Feykir - 12.01.2005, Síða 5
02/2005 Feykir 5
Húnaþing vestra
Óvenjulegur gestur á dvalarheimili aldraðra
Haftyrðill í
í síðustu viku fékk Feylcir
upphringingu frá
dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki en þar
höfðu starfsstúlkur
gómað fugl sem fannst í
snjónum rétt við
dvalarheimilið og vildu
láta smella mynd af
fuglinum sem þær
þekktu ekki deili á.
Piltarnir á Náttúrustofu
Norðurlands vestra mættu
einnig á svæðið og sóttu
fuglinn, sem reyndist vera
haftyrðill, og reyndu að
sjósetja hann á ný. Fuglinn
reyndist hins vegar of mátt-
farinn og fékk því aðsetur í
húsnæði náttúrustofunnar.
heimsókn
Á heimasíðu NNV segir
að undanfarið hafi borið á
því að haftyrðlar hafi verið að
hrekjast upp á land við
Sauðárkrók. Þann 17. desem-
ber síðastliðinn kom Helga
Gunnlaugsdóttir garð-
yrkjustjóri með þrekaðan
haítyrðil á náttúrustofuna en
fuglinn drapst skömmu síðar.
Sá fugl fannst nálægt
gróðurhúsum við Hitaveitu
Sauðárkróks.
Náttúrustofan vill gjarn-
an fá upplýsingar ef fólk
finnur aðframkomna haf-
tyrðla. Nánari pplýsingar um
fuglinn má finna á
heimasíðunni www.nnv.is
Stefanía og Krístín með haftyrðilinn.
Mynd: pib
100. hmdurinn
Sveitarstjórn Húnaþings
vestra hélt sinn 100. fund
þann 30. desember sl. að
Gauksmýri. Þar var
meðal annars staðfest
Staðardagskrá 21, með
áritun sveitarstjórnar.
Vinna að Staðardagskrá
21, hefur verið í höndurn
starfshóps, undir stjórn
Arnars Birgis Ólafssonar
umhverfis- og garðyrkjustjóra
sveitarfélagsins.
Staðardagskrá 21 íjallar í
meginatriðum um sjálfbæra
þróun á 21. öldinni og
hvernig hægt er að ná fram
þeirn markmiðum sem menn
setja sér varðandi hana. Með
uppfyllingu þessara mark-
miða eru sveitarfélagið og
íbúar þess m.a. að reyna að
byggja upp betra samfélag og
tryggja betra skipulag á hlut-
unr, betri nýtingu auðlinda og
betri umgengni í sveitarfélag-
inu. Verður sveitarfélagið
fyrir vikið meira aðlaðandi í
augum íbúa sem og augum
gesta þess.
Að fundi loknum voru
ríkulegar veitingar fram
bornar af staðarhöldurum..
Heimild: Forsvar.is
Björgunarsveitin Káraborg tvívegis kölluð út
Sami skaflinn í bæði skiptín
Björgunarsveitin Káraborg á
Hvammstanga var um helg-
ina kölluð út tvisvar sömu
nóttinu vegna vegfarenda sem
lentu í vandræðum í ófærð á
þjóðveginum milli Hvamms-
tanga og Víðihlíðar.
Fyrra útkallið kom kl 2:15
en þá var vegfarandi fastur
við bæinn Vatnshorn. Greið-
lega gekk að losa bílinn og var
honum fýlgt af stað aftur.
Seinna útkallið kom svo
upp úr kl. 5 en þá var annar
vegfarandi fastur í sarna
skaflinum. Var hann einnig
losaður og komu björgunar-
menn aftur í hús kl. 7,
Kynntu þér glæsileg safnkortstilboð íjanúar
Væntanlegt - á stöðinni þinni -
Munið alla laugardaga!
52% afsláttur afbland í poka úr nammibamum
ESSO Ábær - Sauðárkrókur
Rautt Grape
89,- krkg
Kellogg,s
Ef þú kaupir 3 pakka
af Kellogg’s
morgunkorni W
færðu snyrtitösku
í kaupbæti.
,}j» ^jOODLtb
V^55?
OG SKÍÐAVÖRUR
Auglýstu í lit í fréttablaöi Norðurlands vestra