Feykir - 29.03.2006, Blaðsíða 5
12/2006 Feykir 5
möguleika til að hafa áhrif í
sveitarfélaginu.
Hlutfall kynja í stjórnunar-
stöðum hjá sveitarfélaginu og í
sveitarstjórn voru einnig atriði
sem íbúar voru frekar ónægðir
með.
Þá eru íbúar almennt ánægðir
með þjónustu við fatlaða,
aldraða og heimaþjónustu.
Niðurstöðurnar notaðar til
stefnumörkunar sveitar-
félagsins
Áskell Heiðar Ásgeirsson
sviðsstjóri hjá sveitarfélaginu
sem annaðist framkvæmd
könnunarinnar segir ánægju-
legt að almennt séu íbúar
nokkuð ánægðir með þá
þjónustu sem sveitarfélagið
veiti og könnunin klapp á bak
starfsfólks sveitarfélagsins.
Niðurstöður hafa þegar verið
ræddar í fagnefndum sveitar-
félagsins og meðal sviðsstjóra
og forstöðumanna stofnana.
Áskell Heiðar segist vænta þess
að þær verði notaðar við
stefnumörkun hjá sveitar-
félaginu á komandi misserum.
Könnunin gerð opinber
Ákveðið hefur verið að birta
niðurstöður könnunarinnar í
Munur á viðhorfum íbúa
í þéttbýli annars vegar og
dreifbýli hins vegar vekur
athygli mína. Viðhorf
þéttbýlinga virðist alment vera
mun jákvæðara og nauðsynlegt
að skoða hvað veldur.
Fram koma þarfar ábendingar
til sveitarstjórnar um að koma
upplýsingum um störf sín
betur til skila. Einnig kemur
fram að þeir telja sig hafa litla
aðkornu að ákvörðunum í
sveitarfélaginu. Þarna getur
sveitarstjórnin tekið sig á.
Þrátt fýrir að Skagafjörður
skarti fjölbreyttu atvinnulífi
miðað við önnur
dreitbýlissveitarfélög þá er
kallað eftir fleiri og fjölbreyttari
atvinnutækifærum. Lítégáþetta
sem að fólk sjái mörg tækifæri
til atvinnuuppbyggingar á
svæðinu en einmitt í þessu felst
drifkrafturinn.
Jákvætt viðhorf til þess
uppeldisstarfs sem fram fer
er rnikið ánægjuefni. íbúar
upplifa mikinn kynjamun í
íþróttaframboði fyrir börn og
unglinga og verður að skoða
þaðatriðisérstaklega. Skólarnir
njóta hylli og ábendingar koma
ffarn um það sem betur má
fara. Vitað er að mikið verk er
óunnið varðandi uppbyggingu
skólahúsnæðis en mestu
skiptir sú almenna ánægja sem
ffarn kemur með umönnun og
faglegt uppeldi á stofnunum
sveitarfélagsins.”
Gísli Gunnarsson, forseti
sveitarstjórnar og oddviti
Sjálfstæðismanna
„Jákvæðar
vísbendingar"
„Mér finnst ánægjulegt hvað
Skagfirðingar eru jákvæðir og
ánægðir með stöðu
mála. Það kemur þarna
fram eitt og annað sem gefur
vlsbendingar um hvað má
betur fara. Þær ábendingar
íbúa sem koma fram um það
sem betur má fara á að
nota til þess að gott sveitarfélag
enn betra.
Við vitum öll að það er æskilegt
að auka fjölbreyti atvinnulífsins
og það kemur mér ekki á
óvart að sá vilji komi fram í
könnunni. Það er verkefni sem
sífellt þarf að hafa í huga. En
almenntfinnstmérniðurstöður
könnunarinnar gefa okkur
jákvæðar vísbendingar.“
heild og greiningu á
spurningum eftir búsetu, aldri,
kyni og fleiri þáttum. Rétt er
að vara við því að draga of
miklarályktanirafniðurstöðum
þar sem fá svör standa á bak
við en fjöldi þeirra er tilgreindur
í öllum greiningum.
Állar niðutstöður könnunar-
innar má nálgast á vef
Sveitarfélagsins Skagafjarðar,
www.skagafjordur.is.
Ársæll Guðmundsson,
sveitarstjóri og oddviti
Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs.
Munur á viðhorfum í
þéttbýli og dreifbýli
„Það er gleðiefni að sjá mikla
ánægju íbúa með að búa í
Skagafirði samanborið við
álit íbúa annarra sveitarfélaga
á búsetu í sinni heimabyggð.
íbúarnir eru almennt mjög
ánægðir með lífsgæðin og
uppvaxtarskilyrðin fýrir
börn. Einnig að því lengur
sem viðkomandi hefur búið
í sveitarfélaginu því ánægðari
er hann með búsetuna.
Ánægja meðal íbúanna með
þá þjónustu hjá stofnunum
sveitarfélgsins er hrós til
stafsfólks sveitarfélgsins.
Gunnar Bragi Sveinsson,
oddviti Framsóknarmanna
„Atvinnumálin
mikilvæg"
„Markverðast er og þarf ekki
að koma neinum á óvart
hversu mikilvæg atvinnumálin
eru að mati íbúanna og einnig
að fólk telur að það vanti meiri
fjölbreytni í atvinnulífið. Þá er
eftirtektarvert að fimmti hver
segist áætla að flytja á næstu 2-
4 árum og er það í langmestum
mæli ungt fólk sem áætlar að
flytja en það er beint framhald
á þeirri þróun sem hefur verið
undanfarin ár. Hvað varðar
þjónustu sveitarfélagsins er
fólk í langflestum tilfellum
ánægt með starfsfólk og innra
starf stofnana sveitarfélagsins,
þó það sé ekki algilt. En fólk
er affur á móti síður ánægt
með húsnæði og annan ytri
aðbúnað, t.d. leiksvæði, mötu-
neyti og umferðaröryggi við
skóla svo eitthvað sé nefnt.“
Gréta Sjöfn
Guðmundsdóttir, oddviti
Samfylkingarinnar
"Gott samfélag sem
má gera enn betra"
“Það kemur að sjálfú sér ekki
á óvart hvað Skagfirðingar eru
ánægðir og sáttir með að búa
í Skagafirði, við Skagfirðingar
höfum sterka sjálfsmynd og
erum að öllu jöfnu stolt af
því að vera Skagfirðingar.
Markverðast er að mínu mati
að sjá hvað almenn ánægja er
með þjónustu sveitarfélagsins
þrátt fýrir að um er að ræða
ungt sveitarfélag sem gengið
hefur í gegnum miklar
breytingar en það m.a. til
marks um það hvað við erum
með gott og öflugt starfsfólk á
okkar snærum.
Þjónusta sem snýr að
grunnstoðum fjölskyldunnar
s.s. leikskólar, grunnskólar,
tónlistarskólar ásamt
skólavistun fá góða einkunn
en almennt er fólk ósátt við
atvinnumálin sem kemur
að sjálfu sér ekki á óvart þar
sem umræða um atvinnumál
hefur verið ofarlega á baugi
síðustu misseri, en fólk vill
sjá meiri fjölbreytni. í þessari
könnun kom einnig skýrt
fram að fólki finnst það
almennt ekki ná að hafa áhrif
í sveitarfélaginu ásamt því að
hlutur karla og kvenna sé ekki
í jafnvægi stjórnunarstöðum
og í sveitarstjórn. Sem sagt í
heildina séð erum við með gott
samfélag sem hægt er að gera
enn betra.”
rl V
:i i
\ár,i i • r - I
E9
i n V * n t
L Hlíf
í **•
. . ví \
,V> -
jyi.VOO Jbin
l
ur
Up taiihn iiJVJ
ObhPUJ' pK'lolvur. is
u So&t
fár’iur oíiskur
Gott úrval af
fínum tölvum
...flottar
fermin^argjafir