Feykir - 04.10.2006, Blaðsíða 7
36/2006 Feykir 7
Rabb-a-babb
Nafn: Fríðrik Margeir Friðríksson
Árgangur: 1960.
Fjölskylduhagir: Kvæntur Sigur-
laugu Valgarðsdóttur og við eigum
þrjú börn, Helga Frey, Völu Hrönn og
Maríönnu.
Starf / nám: Sviðstjóri fjármálasviðs
Sveitarfélagsins Skagafjarðar (súpu-
teningur í skuldasúpunni).
Bifreið: Hyundai Santa Fe.
Hestöfl: Á annað hundraðið, eins og
eru í dilknum hans Halla ÍEnni á Lauf-
skálaréttardaginn.
Hvað erí deiglunni:Á meðan ég svara
þessum spurningum ætla ég að gera
mikið úrlitlu.
Hvernig hefurðu það?
Pínu rosalega fínt.
Hvernig nemandi varstu?
Eftirminnilegur.
Hvað er eftirminnilegast frá fermin-
gardeginum?
Köflóttu jakkarnir sem við strákarnir
vorum í.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðirstór?
Stærri en ég erídag.
Hvað hræðistu mest?
Lofthræðsluna sem er ástæðan fyrir
hæðarskorti mínum í dag.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir
(eða besta)?
Mig minnir að fyrsta platan sem ég
keypti hafi verið með Demis Rousso,
grískum flagara.
Hvaða lag ertu líklegastur til að
syngja í Kareókí?
What's new Pussicat?
Hverju missirðu helst ekki af í sjón-
varpinu (fyrir utan fréttir)?
Horfi ekki mikið á sjónvarp, en gæti
setið yfirglæpa- og spennuþáttum
Besta biómyndin?
Kúrekar norðursins þar sem ég er í
aukahlutverki.
Bruce Willis eða George Clooney
/ Angelina Jolie eða Gwyneth Pal-
trow?
Bruce Willis og Angelina Jolie
Hvað ferhelstí innkaupakörfuna sem
ekki erskrifað á tossamiðann?
Óbarinn harðfiskur.
Hvað er ímorgunmatinn?
Ekkert.
Uppálialds málsháttur?
Lágur þröskuldur hefur langan
mann fellt.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mesttilþín?
Simpson.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhús-
inu?
Grillaðirágræddiruxahalaráhumar-
grey, gljáðir með fíflamjólk og bornir
fram á tröllasúrublaði. Skreytt með
gatinu í ananashringjunum.
Hver er uppáhalds bókin þín?
Bankabók konunnar minnar.
Efþú gætir hoppað upp í flugvél og
réðirhverthún færi, þá færirðu...
...Til útlanda.
Hvaðfer mest í taugarnar áþérí fari
þínu?
Óreiðan, bullið og vitleysan
Hvað fer mest í taugarnar áþérí fari
annarra?
Hroki, bull og vitleysa
Enski boltinn - hvaða lið og af
hverju?
Arsenal af því að Biggi Rafns sagði
mér það fyrir 35 árum og segir það
enn.
Hvaða iþróttamanni / dómara hef-
urðu mestar mætur á ?
Molduxunum félögunum mínum.
Það er ekki hægt að gera upp á milli
þessara einstöku kappa.
Heim íBúðardal eða Diskó Friskó?
Diskó Friskó.
Hver var mikilvægasta persóna 20.
aldarinnar að þínu mati?
Einstein.
Efþú ættir að dvelja aleinn á eyði-
eyju, hvaða þrjá hluti tækirðu með
þér?
Tvær dollur með hangifloti og sviss-
neskan vasahnífmeð öllum græjum
og reyni svo að hanga á flotinu.
Hvað er best í heimi?
Að eiga góða fjölskyldu og vini.
íþróttafréttir
Ungmennafélagid Tindastóll
Hagnaður af rekstri
körfuknattleiksdeildar
Halldór Halldórsson kíkti óvart inn á heimasíðu Manchester United meðan Ijósmynd-
ari Feykis smellt af honum mynd. Mynd: ÓA B
Powerade-bikarinn
Sigur
og tap
Tindastólsmenn gerðu
sér lítið fyrir og lögðu lið
Snæfells í Stykkishólmi
í kvöld og slógu heima-
menn þar með út úr
Powerade-bikarnum.
Staðan í leikhléi var
48-38 fyrir heimamenn í
Snæfelli en Stólarnir komu
sterkir til leiks í síðari
hálfleik og eftir að Justin
Shouse fékk sína fimmtu
villu þá sigu Stólarnir
framúr og tryggðu sér sigur
og sæti í annarri umferð
Powerade-bikarsins. Loka-
tölur voru 83-90.
Leikurinn mun hafa
verið vel leikinn og hin
besta skemmtun og nýr
leikmaður Tindastóls,
Lamar Karim, gerði sér
lítið fyrir og skoraði 45 stig
í leiknum.
Stig Tindastóls: Lamar 45,
Steve 20, ísak 12, Gulli 5,
Bjarni 4, Helgi og Halli 2 stig
hvor.
Tap í Keflavík
Stólarnir voru slegnir út
úr Powerade-bikarnum
á sunnudagskvöldið eftir
að hafa mætt sterku liði
Keflavíkur.
Leikurinn var jafn framan
af en Keflvíkingar þó
skrefinu á undan. 1
hálfleik var staðan 41-36
en lið Tindastóls lék ekki
vel í síðari hálfleik og
Keflvíkingar völtuðu yfir
Stólana. Skotnýting Stóla
var slæm og má sem dæmi
nefna að liðið gerði aðeins
5 3ja stiga körfur úr 27
tilraunum.
Stig Tindastóls: Lamar 22,
Steve 17, Gulli II, ísak 8,
Bjarni 2 og Helgi Viggós 2.
Á aðalfundi körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls
sem haldinn var í síðustu
viku voru eins og lög
gera ráð fyrir lagðir fram
reikningar fyrir síðasta
keppnistímabil.
Af lestri þeirra má sjá að
rekstur deildarinnar var í
góðu lagi. Tekjur umfram
gjöldvoru rúmlega 1.200.000
krónur.
Feykir hafði samband
við Halldór Halldórsson
formann körfuknattleiks-
deildar Tindastóls. Hann
sagði tekjur af rekstri
einkum skýrast af því að
rekstrarkostnaði var haldið í
algeru lágmarki.
„Þá voru færri leikir í
fyrra en verið hafa þegar
við erum í úrvaldsdeild
líkt og nú. Fjárhagsstaða
deildarinnar er nú þannig
að skuldir eru nokkuð
innan við milljón krónur
sem er ekki mikið miðað
við það sem verst var fyrir
nokkrum árum. Þá er rétt
að geta þess að á þarsíðasta
keppnistímabili varð einnig
afgangur af rekstri en sá
afgangur skýrðist að mestu
af niðurfellingu á skuldum á
móti styrktarsamningum.”
Af daglegunr rekstri
deildrinnar er það helst
að frétta að æfingar eru
hafnar af fullum krafti í
öllum flokkum. Halldór
segir nokkur vonbrigði með
að ekki tókst að manna
meistaraflokk kvenna sem
tekur ekki þátt í keppni að
þessu sinni.
Þá hefur Meistaraflokkur
karla þegar leikið tvo leiki
í Poweradebikarnum.
Leikur gegn Snæfelli vannst
nokkuð óvænt á útivelli en
síðan fengu Stólarnir skell
í Keflavík um helgina. „I
þeim leik kom berlega í ljós
að liðið hefur ekki næga
breidd,” segir Halldór, „og
því var tekin sú ákvörðun að
bæta við einum leikmanni
frá Serbíu. Allt bendir til að
sá leikmaður komi til liðs
við okkur um næstu helgi
eða svo. Þessi leikmaður lék
9 leiki með Hetti á síðasta
vori og stóð sig mjög vel og
væntum við því nokkurs af
honurn."
Félagaskipti fyrir þenn-
an mann gengu í gegn
nokkrum klukkutímum
áður en félagaskiptaglugginn
lokaðist á þann hátt að
eftir 1. okt tekur 30 daga
fyrir leikmenn frá evrópu
að skipta um félag. Raunar
er ekki allt frágengið með
þennan leikmann því enn
er eftir að koma honum inn
í landið en það getur tekið
nokkurn tíma.
smáauglýsingar Sendið smáauglýsingar til frirrar birtingar á feykir@krokur.is
Bíll til sölu
Honda CRV, US469, árgerd
10/2004, ekinn 42 þúsund km,
sumar- og vetrardekk. Ásett verð
kr. 2.750.000 - tilboð kr. 2.500.000.
Upplýsingar gefur Sigurður I síma
4538257/8648257.
Bíll til sölu
Til sölu vel með farinn Nissan
Double Cap 2005, með pallhúsi
og krók ek. 32 þús. Drifgóður og
kraftmikill. Verð 2.350.000,- Upp-
lýsingar veitirÁrni I s: 455-7100
eða 892-7707.
Jeppakerra til sölu
Jeppakerra með fjárgrindum og
PZ135 sláttuvél til sölu.
Upplýsingar I síma 453 5630,
892 7472,453 7472 eða 892 7482
Tapað/fundið
28. mai sl. tapaðist eyrnalokkur,
2cm á lengd og 0,5cm á breidd.
Hugsanlegirstaðir eru Fjölbrau-
tarskólinn,
Kaffi Krókur og Hliðarkaup.
Fundarlaun.
Ragna, sími: 453-6712.