu öld, eða það telja vísinda-
menn á veðurstofúnni og mun það
stemma ágætlega við það sem elstu
menn muna. Og ekki nóg með það að
síðasta sumar hafi verið með eindæm-
um gott, heldur allt síðasta ár.
Það má einnig segja að árferðið í at-
vinnulífinu hafi verið með besta móti.
Atvinnuástand hefúr verið með því
betra á seinni ámm, en hinsvegar em
erfið rekstrarskilyrði í einstökum grein-
um sjávarútvegs- og landbúnaðar, svo
sem rækjuiðnaði og sauðfjárrækt. Aftur
á móti er líklegt að aðrar greinar hafi
notið góðærisins, svo sem ferðaþjónust-
an, og gefur fjölgun gistinátta, sem
langmest varð á Norðurlandi vestra
fyrsta ársfjórðunginn, tilefni til að ætla
að þessi þjónustugrein hafi átt mjög gott
sumar. - Og ekki hefur veðursældin hér
nyðra dregið úr því að innlendir ferða-
menn flykktust inn á svæðið. Vitað er
að fjöldi erlendra ferðamanna var ó-
venjumikill og sannar það hin mikla
fjölgun gesta sem varð í Byggðasafuið í
Glaumbæ liðið sumar.
Sem kunnugt er, þá er ferðaþjónust-
an sú atvinnugrein sem næstmestum
tekjum skilar orðið í þjóðarbúið, og hafa
tekjur af greininni farið vaxandi á síð-
ustu árum. Hér á svæðinu virðist ýmis-
legt jákvætt að gerast í uppbyggingu
ferðaþjónustunnar. í Húnaþingi vestra
hafa margir aðilar verið mjög duglegir
að vinna í þessum málum og eru stöðugt
að sækja í sig veðrið við að nýta hin
ýmsu tækifæri til atvinnusköpunar.
Blönduós og nágrannabyggð hefur
einnig vakið athygli hvað þetta varðar.
Það virðist líka vera mikill sóknarhugur
í Skagfirðingum, og er stærsta dæmið
þar þau áform sem em um uppbyggingu
í Kolkuósi, og þrihyminginn Hólar,
Kolkuós og Hofsós með Vesturfarasetr-
ið. Mjög metnaðarfúll áform sem gam-
an verður að fylgjast með.
Þegar stóðréttir em nýafstaðnar er
gaman að velta því fyrir sér hvaða áhrif
atburður eins og Laufskálarétt hefúr á
ferðaþjónustuna í Skagafirði og hvað í
rauninni er hægt að tvinna í kringum þá
miklu afþreyingu sem þessi stóðréttar-
samkoma er. Það veldur reyndar vanga-
veltum hjá mörgum, hversvegna í ó-
sköpunum fólk flykkist að til að fylgjast
með því þegar nokkur hundmð hrossum
er smalað framan úr Kolbeinsdal og úr
beitarhólfúm í nágrenninu?
Það er vitað að Laufskálaréttargestir
skilja eftir þónokkra fjánuuni í hérað-
inu, í formi gistingar og veitinga sem
þeir greiða fyrir, auk þess að borga sig
inn á stóðréttardansleikina. Það er líka
að verða talsvert um að fólk komi og
dvelji í Skagafrði vikuna á undan rétt-
inni og taki þá þátt í smalamennsku og
fari i styttri útreiðartúra sér til skemmt-
unar og tilbreytingar. Pistilritari ræddi
t.d. við Jón Garðarsson í Neðra -Ási rétt
fyrir Laufskálaréttarhelgina og þá hafði
hann verið með hóp fólks alla vikuna.
Var þá skroppið í útreiðartúra niður að
Kolkuós, fram í dal og víðar. Aðspurð-
ur sagði Jón að þessi tími í kringum rétt-
imar væri farinn að gefa ferðaþjónustu-
aðilum vemleg búdrýgindi, og er ekki
að efa það. Kannski liggja ónotuð tæki-
færi viða í sambandi við ferðaþjónstuna,
þó Laufskálaréttin hafi verið tekin hér
sem dæmi. ÞÁ.
Tólf böm
í dagvist
í Víðidal
Þegar ferðaþjónustutíma-
bilinu lýkur í Dæli í Víðidal,
tekur þar við dagheimli fyrir
eins til fimm ára böm. í vetur
og fram á vor verða 12 böm á
dagheimilinu í Dæli sem
þrjár konur starfa að. í Dæli
var byggt rúmgott aðstöðu-
hús fyrir ferðaþjónustuna
sem nýtist vel við dagvistina.
„Við emm búin að starf-
rækja þessa dagvist fyrir
sveitarfélagið í nokkur ár.
Þetta byrjaði þannig að
nokkrar mæður hérna úr
Víðidalnum tóku sig sainan
og foluðust eftir húsnæðinu
að láni og spurðu hvort ég
vissi af manneskju sem gæti
hugsað sér að vinna við að
passa bömin. Við höfum síð-
an verið tvær og þrjár sem
annast þetta og í vetur verð-
um við þrjár. Þetta hefur
gengið ágætlega og hentar
vel fyrir alla aðila”, segir Sig-
rún Valdimarsdóttir í Dæli.
Óh áð fréttahlað á Morðurla ndi v estra Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson. hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki. Áskriftarverö 210 krónur hvert tölublað með Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453 vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. 5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt & @ krokur. is. og feykir@simnet.is Svart hf.