Feykir - 22.03.2007, Síða 2
2 Feykír 12/2007
Hljómsveitin Hyp Razical frá Sauðárkróki
Hólar í Hjaltadal
Taka þátt í Músíktil-
raunum í annað sinn
Hljómsveit Hip Razical frá
Sauóárkróki tekur þátt
í Músíktilraunum 2007
fimmtudagskvöldið 22.
mars, í Loftkastalanum í
Reykjavík, en þar munu þeir
spila tvö frumsamin lög.
Um er að ræða undan-
keppni þar sem tvær af tíu
hljómsveitum komast áfram
til þátttöku í úrslitakvöldi
síðar í mars.
Hljómsveitina skipa Davíð
Jónsson, sem spilar á gítar og
syngur, Styrkár Snorrason
trommuleikari, Snævar Örn
Jónsson bassaleikari og Jón
Atli Magnússon gítarleikari.
Þeir eru allir frá Sauðárkróki
nema Jón Atli, sem er frá
Skagaströnd. Hann gekk til
liðs við hljómsveitina í vetur,
en var ekki með þeim þegar
þeirtókuþáttíMúsíktilraunum
síðast, árið 2005.
Allir í Loftkastalann á
fimmtudagskvöldið að styðja
Hip Iiazical - koma svo!!!
Leiðari
Kennum ábyrgci fjármálastefnu
Ég lasþað í einhverju blaðanna að 38%þeirra sem
stofnuðu til ofmikilla skulda og lentu í vanskilum gerðu
það afþekkingarleysi. Persónulega finnst mérþetta svolítið
há tala og vekur mann til umhugsunar um menntakerfið
okkar. Ég heflengi verið þeirrar skoðunar að kenna eigi
unglingum í 10 bekk áfanga sem hreinlega gæti heitið
“Lífið sjálft.”Þarna yrði kennt að taka lán, hvað eru
lántökugjöld?, hvaðþýðir verðtryggt og óverðtryggt
lán?, yfirdráttur og yftrdráttarvextir, húsnæðislán,
ábyrg fjármálastjórnun eiginfés, réttindi og skyldur á
vinnumarkaði og svona gæti ég haldið áfram.
Hér á landi erum við meðfullkomið menntakerfi en engu
að síður útskrifum við ungmenni út í lífið án þess aðþau
kunni þessi grundvallar atriði. Já svei mérþá ég ætla að
halda áfram. Hvernig á að sækja um vinnu, geraferilskrá,
koma fyrir, gera skattskýrslu og svoframvegis. í dag er
kennt allt mögulegt í skólum sem ég held að mætti víkja
fyrirþessum námi og þá mætti vonandi lækka þetta
hluifallþeirra sem skuldsetja sig um ofhreinlega afþví
að þeir vita ekki betur. Það er: Byrgja brunninn áður en
einstaklingurinn sekkur í skuldafen eigin vanþekkingar.
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nypren t. is
sími 8982597
Ohád fréttablað á Nordurlandi vestra ■ alltaf á midvikudögum
Feyklr
Útgefandi:
Nýprent ehf.
Borgarflöt I Sauöárkróki
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Biaðstjórn:
Árni Gunnarsson,
Áskell HeiöarÁsgeirsson,
Herdis Sæmundardóttir,
Ólafur Sigmarsson og
Páll Dagbjartsson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Guðný Jóhannesdóttir
feykir@nyprent.is
Sími 455 7176
Blaðamenn:
ÓliArnar Brynjarsson
feykir@krokur.is
Örn Þórarinsson
Prófarkalestur:
KarlJónsson
Askriftarverð:
275 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
325 krónur með vsk.
Áskrift og drcifing
Nýprenl ehf.
Simi 4557171
Umbrot og prentun:
Nýprent ehf.
Nýja hesthúsið vígt á föstudag
Séð yfirhluta afhesthúsinu á Hólum.
Mikið verður um dýrðir á Hólum í Hjaltadal nk. föstudag
því þá verður nýja hesthúsið tekið formlega í notkun.
Byrjað var á húsinu seint í júlí 2006 og hefur verið unnið
stanslaust síðan oft um 20 manns.
Starfsmenn hafa þó ekki fermetra að grunnmáli. I því
þurft að þvælast hver fyrir eru 196 stíur og er hver þeirra
öðrum því húsið er 3.350 um 7 ferm. að stærð. I
suðurenda hússins er svo
reiðskemma sem er um 800
ferm. Auk þess er í húsinu
kaffistofa, snyrtingar, geymsla
fyrir reiðtygi og heygeymsla.
Það er fyrirtækið Hesthólar
ehf. sem byggir húsið og leigir
það síðan Hólaskóla.
Búistervið miklu fjölmenni
til Hóla í tilefni af vígslu
hússins, en Landbúnaðarr-
áðherra býður til sam-
komunnar.
Þegar tíðindamaður
blaðsins leit við í hesthúsinu
nú í vikunni var fjöldi
iðnaðarmanna þar að störfum
við lokafrágang þessarar miklu
byggingar, en ljóst er að hún er
öll hin glæsilegasta og mun
enn bæta þá aðstöðu sem
Hólaskóli hefur uppá að bjóða.
ÖÞ:
Sérstaða og verndun Breiðafjarðar
Þriðja fræðsluerindi
náttúmstofa
Samtök Náttúrustofa á
íslandi, SNS, standa fyrir
fræðsluerindum í
fjarfundarbúnaði víða um
land. Á náttúrustofunum
starfar hópur fagfólks á
hinum ýmsu fræðasviðum
Alþingi
Jón Bjarna-
son talaði
mest
Þegar þingfundum 133.
löggjafaþings var frestað til
loka kjörtímabils fóru menn
að taka saman hversu
mikið var talað á yfir
standandi þingi. Alls voru
haldnir 96 þingfundir sem
stóðu yfir í 544
klukkustundir og 32
mínútur.
Þingmenn stjórnarand-
stöðu töluðu í 18.800 mínútur
og þarf af talaði Jón Bjarnason,
þingmaður Vinstri Grænna í
Norðvesturkjördæmi í 1509
mínútur eða rúmar 25
klukkustundir.
Til gamans má geta að
stjórnarliðar töluðu samtals í
4.800 mínútur.
og verður dagskrá erindanna
því fjölbreytt og spannar yfir
mörg fræðasvið.
Fræðsluerindin verða
haldin síðasta miðvikudag
hvers mánaðar, frá klukkan
12:15 - 12:45 og eru allir
hjartanlega velkomnir. Hægt
er að sjá fræðsluerindin á
eftirtöldum stöðum:
Sauðárkrókur: Farskólinn
Norðurlandi vestra;
Þriðja fræðsluerindið verður
miðvikudaginn 28. niars. Frá
Jdukkan 12:15 til 12:45. Að
þessu sinni mun Róbert A.
Stefánsson og Menja von
Schmalensee líffræðingar hjá
Náttúrustofu Vesturlands
halda fyrirlestur urn sérstöðu
og verndun Breiðaljarðar.
Alþingiskosningar 2007
Fijálslyndir birta lista
Frjálslyndi flokkurinn birti
framboðslista sinn til
alþingiskosninga sem
haldnar verða þann 12.
maí 2007 sl. þriðjudag.
Líkt og áður hafið komið
fram skipa alþingismennimir
Guðjón A. Kristjánsson, ísa-
fiðri, og Kristinn H Gunn-
arsson, Bolungarvík t\'ö efstu
sætin en síðan koma þær
Þórunn Kolbeins Matthías-
dóttir, menntunarffæðingur og
ráðgjafi Akranesi og Ragnheið-
ur Ólafsdóttir, öryrki og lista-
maðurAkranesi.
Listinn er svona:
1. Guðjón Arnar Kristjánsson
ísafirði
2. Kristinn H. Gunnarsson
Bolungarvík
3. Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir
Akranesi
4. Ragnheiður Ólafsdóttir,
Akranesi
5. Anna Margrét Guðbrandsdóttir
Sauðárkróki
6. Guðmundur Björn Hagalínsson
Flateyri
7. Brynja Úlfarsdóttir
Ólafsvík
8. Helgi Helgason
Borgarfirði
9. GunnlaugurGuðmundsson
Húnaþingi Vestra
10. LýðurÁrnason
Bolungarvík
11. Hanna Þrúður Þórðardóttir
Sauðárkróki
12. Páll Jens Reynisson
Hólmavík
13. SæmundurT. Halldórsson
Akranesi
14. Dóróthea Guðrún Sigvaldad.
Dalabyggð
15. Þorsteinn Árnason
Andakflsárvirkjun, Borgarfirði
16. Þorsteinn Sigurjónsson
Hrútafirði.
17. Rannveig Bjarnadóttir
Akranesi
18. Pétur Bjarnason