Feykir - 22.10.2003, Síða 8
Sterkur auglýsingamiðill
22. október 2003,36. tölublað, 23. árgangur.
Frá brunaæfingunni í Grænumýrartungu upp við Holta-
vörðuheiði.
Áningarstaður og
© Shej;c«
ID E Q yCÝÍ EHF.
Sími:
453 6666
Sími:
453 6622
Fjallað um nýtingu Steins-
staða að loknu skólastarfí
í skýrslu sem Atvinnuþró-
unarfélag Norðurlands vestra
hefur gert um atvinnuupp-
byggingu á Steinsstöðum að
afloknu skólastarfi, era einkum
lagðir fram þrír kostir. Leigja
út eignimar til einkaaðila sem
hafa hug á að efla atvinnulíf i
Tungusveit. Önnur leiðin væri
að sveitarfélagið eða stofnanir í
eigu þess hefðu rekstur á ein-
hverri þjónustu á svæðinu. I
þriðja lagi að skólahúsnæðinu
verði breytt í hjúkranarheimili
fyrir aldraða með samstarfs-
samningi við Heilbrigðisstofn-
un á Sauðárkróki og hjúkranar-
deild Háskólans á Akureyri.
Hugmyndimar fengu mis-
jafnar undirtektir á fúndi sveit-
arstjómar í síðustu viku en þær
verða teknar til ffekari umfjöll-
unar hjá atvinnumálanefhd á
næstunni.
I skýrslunni sem Þorsteinn
Broddason vann er lagt til að ef
eignimar verði leigðar út, verði
það án gjalds fyrstu fimm árin.
Með því móti gæfist sveitarfé-
laginu tækifæri til að styðja á
öflugan hátt við atvinnuupp-
byggingu á svæðinu án mikill-
ar fjárhagslegar áhættu.
Hvað annan lið varðar er til-
tekin ein stofhun með nokkuð
mótaða hugmynd að starfsemi
á svæðinu en það er Náttúra-
skólinn sem Náttúrastofa
Norðurlands vestra hefur út-
fært.
Hugmyndin um hjúkranar-
heimili fyrir aldraða er talin
hafa þann kost að hún skapar
mörg störf í Tungusveit, en á
móti kemur að störfin krefjast
flest ákveðinnar menntunnar
og sérþekkingar sem ekki er til
staðar hjá núverandi íbúum
svæðisins.
Ein leið er nefnd að auki, en
hún er sú að selja eignimar að
Steinsstöðum. Bókfært verð á
skólahúsnæðinu að Steinsstöð-
um er rétt um sjö milljónir. Sú
leið er talin einna síst til þess
fallin að skapa atvinnuupp-
byggingu fyrir sveitina.
Sveitarstjóm Skagafjarðar vill kanna áhuga annarra svcitarfélaga
kennileiti hverfur
Slökkvilið Bæjarhrepps í
Strandasýslu hélt brunaæfingu
og fékk til þess gamla íbúðar-
húsið i Grænumýrartungu við
Holtavörðuheiði sem brennt
var urn helgina. Þakplötur
höfðu losnað og einhveijir ó-
prúttnir aðilar gengið berserks-
gang með sleggjum, svo hætta
stóð af að fara inn í húsið, og
eins gat stafað hætta að akandi
umferð um þjóðveg 1.
í hugum allmargra afkom-
enda var þetta ættaróðalið
Þetta reisulega hús var byggt
1925 og hafði heimarafstöð og
eigin vatnsaflsvirkjun. Framúr-
stefnuleg bygging síns tíma.
Jörðin hafði verið í eyði ffá
1966, en sama ætt bjó þama
samfellt í þrjá ættliði um hund-
rað ára skeið. í garðinum lifði
elsta grenitré sinnar tegundar á
íslandi, og eftir er sjá hvort tréð
muni lifa áffam. Þekktast var
þetta hús sem varða á vegin-
um, skjólið norðan heiðar á
áram áður, þegar vegimir og ó-
færamar milli landshlutanna
vora næstum óteljandi vegna
óútreiknanlegs veðurfars og
færðar. Sá viti sem varðaði
sunnan heiðar var Fomi-
hvammur, sem fyrir alllöngu er
horfinn líka. En nú er Holta-
vörðuheiðin ekki lengur sá far-
artálmi sem áður var. Þessi tvö
býli sitt hvoram megin heiðar-
innar vora eins konar gistihús,
viðkomustaðir ferðamanna og
landpósta og örugg skjól í
vondum vetrarveðrum.
Það er alltaf grátlegt að
horfa upp á branarústir svona
rétt við þjóðveginn og vonandi
verður séð til þess að þær verði
ekki látnar standa einar eftir,
heldur urðað og gengið ffá
fljótlega. Aðeins þannig er
hægt að sýna horfhum tímum
tilhlýðilega virðingu.
G. Jóh.
Tröllaskaginn kortlagður
Á sveitarstjómarfundi þann
16. október sl. samþykkti sveit-
arstjóm Skagafjarðar sam-
hljóða tillögu ffamsóknar-
manna í sveitartjóm um
göngu- og reiðleiðakort fyrir
Tröllaskaga:
„Sveitarstjóm Skagafjarðar
samþykkir að fela atvinnu- og
ferðamálanefnd að kanna á-
huga allra sveitarfélaga við
Tröllaskaga á samvinnu um
gerð gönguleiða og göngu-
korta, reiðleiða og reiðleiða-
korta um Tröllaskaga. Ljóst er
að verkefnið er stórt og getur
haft víða áhrif, því er bent á
þann möguleika að nýta Há-
skólann á Hólum og Háskól-
ann á Akureyri til ráðgjafar við
verkefnið.”
Tillagan var lögð ffam í
ffamhaldi af þeirri vinnu sem
unnin var á síðasta kjörtímabili
afþáverandi formanni atvinnu-
og ferðamálanefndar og vegna
þeirra miklu möguleika sem
Tröllaskaginn býður upp á sem
útivistarsvæði. Tillöguflytj-
endur telja mikilvægt að hugsa
um svæðið sem eina heild og
því sé mikilvægt að kanna á-
huga allra sveitarfélaganna
sem liggja að Tröllaskaganum.
Brunavamir Skagafjajrðar
Nýir menn í
veigamikil störf
Það er skemmtileg tilvilj-
un núna þegar nákvæmlega
750 ár era liðin ffá Flugumýr-
arbrennu að búið er að ganga
ffá ráðningu í tvö af veiga-
meiri störfum við eldvamir
og slökkviliðsstörf í Skaga-
firði. Þeir sem í þessi störf
vora ráðnir fæddust báðir í
Blönduhlíðinni og komust
þar til vits og ára.
Garðar Páll Jónsson frá
Miðhúsum var valinn í starf
eldvamareftirlitsmanns úr
hópi tíu umsækjenda. Þá var
Kári Gunnarsson ffá Kotum
ráðinn varaslökkviliðsstjóri.
Bjöm Sverrisson, sem er að
láta af störfum fyrir aldurs-
sakir, gegndi báðum þessum
störfum áður.