Feykir


Feykir - 12.01.2005, Qupperneq 6

Feykir - 12.01.2005, Qupperneq 6
6 Feykir 02/2005 Svona leit Hugi út á blaðsídu 2 í Helgarblaði DVsíðastliðinn laugardag. Hugi Halldórsson með þátt á PoppTívi Nýtt ár drallugott! Ýmsir kannast við Huga Halldórsson úr fótbolt- anum, en kappinn þótti fyrir ekki mörgum árum liðtækur á kantinum hjá Tindastóli. Síðan fór Hugi í FÍáskólann en lagði lögfræðina á hilluna og gerði garðinn frægann með fálda myndavél í 70 mínútum á PoppTíví. Gerðist síðan Oflir-Hugi og varð þess heiðurs aðnjótandi að láta íslenska handboltalandsliðið rassskella sig. Nú er hann að b)Tja með nýjann þátt og því þótti Feyki rétt að leggja fyrir hann nokkrar laufléttar spurningar. Hvað á að gera á nýju ári? Nýja árið verður drullugott. Nýr skemmtilegur þáttur sem ég kem til með að stjórna ásamt simpasa. Ætli maður reyni ekki að verða ríkur, losna við nýja björgun- arhringinn minn, læra að drekka whiský og stækka urn svona 11 sentimetra. Hvernig voru jólin? bæu voru stutt, róleg og kærkomin. Tókstu þátt í Jólamóti Molduxa? )á og rúmlega það. Back to back champion, búinn að vinna 2 ár í röð og það með sitthvoru liðinu. Spuring hvort maður sé ekki bara á leið í atvinnumennsku. Það er allavega á hreinu að það verður barist um mig sem leikmann á næsta ári. Er ekki kominn tími til að skipta Sir Alex út? Nei, hann og Jóhannes Páll fá að sitja eins lengi og þeim sýnist. Að skipta honum út væri eins og að sprengja Drangey í tætlur og reyna að steypa nýja eyju! Hvað var verst á síðasta ári? Þetta var mitt lukkaðasta ár til þessa. Eftir að hafa skitið upp á bak í skóla fékk maður draumavinnuna. Ef ég þarf að nefna eitthvað slæmt þá mundi ég segja skilnaður við 70 mínútur, sala á gamla bílnum mínum, sambands- slit við kærustu og Arsenal. Hver er sterkasti leikmaður íslenska handboltalands- liðsins? Það get ég ómögulega sagt til urn, mér er illa við hand- bolta, þetta er ekki íþrótt frekar en skák. Þeir eru allir þrælsterkir en ég lenti illa í Sigfúsi Sigurðs, því er best að draga allt til baka ef hann skildi lesa þetta viðtal. Hver “strákanna okkar” er í mestu uppáhaldi hjá þér? Mér er nteinilla við þá alla. Þetta eru hrottalegir fantar og hafa ekki nokkurn skap- aðan hlut á samviskunni. Þeir eru nú búnir að missa tililinn strákarnir okkar. Strákarnir okkar verða á Stöð 2 og ætla ég að nýta mér tækifærið og uppljóstra því að ég á heiðurinn af nafiiinu á þeim þætti. Takk fyrir takk takk, jú takk takk. Verður eitthvað vit í þess- um nýja þætti á PoppTíví? Hvernig dettur þér það í hug? Þetta verður þræl skemmtileg vitleysa tfá E-ö. Er Skagfirðingur ársins 2003 (Auðunn Blöndal) búinn að fá sér nýjann bíl? Iti, hann er kominn á Renault Megan. Við förum ott saman að skoða gantla Hunydi Coupinn hans. Sá eða sú sem á hann í dag vinnur í Nettó í Mjódd. Popptíví á Krókinn? Já, er það ekki komið? Sjáið þið þetta ekki allt saman á Sýn? Það er ekkert merkilegt á þessari stöð nerna Sjáðu, Game TV og nýji þátturinn minn! Hilmir Jóhannesson skrifar lánsamir eru íslendingar... ...aldrei ber hér neitt upp á sama daginn - eins og karlinn sagði. Þetta segi ég fyrir hvað áramótin eru gjörólík milli áramóta, svo vitnað sé í sömu heimild. Að svo mæltu óska ég öllum gleðilegs árs. íslensk erfðagreining komst að þvi að menn eru sitt með hverju laginu eftir ættum og uppruna. Slíkt þarf ekki að segja Þingeyingi sem búið hefur lengstan hluta ævinnar í Skagafirði. Á kortinu sjáum við að Eyjafjörður er þarna á ntilli og ef einhver trúir því að ég hafi lagt mína lífsbraut á þennan máta fyrir það að landslagið í Eyjafirði sé ntér lítið að skapi, þá skjátlast þeint hinum santa hrapalega. Stefán Jónsson fræðimaður ffá Höskulds- stöðum var náskyldur Huldu konu minni og ræktaði þann skyldleika af alúð, heimsótti okkur oft og bar þá margt á gónta. Meðal annars vorum við sannfærðir um að landslag hefði áhrif á mannlífið sem þrífst á svæðinu. Spaklegar skoðanir mínar á Þingeyjarsýslunt og Mýra- og Borgarfjarðarsýslum þóttu Stefáni skemmtilegar og sammála vorunt við um það að vegna landshátta í Skagafirði væru íbúar svæðisins glaðsinna og óvenju söngglaðir. Þetta kentur til af því að á veturna mynduðu Vötnin þjóðbraut um héraðið sem gerði að verkum að félagsleg eining varð hér meiri en þar sem sem sveitirnar voru í smærri plássunt og þrengri dölum. Gæti ég sett ffam margar spaklegar tilgátur og jalnvel kenningar um þau vísindi, en það getur hver ffindið fyrir sig sem áhuga hefur á viðfangsefninu. Hugurinn starfar eftir skrítnum brautum því þegar ég las um þessa uppgötvun Islenskrar erfðagreiningar og Kára Stefánssonar rifjaðist upp fyrir mér þessi viðræða mín og Stebba Höska og þá var stutt í spjall sem ég átti við alnafna hans Stefán Jónsson fféttamann en þegar við bjuggum í Borgarnesi hringdi hann á tímabili í mig og fleiri fúrðufúgla vítt um landið og spjallaði við okkur uin það sem efst var á baugi þá og þá. Þetta spilaði hann svo í útvarpið eftir hádegi á laugardögum. Nú var það skömmu fyrir jól að hann bað mig að vera heima og tala við sig á Þorláksdag og vera helst með eitthvað sem ekki tæki langan tíma, en ég hef alltaf orðið að undirbúa mig ef ég ætti að vera stuttorður. Ef ég má tala lengi þá get ég byrjað strax. Ég tók ntig til og sarndi jólahugleiðingu og til að tryggja að hún væri innan tímamarka þá setti ég hana í rímu. Nú fór það svo að að Stefán hringdi í aðra á undan mér og man ég að hann talaði lengi við Egil Jónasson ffænda minn á Húsavík. Fyrir vikið var ekki pláss fyrir mína speki á þessari Þorláksvöku. Ég set hana hér á eftir því auðséð er að hún er ágætlega við hæfi enn þann dag í dag. Bráðum knýja blessuðjólin að dyrum, með boðskap friðarins - enn þó standi hann styr um. Afgömlum vana ég trúi - en sposkur þó spyr um. Erspekin nokkru meiri-en var hún fyrrum? Erum við nokkru nœr því að trím á Drottinn? Er náungakœrleikurinn ekki úr sér sprottinn? Erum við hótinu betri en hottintottinn sem hugsjónirnar setur ofan ípottinn? Svarið við líklega finnum á Ijósanna hátíð. Logagyllt stjarna benti á veginn í þátíð. Þegar víst - eins og síðasta tímann - vonin varfátið, og vitringarnir þeir stóðust bara ekki mátið. Núna heldur vantar ei visku hótin, eða virðuleikann, það er þó eina bótin. Eftirjólin eru svo áramótin, ogýmsirgetaþá stigið í hvorugan fótinn. Hilmir Jóhannesson Veðurspá fyrir janúar 2005 Litlar breytingar Veðurklúbburinn kom saman í nýrri og fallegri stofu á Daibæ á fyrsta veðurklúbbsfundi ársins 2005. Það er skemmst ffá því að segja að sjaldan hefúr verið jafit erfitt að korna saman álitlegri spá! Það rná rekja til endalausra umhleypinga sent virðast eiga eftir að halda áffarn. Annars erurn við hæst ánægð með veðurspár hausts- ins, þær hafa staðist eins og sta- fúr á bók og núna þann 10. janúar kviknar nýtt tungl, þorratungl, í ssa og þar með líkur þriðja tunglinu í þriggja tungla spá okkar í haust, sem byggðist á draumi eins féla- gans. Þessi draumspaki maður ruglaði okkur einmitt í rýrninu á nýyfirstöðnum fúndi. Núna dreymdi hann að honum voru færðar tvær brennivínsflöskur og átti að korna þeim til skila til konuhéráDalvík. Brennivínog dr>'kkjuskapur í draumi eru jú alltaf ft'rir hláku. Það passaði ekki alveg inn í þá mynd sem aðrir klúbbmeðlimir höfðu gert sér af veðráttu næstu vikna. E.t.v. verður hlákan geymd á flöskum eitthvað ffam efúr vori þar sem dreyntandinn dreypti ekkert á innihaldinu. Það verður gaman að fylgjast með hvemig þessi drauntur kemur ffam. Annars var veðurspáin á þá lund að ntiklir umsnúningar væm ffamundan (eins og veðrið heffir verið undanfarið), en lík- lega myndi þó heldur róast í fáeina daga eftir þrettándann. Nýtt tungl mun að öllu óbreyttu heilsa nteð norðanátt þann 10. þ.m. og það ásamt ýmsum merkjum í náttúrunni bendir til að ekki verði neinna verulegra breytinga að vænta fyrr en í fyrsta lagi þann 25. janúar. Þó viljum við ekki útiloka einn og einn hlýjan dagpart inn á ntilli. Þetta látum við nægja að sinni, og óskunt ykkur alls góðs á nýju ári. Veðurklúbburinn á Dalbœ

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.