Feykir


Feykir - 22.06.2005, Síða 8

Feykir - 22.06.2005, Síða 8
SHELL SPORT SKAGFIRÐINGABRAUT 29 SAUBÁRKRÓKI SIMI 453 6666 Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi Ný sumarsýning Ný ein kasýning var opnuð í safninu þann 22. maí sl. en það er Auður Vésteinsdóttir, sem sýnir nú listvefnað. Verkin eru öll unnin í vefstól, eru ný og hafa ekki verið til sýnis áður. Fossandi vatn í íjallalækjum og farvegir sem vatn niótar hafa verið viðfangsefni Auðar undanfarin ár og við gerð þessara verka fekk Auður innblástur við útsýni yfir ósa Blöndu. Þá er skemmtilegt að nefna að hrosshárið sem Auður notar í verkin er húnverskt að uppruna. Það sem af er sumri hefur fjöldi gesta heimsótt saíhið og segir Elín Sigurðardóttir, forstöðukona þess, þetta einstaka safn njóta æ meiri vinsælda. Gestir rómi fallegar og sérstakar sýningar í glæsi- legum húsakynnum þar sem aðgengi gesta er til fyrirmyndar og sérlega fallegt útsýni yfir ósa Blöndu, en þetta er þriðja árið í röð sem opnuð er einkasýning textíllistamanns í Heimilis- iðnaðarsafninu. Gæfi það safninu aukið vægi og meiri fjölbreytni auk þess sem breytt er til í öðrurn sýningum safnsins á hverju ári, nýjir munir settir fram og aðrir hvíldir. Gestir geta því ævinlega verið vissir um að sjá eitthvað nýtt á hverju sumri, sagði Elín að lokum. síðastliðin, skapaðist nokkur umræða um aðstöðu og möguleika landsmanna og ferðamannatilfuglaskoðunnar. Kom þar t.d. ffam að margir ferðamenn sæki landið heim gagngert í þeim tilgangi að skoða fugla. Skagafjörður býður upp á mikla möguleika til fugla- skoðunar vegna hinna víð- feðmu votlendissvæða og héraðið er líklega eitt áhuga- verðasta fuglasvæði landsins. Vonast er til að bæklingurinn vekji athygli á fuglaskoðun í Skagafirði og hvetji tólk enn frekar til náttúruskoðunar í héraðinu. Náttúrustofa Norðurlands vestra Bæklingur um fuglaskoðun Náttúrustofa Norðurlands vestra hefur gefið út bækling til kynningar á fuglasvæðum Skagafjarðar. Stofan hefur í samvinnu við aðra aðila sett upp fuglaskilti á fjórum áhugaverðum fuglaskoðunar- stöðum í nágrenni Sauðárkróks. í bæklingnum er texti bæði á íslensku og ensku þar sem staðsetningar fuglaskiltanna eru sýndar ásamt því að gerð er grein fyrir helstu tegundum fugla á viðkonrandi svæði. Bæklingnum verður dreift á alla helstu ferðamannastaði á Norðurlandi vestra á næstu dögum og vikum og einnig er liægt að nálgast eintak á Náttúrustofunni. Rétt er að vekja máls á því að á nýyfirstaðinni ráðstefnu um férðaþjónustu sem haldin var á ísafirði 15. og 16. apríl Sýning á verkum Sólon íslandus_ Afmælissýning að Lónkoti í Skagafirði Sérstök afmælissýning á verkum listamannsins Sölva Helgasonar, öðru nafni Sólon íslandus (1820- 1895) verður haldin í gallerí staðarins sem einm'rtt er kennt við myndlistarman- ninn Sölva Helgason. Er þetta gert í tilefni þess að áratugur er liðinn frá afhjúp- un minnisvarða urn Sölva og opnun Veitingahússins Sölva- Bars að ferðamannastaðnum Lónkoti. Verður sýningin opin allt sumarið 2005. Á Sölva-Bar eru ætíð til sýnis myndverk eftir þennan sérstæða einfara í íslenskri myndlist. Svf. Skagafjörður Áfram verði unnið að Há- tæknisetri Á fundi atvinnu- og ferða- málanefndar Svf. Skaga- fjarðar í gær var farið yfir framhald verkefnis um uppbyggingu hátækni- seturs á Sauðárkróki og skýrslu Sveins Ólafssonar eðlisfræðings um skipulag og hugmyndir til nefnd- arinnar. Atvinnu- og ferðamálanefnd telur að breið samstaða sé in- nan sveitarstjórnar um að halda áfram með verkefnið og beinir nefndin því til sveitarstjórnar Sveitartélagsins Skagafjarðar að áfram verði unnið að upp- byggingu Hátæknisetursins á forsendum þeirra hugmynda sem ffam koma í skýrslunni. ^ 455 5300 SparaSu reglulega með KB sparifé D KB BANKI -krafturtil þín! Arnar Helgi Lárusson við listaverkið í Varmahlíð Varmahlíð Bifhjólamenn afhjúp- uðu minnismerki Talverður mannfjöldi var samankominn í Varmahlíð á sunnu- daginn þegar mótor- hjólafólk afhjúpaði þar listaverk til minningar um þá sem látist hafa í bifhjólaslysum á undan- förnum árum. Þetta var liður í því að fagna eitthundrað ára afmæli mót- orhjólsins sem var 19 júní sl. Listaverkið heitir Fallið og er afar haganlega smíðuð eftir- líking af biflijóii sem kornið er fyrir á steyptum stöpli og var því valinn staður á gras- flötinni skammt ffá Upplýsin- gamiðstöðinni. Það var Heiðar Þór Jóhannsson meðlimur í Sniglunum og kunnur bif- hjólamaður sem smíðaði listaverkið en Baldur Haralds- son múrarameistari gerði undirstöðuna. Arnar Helgi Lárusson mótorhjólamaður úr Reykjavík aflrjúpaði verkið. Hann slasaðist í bifhjólaslysi fýrir tæpum þremur árunr og hefur síðan verið bundinn við hjólastól. Mikið tjölmenni var saman komið við þessa athöfn og fjöl- margir lögðu blórn við verkið til minningar um þá sem látið hafa lífið í mótorhjólaslysum á undanförnum árum, sem eru alltof margir en hefur þó farið fækkandi allra síðustu ár eins og talsmaður sanrtakanna sagði í ávarpi við athöfnina. Talið er að rnilli fjögur og fimm hundruð mótorhjól hafi verið í Skagafirðinum þegar mest var. Fólk byrjaði að kom í bæinn á vélfákum sínum á fimmtudag. Suðvestan strekkingur______ Veðríð um helgina Um helgina er búist við suðvestan strekkingi með rigningu á Norðurlandi Vestra en þó fremur hlýju veðri. Hiti er áætlaður á bilinu 10- 13 stig sem er þó nokkuð skárra en verið hefur í vikunni. Reyn- dar er spáð svipuðu veðri og verið hefur fram að helgi og því sennilega betra að hafa úlpuna við hendina. 545 4100 RAFVERKTAKAR www.bustadur.is - sérverslun með raftæki Æ rafsjá hf B Ö frí T A Ö CJ R FASTEIGNASALA A LANDSOYGGOINNI SÆMUNDARGOTU1 SAUÐARKRÖKI SlMI 4535481

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.