Feykir - 22.10.2003, Blaðsíða 2
2 FEYKIR 36/2003
Björn Jónsson formaður UMFÍ í ræðustól og starfsmenn þingsins að störfum: Ingi Þór
Agústsson þingritari til vinstri og þingforsetarnir Páll Ragnarsson og Þórir Haraldsson.
AUGLÝSING
Um deiliskipulagsbreytingar
á Sauðárkróki
í samræmi viö 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með
síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar eftirfarandi
tillögur á breytingum á deiliskipulagi á Sauðárkróki.
Skagafjörður
1. Suðurhluti Skógargötu
Sveitarstjórn Skagafjarðar auglýsir hér með tillögu að breyttu
deiliskipulagi suðurhluta Skógargötu sunnan viö Kirkjuklauf á Sauðárkró-
ki samkvæmt 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í breytingu lóðamarka og lóðastærða við Skógargötu og
Suðurgötu. Gert er ráð fyrir að 3 hús verði rifin vegna þess hve þau
þrengja að götunni og læknisfjósið við Skógargötu. Tillagan felur í sér þá
breytingu á gildandi deiliskipulagi að lóðir fyrir þrjú keðjuhús og bíla-
geymslur ofan við Skógargötuna falla út. Gert er ráð fyrir einni byggingar-
lóð fyrir nýtt íbúðarhús á horni Hlíðarstígs og Skógargötu. Lóðin Suðurgata
4 verður ekki endurbyggð, þar er gert ráð fyrir bílastæðum.
2. Hesteyri 2 og Vatneyri 3
Sveitarstjórn Skagafjarðar auglýsir hér með tillögu að breyttu
deiliskipulagi lóðanna Hesteyri 2 og Vatneyri 3 á Sauðárkróki samkvæmt
1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Breytingin felst í breytingu á lóðamörkum, lóðastærðum og breyttri
aðkomu aö lóðinni Hesteyri 2. Lóðin Hesteyri 2 er stækkuð og byggingar-
reitur skilgreindur á lóðinni. Lóðin Vatneyri 3 verður minnkuð. Opið svæöi
austan við Hesteyri 2 verður líka minnkað.
Deiliskipulagstillögurnar verða til sýnis í Ráðhúsinu á Sauðárkróki frá og
með fimmtudeginum 23. október 2003 til mánudagsins 24. nóvember 2003.
Frestur til að skila athugasemdum við deiliskipulagstillöguna er til
þriðjudagsins 9. desember 2003. Athugasemdum skal skila skriflega á
skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa í Ráðhúsinu á Sauðárkróki. Þeir
sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins ffests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Skagafjarðar
Líflegar umræður
áþingiUMFÍ
Samþykkt var á 43. sam-
bandsþingi UMFÍ á Sauðár-
króki um helgina að heimila
öllu íþróttafólki þátttöku á
landsmótum. Þetta þýðir að
landsmótin verða enn stærri í-
þróttaviðburður en áður og
tryggir að allir mestu affeks-
menn landssins geti tekið þátt.
Þá var samþykkt á þinginu
umsókn tveggja stórra íþrótta-
bandalaga um aðild að UMFÍ,
íþróttabandalögunum í
Reykavík og Hafnarfírði. Sett
voru ákveðin skilyrði fyrir
inngöngu bandalaganna, svo
sem að þau breyttu sínum lög-
um til samræmis við lög
UMFÍ, einnig að samkomulag
næðist um nýjar reglur um
skiptingu lottófjár milli UMFÍ
og ISI fyrir 1. sepbember
2004. Þá var einnig samþykkt
á þinginu að unglingalands-
mót verði haldin árlega um
verslunarmannahelgi.
Bjöm Jónsson var endur-
kjörinn formaður. Bjöm var
einn í kjöri, en ekki kom til
mótffamboðs eins og margir
höfðu reiknað með. Valdimar
Leó Gunnarsson dró ffamboð
sitt til baka.
Aðrir i stjóm UMFÍ vom
kjömir: Helga Guðjónsdóttir
HSK varaformaður, Bjöm Þór
Armannsson ÚÍA gjaldkeri,
Ásdís Helga Bjamadóttir
UMSB, Birgir Gunnlaugsson
Fjölni, Hreinn Hringsson
UMSE og Anna R. Möller
UMSK.
Sigurbjöm Gunnarsson
Keflavík baðst undan endur-
kjöri eftir 20 ár í stjóm. Und-
anfarin ár hefur Sigurböm
gegnt starfi gjaldkera og skil-
aði af sér mjög góðum árs-
reikningi til þingsins, sem
sýnir að staða hreyfingarinnar
er mjög sterk um þessar
mundir.
Flugumýrarbrenna
þann 22. okt. 1253
Á þessum útgáfudegi
Feykis em 750 ár liðin frá
þeim örlagaríku atburðum er
fjöldi manns var brenndur
inni í brúðkaupsveislu á
Flugumýri, til þess eins að
ná ffam hefndum og hefta
valdaferil manns sem var að
hreiðra um sig á nýju um-
ráðasvæði.
Óvinir hans og and-
spymumenn „stigu allir af
baki við rétt þá, er var fyrir
sunnan húsin, ok bundu þar
hesta sína, - og gengu þá í
einum duni heldr hljóðliga
heim at húsunu” segir Sturla
Þórðarson ritari íslenginga
sögu og faðir brúðarinnar
ungu sem lét lífið í brenn-
unni, um brennumenn sem
læddust að veislugestum
með skelfílegan áseming í
sinni. Ástæða brennunnar
var sú að Gissur Þorvaldsson
höfðingi af hinni sunnlensku
ætt Haukdæla sem var í
bandalagi við Ásbiminga
hér í Skagafírði hafði keypt
Flugumýri og var nýfluttur
þangað. Þann 18. október
kvongaðist Hallur sonur
hans Ingibjörgu Sturludótt-
ur, en sú tenging var hápóli-
tísk ákvörðun til að halda
völdum og góðum sambönd-
um. Óvinir Gissurar unnm
honum ekki þess og bára eld
að bænum er heimamenn
áttu síst von á, í lok brúð-
kaupsveislunnar. Brannu þar
margir inni og þeir líflátnir
sem út flúðu. Gissur bjarg-
aðist sjálfur á ævintýralegan
hátt eins og ffægt er, ofan í
sýraker í búri bæjarins. Um
þennan atburð og margt
fleira ótrúlegt og merkilegt
má lesa í Smrlungu, sem er
safh rita sem skrifuð vora
samtimis því og atburðir
gerðust á 13. öld eða stuttu
seinna. Sturlunga er stór-
merkileg heimild um samfé-
lag manna er íslenska þjóð-
veldið var að syngja sitt síð-
asta í lok 13. aldar.
Sig&Þór.
Kemur út á ntiðvikudögum. Útgefandi Feykir
hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki.
Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Símar: 453
5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir
@ krokur. is. og feykir@simnet.is
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
ÁskriftaiA'erð 210 krónur livert tölublað með
vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt &
Svart hf.