Feykir - 29.11.2007, Side 17
★
jóiímm
JÓLAMATUR ÍBOÐI...
Skagfirsku matarkistunnar
Það einfaldlega fylgir árstíðinni að gera vel við sig í mat og drykk í kring um jólin.
iólablaðið Feykir fékk meðlimi Skagfirsku matarkistunnar til liðs við sig og býður
því að þessu sinni upp á gómsætar uppskriftir unnar úr Skagfirsku hráefni.
HÓTEL VARMAHLÍÐ
Þriggja rétta
hátíðarkvöldverður
Appelsínumarineruð Hólableikja
FORRÉTTUR FYRIR 6
800 gr. Hólableikja
1 msk. hunang
2 tsk. salt
1 dl. sítrónusafi
Í4 tsk. svarturpipar nýmalaður
1 msk. ólívuolía
1 dl. appelsínuþykkni
20 stk. grcen piparkorn
1 msk. söxuðfersk mynta
Börkur og safi úr 1 appelsínu
Flakið og roðflettið bleikjuna. Skerið í þunnar
sneiðar og setjið í skál. Rífíð börkinn af
appelsínunni með rifjárni og setjið í sjóðandi
vatn í nokkrar sekúndur. Hellið á sigti og
kælið. Kreistið safann úr appelsínunni í skál og
blandið út í safann hunangi, salti, sítrónusafa,
ólívuolíu og appelsínuþykkni. Hrærið vel
saman, bætið berkinum útí og myljið grænu
piparkornin saman við. Hellið sósunni yfir
bleikjuna og blandið myntunni og svarta
piparnum vel saman við. Látið marinerast í
sólahring.
Skreytið með klettasalati og appelsínu-
sneiðum og berið fram með nýbökuðu brauði.
Hrossalund með gráðosti
AÐALRÉTTUR FYRIR 6
1,2 kg. skagftrsk hrossalund
1 gráðostur
Salt og pipar
Fitusnyrtið lundina mjög vel og skerið í 200 gr.
steikur. Ath. að kjötið er svo mjúkt að hægt er
að móta steikurnar með höndunum, t.d. þynna
þær. Snöggsteikið steikurnar við góðan hita á
báðum hliðum og kryddið með salti og pipar.
Færið steikurnar upp á eldfast fat og myljið
gráðost yfir hvern bita. (Magn eftir smekk).
Setjið steikurnar í 200°c heitan ofn og bakið
áfram í 5 - 7 mín.
Athugið að kjötið er mjög viðkvæmt og það
EFTIRRÉTTUR
Skyrdesert
(fyrir 8)
Vi pakki Haust kex
‘A pakki kanilkex frá Lu
100 gr. smjör
Kexið mulið og bræddu smjörinu blandað saman við. Þetta er
sett á ofnskúffu og bakað í 6 mín. við 180°c, síðan kælt og sett
í botninn á fallegum ábætisskálum.
Vi kg. óhrært skyr frá mjólkursamlagi KS
1 tsk. vanillusykur
4 msk. sykur
2egg
Þetta er allt hrært vel saman og sett ofan á kexið í skálunum.
Berjasulta að eigin vali sett yfir skyrið. Upplagt að nota
heimagerðar sultur ef þær eru til, s.s. bláberja, sólberja eða
jarðarberja. Einnig má sjóða upp á blönduðum frosnum berjum
og þykkja aðeins með tilbúinni sultu, kæla og setja yfir skyrið.
Að lokum er örlitlum rjómatopp sprautað yfir og skreytt með
ferskum berjum.