Feykir


Feykir - 04.10.2006, Qupperneq 6

Feykir - 04.10.2006, Qupperneq 6
6 Feykir 36/2006 Helga Margrét Guðmundsdóttir skrifar___ Kaupa, kaupa, kaupa - mikill er máttur auglýsinga Móðir tekur sig til að fara út að gera innkaup. Lítill snáði spyr þá mömmu sína hvort þau séu að fara í Hagkaup. Jú, hann vill fara þangað af því að þarfinnst íslendingum skemmtilegast að versla. Móðírin verður agndofa yfir sannfæringarkrafti barnsins en gerir sér svo grein fyrir því að barnið hefur þennan frasa orðrétt úr auglýsingu. Barnið hefur enga ástæðu til að rengja það sem fyrir því er haft. Móðirin rifjar upp þegar snáðinn grenjaði úr sér augun í stórmarkaði um daginn því hann trúði því að hann fengi kraft úr kókómjólk. Dæmið hér að ofan er aðeins eitt dæmi at' mörgum um það hvernig auglýsendur höfða sífellt meira beint til barna og virðast hafa uppgötvað hversu næm þau eru fyrir áróðri. Já, markaðurinn og þeir sem honum stýra hafa nefnilega uppgötvað hve móttækileg börn eru fyrir því sem boðað er og síendurtekið fyrir augum þeirra og eyrum. Er það ekki þannig sem börn læra? Ung börn allt að níu ára aldri hafa ekki þróað með sér gagnrýna hugsun og eru á viðkvæmu mótunarskeiði. Þau skilja ekki hvað auglýsing er og foreldrar gera sér heldur ekki grein fyrir því að á bak við auglýsingagerð stendur heill hópur manna sem með sérþekkingu sinni finnur út hvað virkar best á börnin - hinn nýja stóra markhóp. Þessir aðilar nota sálfræðikenningar og ýmis önnur vísindi til að finna veikan blett á neytendum og hvað virki nú best til að varan seljist. Því það er jú takmarkið með auglýsingunni ekki satt? Eru börn berskjölduð? Æ fleirum finnst að auglýsendur séu að seilast meira og meira inn á viðkvæmt svið eða jafnvel bannsvæði og sífellt áreiti auglýsinga trufli foreldra í uppeldishlutverkinu því það er erfitt að halda börnum frá þeim miðlum sem þykja sjálfsagðir á hverju heimili í upplýsingasamfélagi nútímans. Inn um lúguna streyma svo auglýsingapésar og boðskapurinn er endurtekinn reglulega bæði í útvarpi og sjónvarpi um hvað sé nauðsynlegt að fá og eiga. Þessi eini sanni “boðskap- ur” skellur eins og ílóðbylgja á börnum hvort sem þau eru við morgunverðarborðið, í bílnum eða á leið í háttinn. Foreldrar sem eru á hlaupum með börn sín milli staða finna vanmátt sinn gegn ofurefli auglýsenda og nýrra aug- lýsingamiðla og eru oft á tíðum grandalausir þar til þeir lenda í þrætum við barnið í stórmarkaðnum um hvað þeim sé fýrir bestu. Gleði eða brostnar væntingar Sumt af þeim áróðri sem viðhafður er í auglýsingum getur líka brenglað verðmætamat barna og ýtir oft og tíðum undir óheilbrigðan lífsstíl. Hvenær ætlar t.d. einhver að ganga fram fyrir skjöldu og stöðva í eitt skipti fyrir öll ólöglegar bjór og vín auglýsingar í fjölmiðlum? Lögbrotið gæti ekki verið augljósara en samt fáum við ekkert að gert. öll höfum við líka heyrt sorglegar sögur af fjölskyldu- deilum í kringum jól og páska. Deilur sem eiga rætur sínar að rekja til auglýsinga þar sem ungum börnunum er talið trú um að þau vanti, þurfi að fá, og verði að eiga, ákveðna hluti til að teljast gild eða verðug í sínu félagasamfélagi. Auglýsingar geta nefnilega byggt upp miklar væntingar hjá börnum sem oft enda í grátköstum þegar í ljós kemur að þær standast ekki. Slíkar uppákomur og vonbrigði barnanna eru mikill streitu- valdur hjá foreldrum sem hefur áhrif á samveru og gleði innan fjölskyldunnar. Einhverjir foreldrar hljóta líka að hafa fórnað höndum þegar fermingarbarnið setti upp fýlusvip að afloknu gjafaflóðinu og skellti hurðum yfir því hvað það fékk ömurlegar gjafir - miðað við hina - eða miðað við það sem lagt var upp með í auglýs- ingunum. Kenna þarfbörnum auglýsingalæsi Það getur vissulega verið erfitt að vera foreldri og vilja veita barninu sínu það besta. Allir foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja stuðla að hamingju- sömum börnum og geta veitt þeim sjálfstraust og öryggi í lífmu. Snýst ekki uppeldi einmitt um að undirbúa börnin undir lífið og þann nútíma sem við lifum í - nútíma þar sem freistingar og “tilbúin tæki- færi” eru á hverju götuhorni? Sumum kann að þykja sterkt til orða tekið en foreldrar róa í dag ákveðinn lífróður fyrir friðhelgi til að ala upp börn sín án áreita markaðar- ins. Sú staðreynd að seljendur eru reiðubúnir að eyða stórum fjárhæðum í auglýsingar sem miða að því að skapa löngun og flytja tilbúinn boðskap frekar en upplýsingar ætti að kveikja á öllum viðvörunar- bjöllum í mælaborðum í stjórnstöð heimilisins. Þó við foreldrar séum oft grandalaus fyrir öllu því áreiti sem börnin okkar verða fyrir á hverjum degi þurfum við samt að axla ábyrgð og kenna börnunum okkar að þreifa sig áfram í því umhverfi sem þau búa í. Við þurfum að kenna þeim auglýsingalæsi sem felst í gagnrýnni hugsun, sýna þeim hvar brögð eru í tafli og kynna þeim brögðin sem beitt er til að rugla þau í ríminu. Efvið foreldrar erum betur á verði, ræðum við börnin okkar um hvað auglýsing er, tryggjum við að þau verði ekki skotmark á víg\'elli gróðra- hyggjunnar. Helga Margrét Guðmundsdóttir, Verkefnastjóri hjá Heimili ogskóla Gísli Rúnar Konráðsson skrifar Um virkjanamál - blekkingarleikur Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar ritaði ég grein í Feyki, þar sem ég m.a. varaði fólk við því að trúa málflutningi frambjóðenda Framsóknar og Samfylkingar, þess efnis að ekki yrði ráðist í virkjanir í Skagafirði næstu 10-15 árin a.m.k. í málefnasamningi þess- ara flokka um meirihlutasam- starf er ekkert minnst á virkjanamál en nú, um fjór- um mánuðum eftir kosning- ar, afhjúpa þeir þessar lygar sínar blygðunarlaust með því að samþykkja í skipulags- og bygginganefnd að setja Villinganesvirkjun inn á aðalskipulag. Héraðsvötn ehf. eiga virkjunarréttinn við Villinganes en það félag er sem kunnugt er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og Rarik. Það virðist vera að þeim sem ráða ferðinni hjá KS hafi þótt nógu lengi beðið og kippi nú í þá spotta sem fá meirihlutafulltrúana í sveitarstjórn til að dansa eins og strengjabrúður. Stóriðju- ogvirkjanastefna Framsóknar, með tilheyrandi náttúruspjöllum, hefur svo sem lengi verið ljós, þrátt fyrir fagurgala fyrir kosningar. Lygavefur Samfylkingarinnar er ósvífnari að því leyti, að frambjóðendur hennar tóku enn sterkar til orða um náttúruverndarmál í kosningabaráttunni og svikin því stærri og meiri. Og til að kóróna ffam- göngu Samfylkingarinnar í þessum málum, átti fyrrnefnd afgreiðsla skipulags- og bygginganefndar um Vill- inganesvirkjun sér stað að- eins örfáum dögum eftir að Samfylkingin kynnti stefnu sína í umhverfismálum á landsvísu. í þeirri stefnu segir m.a. orðrétt: „...Tr)'ggja ffiðun Skjálfandafljóts, Jökulsánna í Skagafirði (leturbr. mín), Torfajökulssvæðisins, Kerl- ingafjalla, Brennisteinsfjalla og Grændals....“ Illa fara þar saman orð og athafnir! Meirihlutinn talar um að ekki standi til að virkja, aðeins rannsaka og skoða nánar. Öllum rannsóknum vegna Villinganesvirkjunar er hins vegar lokið, umhverfismati sömuleiðis og eftir að hún er komin inn á aðalskipulag þarf sveitarstjórn aðeins að veita framkvæmdaleyfi til að hægt sé að hefjast handa. I lögum um aðalskipulag segir eftirfarandi: „I aðal- skipulagi setur sveitarstjórn fram stefnu sína um land- notkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélag- inu til minnst 12 ára.“ Það þarf því enginn að velkjast í vafa um hvað þessir flokkar ætla sér í þessum efnum. Ég skora á alla sem láta sig þessi mál varða að láta í sér heyra á einn eða annan hátt. Bregðumst fljótt við. Björgum ásýnd og ímynd Skagafjarðar og myndum breiðfylkingu um verndun skagfirsku jökulvatnanna ásamt Vallhólminum og Eylendinu. Gísli Rúnar Konráðsson.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.