Feykir


Feykir - 03.12.2003, Blaðsíða 1

Feykir - 03.12.2003, Blaðsíða 1
rafsjá hf RAFVERKTAKAR SÉRVERSLUN MEÐ RAFTÆKI SÆMUNDARGÖTU1 SAUÐÁRKRÓKI Fjörutíu störf í Loðskinni í uppnámi Enn tími til stefnu og ekki endalyktir málsins Það kom tlatt upp á starfs- menn Loðskinns, sveitar- stjórnarmenn í Skagatlrði og íbúa héraðsins fyrir helg- ina þegar þær fregnir bárust að búið væri að ganga frá kaupsamningi milli aðaleig- anda Skinnaiðnaðar og Kaupþings-Búnaðarbanka um kaup Akureyringanna á fyrirtækinu. Þetta kom á ó- vart einkum í Ijósi þess að starfsmenn gáfu það út í síð- asta mánuði að þeir voru búnir að kaupa hlutafé í bankanum og tryggja eign- arhaldið. Engu að síður töldu starfsmenn Loðskinns og sveitarstjórnarmenn í Skagatlrði sig vera í samn- ingaviðræðum um kaup á hlutafé bankans í Loðskinni alveg framundir það síðasta. Gísli Gunnarsson forseti sveitarstjómar Skagaljarðar og Gunnsteinn Bjömsson mark- aðsstjóri Loðskinns fóm á fund forstöðumanna íyrirtækjasviðs Búnaðarbankans og Sólons Sigurðssonar bankastjóra á mánudaginn, þar sem þeim var gerð grein fyrir hvem stórt mál væri þama á ferðinni fyrir at- vinnulífið í Skagafirði. Það var gott hljóð í Gísla Gunnarssyni þegar Feykir náði sambandi við hann á mánu- dagskvöld. Sagðist hann hafa það á tilfinningunni að þetta hafi verið góða ferð og þeir fengið góðar viðtökur hjá Bún- aðarbankamönnum. Gísli sagðist líta svo á að þetta mál væri ekki búið þar sem fyrir- varar hefðu verið í kaupsamn- ingnum sem Akureyringamir gerðu, m.a. þeir að stjóm Kaupþings Búnaðarbanka samþykkti samninginn. Það mál verður væntanlega á dag- skár í næstu viku og sagði Gísli að í undirbúningi og athugun væri að gera bankanum tilboð, en ljóst er að enn er tími til stefnu. Eins og greint var frá í Feyki fyrir ári, það er 4. desem- ber 2002, var þá búið að ganga ffá samkomulagi milli Búnað- arbankans, Sveitarfélagsins Skagafjarðar og starfsmanna Loðskinns um að sveitarfélag- ið tæki að sér að útvega 35 milljónir til félagsins og starfs- menn keyptu hluti fyrir 20 milljónir króna. Gefnir vom sex mánuðir til að útvega þessa peninga og átti því að ganga ffá málinu í júní sl. Uppákoman fyrir helgina átti því ekki að þurfa að koma svo mikið á óvart, í ljósi þess samkomulags sem gert var fyrir ári. Það er orðinn árviss viðburður í lok þemaviku Árskóla og í byrjun jólaföstu, að efnt sé til friðarkeðju frá kirkjunni upp Kirkjustíginn að krossinum á Nöfunum. Friðargangan var farin sl. föstudagsmorgun og þá gekk friðarljós á milli tæp- Iega 600 nemenda Árskóla frá Sauðárkrókskirju að kross- inum og þegar þangað kom voru ljós krossins tendruð, en þau munu lýsa yfir bæiinn fram yfir Þrettándann. Óhappalaus hálka Athafnamaður á Skagaströnd Opnar lískvinnslu á Ólafsfírði Engar fréttir eru góðar frétt- ir, er oft sagt, og það eru orð að sönnu þegar leitað er frétta hjá lögreglunni og ekk- ert markvert hefur gerst. Kristján ÓIi varðstjóri sagði að þetta hefði sioppið vel, þrátt fyrir mikla hálku á göt- um og vegum að undanfornu. Ökumenn virðast meta að- stæður rétt í langflestum ril- fellum og vonandi að svo verði áfram þó svo að jóla- annríkið haldi nú innreið sína. Hjá lögreglunni á Blöndu- ósi var sömu sögu að segja, ró- legt. Embættið var að fá sérbú- inn bíl til hraðamælinga á dög- unum, sem gerir það að verk- um að nú þarf einungis einn lögregluþjónn að vera í bílnum vegna sönnunarbyrði. Her- mann Ivarsson lögregluþjónn sagði að þetta hefði verið svip- að undanfarið sem lögreglan hefði sinnt gagnvart hraða- akstrinum, en Blönduóslög- reglan hefur annast þennan þátt löggæslunnar einkar vel, enda veitir ekki af þar sem beinir og góðir kaflar, hrað- brautir, em í Húnaþingi. Gunnar Þór Gunnarsson á Skagaströnd, maðurinn á bak við Norðurós á Blönduósi og Kolku á Hofósi, er að færa út kvíamar, samkvæmt því sem Bæjarpósturinn, héraðsfrétta- blað Ólafsfirðinga og Dalvík- inga greindi frá á dögunum. Þar er sagt ffá þvi að ef allar áætlan- ir gangi eftir muni félag í eigu Gunnars Þórs hefja vinnslu á Ólafsfirði núna í jólamánuðin- um. Félagið á bak við nýju vinnsluna heitir Ripill og er í eigu Gunnars Þórs. Ripill verð- ur til húsa þar sem áður var Fiskverkun Sigvalda Þorleifs- sonar, en húsnæðið var komið í eigu Sparisjóðs Ólafsfjarðar og keypti Gunnar Þór það af sjóðnum. Undanfarið hafa staðið yfír breytingar á húsnæðinu, en í vinnslunni verður aðaláherslan lögð á að vinna aukaafiirðir, hausa, afskurð og fleira. Megn- ið verður þurrkað, en einnig verður saltað og þá segir Gunn- ar Þór í samtali við Bæjarpóst- inn, að gerðar verði tilraunir með nýjar verkunaraðferðir. Aðspurður kvaðst Gunnar Þór ekki hafa í hyggju að flytjast til Ólafsfjarðar sjálfur, en búið væri að ráða ffamleiðslustjóra sem flytti til Ólafsfjarðar innan tíðar. Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 • ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA • FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA • BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA jm bílaverkstæði Sími 453 5141 Sæmundargata Ib 550 SauSárkrókur \ JfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir Réttingar # Sprautun

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.