Feykir - 04.10.2006, Qupperneq 5
36/2006 Feyldr 5
Gunnar Bragi Sveinsson og Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir skrifa
Félagsheimilið Miðgarður - vettvangur
menningarstarfsenii í Skagafirði
Undanfarnar vikur hefur
mikið verið rætt um
félagsheimilið Miðgarð og
þær framkvæmdir sem
fyrirhugaðar eru, á
forsendum samnings við
menntamálaráðuneytið.
Hér á eftir verður leitast við
að gera grein fyrir innihaldi
samningsins, verklagi við
hönnun, undirbúning
útboðsgagna og þeirri stöðu
sem sveitarstjórn stóð
frammi fyrir við opnun
tilboða í júlí.
Fyrir liggur samkomulag
menntamálaráðuneytis og
sveitarfélagsins Skagafjarðar og
Akrahrepps vegna uppbygg-
ingar menningarhúss í Skaga-
firði. Þar kenrur fram yfirlýstur
vilji að menningarhús í
Skagafirði verði tváþætt þ.e.
annars vegar uppbygging og
endurbætur á Miðgarði og
hins vegar, viðbygging og
endurbætur Safnahúss Skag-
firðinga á Sauðárkróki.
Samkomulag sem undir-
ritað var sumarið 2005 tekur
eingöngu til fjármögnunar
Miðgarðs og rniðað var við að
framkvæmdir skyldu hetjast
haustið 2005 og þeint yrði
lokið vorið 2006.
Verklag var síðan með þeirn
hætti að það var ekki fyrr en á
vordögum 2006 sem fyrrum
meirihluti ákvað að setja
framkvæmdina í útboð.
Heildarframlag ríkisins til
menningarhúss í Skagafirði, er
samkvæmt skýrslu sem lögð
var franr í maí 2004 og lögð er
til grundvallar samkomulags
\'ið menntamálaráðuneyti, er
277 m.kr. þar af er eingöngu
búið að semja um fjármögnun
vegna Miðgarðs og eftir er að
semja um endanlegar fjár-
veitingar vegna menningarar-
húss á Sauðárkóki, en sam-
kvæmt skýrslunni sem gerð var
árið 2004 er ljóst er að sú tala
verður ekki hærri en 217 m.kr.
Samkomulagið um Mið-
garð miðast við að heildar-
kostnaður þ.m. talið hönnun,
búnaður og allur annar
kostnaður verði ekki hærri en
100 m.kr. Hlutdeild ríkisins er
samkvæmt samningnum 60%
og getur hæst orðið 60 m.kr.
Það þýddi í raun að til að ná
þessum 60 m.kr. þyrfti að
framkvæma fyrir 100 m.kr.
Hlutur Sveitarfélagsins Skaga-
fjarðar yrði með því 33 m.kr.
og Akrahrepps 7 m.kr.
Það virðist vera að undir-
búningur að verkinu hafi verið
með þeim hætti að reynt var að
láta útboðið passa inn í 100
m.kr. rammann. Þegar tilboð-
in voru opnuð hijóðaði lægsta
tilboðið upp á rúmar 110 m.kr.
en það hæsta rúmar 160 rn.kr.
Verkið var þá kornið 10 -50
m.kr. fram úr því sem lagt var
af stað með. Við opnun
tilboðanna komu einnig fram
sterkar vísbendingar um að
ýmsu væri ábótavant varðandi
útboðsgögnin. Ákveðið var því
að hafna báðum tilboðum og
kafa rækilega ofan í útboðs-
gögnin.
Hér er rétt að staldra við og
nefna það að hvorki tæknideild
né byggðarráð hafði fengið
tækifæri til að fara yfir út-
boðsgögn áður en verkið fór í
útboð. Við nánari skoðun kom
einnig í Ijós að eftir var að bæta
hönnunarkostnaði við eða um
10 m.kr. Við það er heildar-
kostnaður þá kominn í 121
m.kr. og hlutur sveitarfélagsins
Skagafjarðar orðinn rúmar 50
m.kr. Hér er eingöngu um að
ræða tilboðsverðið + hönn-
unarkostnað.
Við )4irferð tæknideildar á
útboðsgögnum í sumar kom í
Ijós að verkþættir er kosta allt
að 30 m.kr. vantar í ffam-
kvæmdina. Meðal þeirra má
nefna innréttingar og tæki í
eldhús, rafmagn fyrir loft-
ræstikerfi og lokur, glugga og
opin fög, rif á eldra loftræsti-
kerfi ofl. Ásamt því að liðinn
“ófyrirséð” vantaði inn í
áætlunina og m.v. umfang
verksins má áætla þann lið unt
15 m.kr. Þá þarf einnig að gera
ráð fyrir eftirliti á verktímanum
eða um 3 m.kr. Verkefnið
Miðgarður - menningarhús er
þá ekki lengur 100 m.kr.
framkvæmd eins og samn-
ingurinn gerir ráð fyrir heldur
170 m.kr. og hlutur Sveitar-
félagsins Skagafjarðar ekki
lengur 33 m.kr. heldur 90 m.
kr.
Hann er orðinn þrefalt það
sem upphaflega var áætlað.
Eftirfarandi tafla sýnir svo ekki
verður um villst um hve háar
fjárhæðir er að ræða og
mikilvægi þess að taka
verkefnið til endurskoðunar
m.t.t. kostnaðar sveitarfélags-
ins.
Fyrirsjáanlegur kostnaóur ef fariö yrði af staó á grundvelli útboðs án breytinga
Tilboð 110.900.000
Hönnun 10.000.000
Eftirlit 3.000.000
óhjákvæmilegar viðbætur 17.800.000
Aörar viðbætur og viðhald 11.500.000
Ófyrirséð 15.000.000
Samtals 168.200.000
Hlutur Sv.fél. Skagafjarðar 89.800.000
Áætladur kostnaður eftir breytingar að tillögu meirihluta sveitarstjórnar
Tilboð I óbreytt verk 110.900 000
Hönnun 10.000.000
Eftirlit 3.000.000
Valdar viðbætur 11.300.000
Aörar viðbætur og viöhald 0
Ófyrirséð (14%) 10.500.000
Viðbótarhönnunarkostnaður 2.400.000
Hækkun vegna breytinga 5.000.000
Liðir felldir út (lyfta, efrih, glerh.) -35.500.000
Samtals 117.600.000
Hlutur Sv.fól. Skagafjaröar 47.800.000
Lækkun kostn. Sv.fél. Skagafj. 42.000 000
Bent hefur verið á að hluti af
því sem tæknideild telur vanta
sé „bara” viðhald og eigi ekki
að taka með í reikninginn. Séu
þeir liðir teknir út er hlutur
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
enn tæpar 75 m.kr. eða rúmlega
t\'öfalt það sem áætlað var.
Sveitarstjórn stóð því
ffammi fyrir því að í stað þess
að setja 33 m.kr. í fram-
kvæmdina er upphæðin komin
í 75-90 m.kr. rniðað við
fyrirliggjandi teikningu. Hvergi
hefúr komið fram hvernig taka
átti á viðbótarverkum þegar
framkvæmdir yrðu komnar vel
á veg og ekki aftur snúið. Slík
vinnubrögð eru ekki ásættanleg
og bera vitni um mjög óábyrga
stjórnsýsluhætti sem nteiri-
hlutinn leitast við að verði ekki
viðhafðir á yfirstandandi kjör-
tímabili.
Meirihluti Framsóknar-
flokks og Samfylkingar telur
ekki verjandi að eyða skattfé
borgaranna með þessum hætti
og fer því þá leið að skoða
möguleika á að ná markmiðinu
um glæsilegt menningarhús
með breyttri hönnun þar sem
allir verkþættir verða teknir inn
í. Því var ákveðið að taka
verkefnið til gagngerrar endur-
skoðunar á næstu vikum.
Sveitarstjóra og tæknideild \'ar
fálið, í samvinnu við hönnuði,
að Ieita leiða til að ná niður
kostnaði við framkvæmdina án
þess að í nokkru verði slegið af
kröfum um gæði hússins sem
menningarmiðstöðvar með
áherslu á tónlistarflutning af
ýmsum toga.
Við þessa athugun verður
viðþaðmiðaðaðheildarframlag
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
verði sent næst upphaflegri
viðmiðun. Allri hönnunar-
vinnu á að vera lokið um mán-
aðarmót október / nóvember
n.k. þannig að hægt verði að
ganga frá samningum urn
verkið eða einstaka verkþætti
og framkvæmdir geti hafist á
þessu ári.
Meirihluti Framsóknar-
flokks og Samfylkingar leggur
áherslu á að menningarhúsið
Miðgarður verði glæsilegt og
sveitarfélaginu til sóma hvort
heldur sem litið er til hönnunar,
verklags eða kostnaðar.
Gunnar Bragi Sveinsson
oddviti Framsóknarflokks
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir
oddviti Samfylkingar
netkönnun
Hvað finnst þér að eigi að
gera við Kárahnjúkavirkjun?
Mér finnst upplagt að fylla lónið og
fara að framleiða rafmagn! 150.4%)
Notist sem skjólveggur fyrir þá sem
vilja tina fjallagrös! (3.6%)
Verðilátin standa ónotuð sem minn-
ismerkium heimsku virkjunarsinna!
(35.4%)
Verðilátin standa ónotuð sem minn-
ismerkium geggjun náttúruverndar-
sinna! (3.6%)
Notistsem stúka fyrirhið öfluga
knattspyrnulið Fjarðabyggðar!
(2.7%)
Æ, mér gæti ekki staðið meira á
sama! (4.2%)
» Spurt á Skagafjördur.com
molar
Vildu komast í
Skagafjörð með hraði
Nýlega var skrifað undir
stofnanasamning milli Kjalar,
stéttarfélags starfsmanna
í almannaþjónustu og He
ilbrigðisstofnunarinnar á
Blönduósi. Samningurinn
nær til allra starfsmanna á
Heilbrigðisstofnuninni sem
starfa og njóta ráðningakjara
samkvæmt kjarasamningi
Kjalar og telst hluti hans.
Samningsaðilar eru m.a.
sammála um að skipa
vinnuhóp, tvo frá hvorum
aðila, sem hefur það hlutverk
að bera saman launakjör
á Heilbrigðisstofnunar á
Blönduósi við sambærilegar
heilbrigðisstofnanir. Mark-
miðið með könnuninni er
að útvega samanburðarhæfar
upplýsingar um Iaunakjör
í sambærilegum störfum í
því skyni að leiða í ljós hvort
launaþróun er mismunandi
milli stofnana og/eða
landshluta.
www.huni.is
Hólaskóli ræktunarbú
ársins2006
í Skagafirði
Hólaskóli hlaut titilinn
ræktunarbú ársins 2006 í
Skagafirði á Uppskeruhátíð
hestamanna í Skagafirði.
Valið byggir á árangri
Hólahrossa í kynbótasýn-
ingum, gæðingakeppnum
og hestaíþróttum. Hæst
ber að fimm kynbótahross
frá skólanum komu fram
í einstaklingssýningum á
Landsmótinu og má nefna
að Ösp frá Hólum sigraði
í flokki 6 vetra hryssna. Þá
náðu Þerna (tölt), Bragi (tölt)
og Ester (skeið) glæsilegum
árangri á árinu.
www.holar.is