Feykir


Feykir - 04.10.2006, Blaðsíða 3

Feykir - 04.10.2006, Blaðsíða 3
36/2006 Feykir 3 Villinganesvirkjun er tilbúin, bíður eftir aðalskipulagi Því miðurfara virkjana- og stóriðjuflokkarnir Framsókn og Samfylking nú með meirihluta í sveitarstjórn Skagafjarðar og stefna að því að leyfa virkjanir í Jökulsánum með óafturkræfum fórnum náttúruperla og lífríkis Héraðsvatna. Bjarm Jónsson skrifar btadreyndin er su ad það eina sem ennþá hindrar framkvæmdir við Villinga- nesvirkjun er formleg heimild sveitarstjórna í Skagafirði fyrir virkjuninni. Öll önnur leyfi eru fengin. Samfylking og Framsókn hafa gefið grænt ljós á Villinganesvirkjun í Skaga- firði og frekari virkjanir í jökulsánum. Fulltrúar meirihlutans í Brunavarnir Skagafjarðar Brunavarna Skagafjarðar auglýsa eftir starfsmanni í stöðu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns. Starfssvið: • Starfið felst í vinnu við slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, auk ýmissa starfa sem því fylgir. Útkalls- og bakvaktarskylda er utan dagvinnutíma. • Skilyrt er að viökomandi hafi búsetu á Sauóárkróki. Hæfniskröfur: • Umsækjendur skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði reglugerðar nr. 792/2001 um menntun, réttindi og skyldur slökkviliðsmanna: • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. • Hafa aukin réttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. • Hafa iðnmenntun (sveins- eða vélstjórapróf) sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun (stúdentspróf) og reynslu. • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð og góð framkoma • Almenn tölvukunnátta æskileg • Konur eru hvattar til að sækja um Laun eru samkvæmt kjarasamningi SFS eða LSS og Launanefndar sveitarfélaga. Skriflegum umsóknum skal skila í síðasta lagi miðvikudaginn 18. október 2006 á skrifstofu slökkviliðsstjóra Brunavarna Skagafjarðar. Einnig er óskað eftir mönnum í útkallslið slökkviliðsins á Sauðárkróki. Menn þurfa að hafa náð 20 ára aldri og helst að hafa meirapróf. Um er ræða gefandi og krefjandi starf fyrir bæði kvenmenn og karlmenn. Upplýsingar gefur undirritaður á slökkvistöðinni eóa f síma 453 5425. Brunavarnir Skagafjarðar Slökkvistöðin 550 Sauðárkrókur Sími: 453 5425 Fax: 453 6062 brunavarnir@skagafjordur.is Skagafjörður RÁ0HÚS SKAGFIRÐINGABRAUT 21 Skiþulags- og bygginganefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykktu á fundi sínum 19. seþt. sl. að setja Villinga- nesvirkjun inn á aðalskipulag. Fundargerð nefndarinnar verður til afgreiðslu á fundi sveitarstjórnar á morgun, 5. október. Þessi framganga meirihlutaflokkanna gengur á skjön við málflutning fulltrúa þeirra síðastliðið vor. Sérstaklega kemur á óvart afstaða Samfylkingarinnar sem gengur þvert gegn nýbirtri rammaáætlun flokksins um náttún'ernd þar sem jökulsárnar í Skagafirði eru taldar uþþ sérstaklega með þeim svæðum sem nú þegar eigi að tryggja verndun á. Heimildirfyrir Villinga- nesvirkjun verði felldar á brott úr lögum Á sveitarstjórnarfundi á morgun verður einnig tekin fyrir tillaga frá VG um að sveitarstjórn „beini því til Aiþingis að felldar verði á brott allar heimildir í lögurn fyrir virkjun við Villinganes í Skagafirði." Virkjunaraðilar við Vill- inganes hafa sótt ntjög fast að sveitarstjórnirnar í Skagafirði settu N'illinganesvirkjun inn á aðalskiþulag sveitarfélaganna en það er undanfari þess að framkvæmdaleyfi verði veitt. Með því að fella heimildir fyrir virkjuninni út úr lögum gefst tækifæri til að láta fara fram endurmatá verndargildi, ffam- tíðarnýtingu og umgengni við jökulsárnar í Skagafirði. Vaxandi andstaða er í héraðinu við virkjanir í jökulsánum, en aukinn vilji þess í stað til að vernda þær ásamt ósþilltri náttúru þeirra og nýta svæðið með vistvænni hætti. Til að það megi verða þarf að fella niður allar heintildir fyrir Villinga- nesvirkjun og endurskoða allar hliðar þess máls. Staðreyndir málsins Með lögunt nr. 48/1999 var iðnaðarráðherra m.a. heimilað að leyfa gerð Villinganes- virkjunar. Á árunum 1999-2001 var unnin skýrsla um mat á umhverfisáhrifum fyrirhug- aðrar Villinganesvirkjunar og var það staðfest af Skipu- lagsstofnun hinn 24. október 2001 með nokkrum athuga- semdum. Skýrslan var harðlega gagnrýnd og m.a. talið að hún byggðist á takmörkuðum og úreltum gögnum, hvorki væri metinn inn fórnarkostnaður óspilltrar náttúru né mikilvægi gljúfranna og jökulsánna fyrir fljótasiglingar og aðra ferða- þjónustu 1 Skagafirði, sem byggist á sögu, menningu og ósþilltri náttúru. Það var og gagnrýnt að ekki voru rannsökuð áhrif hugsan- legrar stíflunar jökulsánna á lífríki og náttúrufar á vatna- svæði Héraðsvatna neðan stíflustæðisins og á grunnsævi 1 Skagafirði. Úrskurður Skipu- lagsstofnunar var kærður til Umhverfisráðuneytisins sem staðfesti úrskurðinn og heim- ilaði framkvæmdina fyrir sitt leyti 5. júlí 2002. Þar með hafa leyfishafar Villinganesvirkjunar fengið öll tilskilin le>rfi opinberra stjórn- valda nema sveitarstjórnanna í Skagafirði. Hleypum Villinganes- virkjun ekki lengra Fólk virðist vera misjafnlega vel upplýst um stöðu Vill- inganesvirkjunar og þýðingu þess að hún fari inn á aðalskiþulag með þeim leyfum sem þegar eru fengin. Mikla athygli vöktu til að rnynda ummæli iðnaðarráð- herra og formanns Framsókn- arflokksins um málið í fréttum NFS 28. seþtember síðastlið- inn. Sþurningu fréttamanns um það hvort til greina kæmi að virkja jökulsárnar í Skagafirði svaraði hann á þessa leið: „Jökulsárnar í Skagafirði hafa ekki fengið, það hefur ekki verið veitt leyfi til þess. Það hafa að vísu verið veitt rannsóknaleyfi í tengslum við Villinganes, en það hefur ekki verið gert við Skatastaði.“ Það verður að teljast með ólíkindunt að starfandi iðn- aðarráðherra skuli ekki vera betur upplýstur eða geta farið með rétt mál frammi fyrir alþjóð um þau ley'fi og afgreiðslur sem þegar hafa verið veitt fyrir Villinga- nesvirkjun. Flokksbróðir ráðherrans og kaupfélagsstjóri KS, sem er aðili að Villinganesvirkjun, var hins vegar ekki í neinum vafa hvar málið væri statt 1 ræðu sinni á aðalfundi kaupfélagsins vorið 2004: „Lokið er undir- búningsvinnu vegna byggingar 33 MW virkjunar við Villinga- nes. Umhverfismat hefur verið unnið og samþykkt af ráðherra. Mikilvægt er að sveitarfélögin gangi sem fyrst frá staðfestu aðalskipulagi." Þarf að segja nteira? Bjarni Jónsson Verkefnastjóri hjá Gagnaveitu Skagafjarðar Stjórn Gagnaveitu Skagafjarðar auglýsir eftir verkefnastjóra til að annast uppbyggingu háhraðanets í Skagafirði. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og reynslu á sviði upplýsingatækni, markaðsmála og rekstrar. Starf verkefnisstjóra felst m.a. í gerð áætlana, útboðsgagna og kynningarefnis til íbúa í Skagafirói um lagningu Ijósleiðara í öll hús á Sauðárkróki og uppbyggingu háhraðatenginga í dreifbýli Skagafjarðar. Um er að ræða tímabundna ráðningu til loka árs 2008. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Verkefnastjóri mun vinna undir stjórn sviðsstjóra Markaðs- og þróunarsviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Allar nánari upplýsingar veitir Áskell Heiöar Ásgeirsson sviösstjóri hjá Sveitarfélaginu Skagafirði í síma 455 6000 eða í netfang heidar@skagafjordur.is og Páll Pálsson veitustjóri Skagafjarðarveitna hf. í síma 453 5257 og í netfang pp@skv.is . Umsóknarfrestur er til 20. október 2006 Umsóknum skal skila í Ráðhúsið á Sauðárkróki, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki, merkt Verkefnisstjóri Gagnaveitu. Gagnaveita Skagafjarðar er einkahlutafélag sem stofnað var í ágúst 2006 af Kaupfélagi Skagfiröinga, Skagafjarðarveitum, Sveitarfélaginu Skagafirði og Byggðastofnun. Tilgangur félagsins er að byggja upp háhraðanet á Sauðárkróki á árunum 2007 og 2008 og vinna samhliða að aðgerðum til að bæta háhraðatengingar til íbúa í dreifbýli Skagafjarðar. Markmiðið með stofnun fyrirtækisins er að bæta samkeppnishæfni Skagafjaróar sem búsetusvæðis með því að koma háhraðatengingum inn á sem flest heimili í Skagafirði á næstu árum og tryggja þannig aðgang að efnisveitum og netsambandi á við það besta sem gerist á landinu. Skagafjörður RÁÐHÚS SKAGFIRÐINGABRAUT 21

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.