Feykir - 29.11.2007, Page 26
Méimm * ■*
*★
★ ★
**■
Undirbúum jólinmeð börnunum okkar
Gæðastundir
áaðventu
Aðventan er og á að vera
tími fjölskyldunnar til
þess að njóta þess að
vera saman og undirbúa
jólin. Það er ýmislegt sem
börnin geta gert til þess að
aðstoða við jólaundirbún-
inginn og gaman að setjast
niður með þeim og útbúa
jólanammi sem þau geta
síðan gefið afa og ömmu í
jólagjöf nú eða bara notið
sjálf um hátíðirnar. Þá
getur verið gaman að útbúa
merkimiðana á jólapakkana
úr trölladeigi og láta börnin
um þá vinnu. Eitthvaó sem
gerir jólapakkana persónu-
lega og skemmtilega.
KÓKOSkÚUJK.
SftLKtKAtfS
Hráefni:
4 dl. flórsykur
4 dl. kókósmjöl
3-4 msk. rjómi
3 msk. smjörlíki
I eggjahvíta
Aðferð: Öllu þeytt saman og
litlar kúlur gerðar og fryst.
Síðan baðað í rjómasúkkulaði
og má líka velta uppúr
kókós. Geymist í loftþéttum
umbúðum frarn að jólum.
KAfiAKteUVk
KATA AAAfifS
Hráefni:
3 dl. sykur
3 dl. sýróp
3 dl. rjómi
Þetta er allt sett saman í pott
og soðið til þess að byrja með
25 mínútur. Þá er gott að setja
karamellu í skeið og í kalt vatn,
ef hægt er að móta kúlu þá er
karamellan tilbúin annars þarf
hún að sjóða lengur.
Þegar karamellan er soðin er
gott að bæta við þetta tveimur
matskeiðum af smjöri og hálfri
teskeið af vanillu. Karamellan
er síðan kæld og þar næst
skorin í hæfilega bita. Sniðugt
er að festa kaup á sellafón og
pakka karamellunni inn.
ÖfttKtU YtfÞt
tAKA tKKI AP 6AKA
Botn:
200 gr. Síríus Konsum
suðusúkkulaði
90 gr. smjör
2 pk. Maltabitar
1 bolli Rice Crispies
Krem:
1/2 dl. rjómi
100 gr. Síríus rjómasúkkulaði
eða Síríus Konsum
50 gr. smjör
2 bollar flórsykur
Nóa kropp til skrauts
Svona gerum við!
Botn: Bræðið súkkulaðið og
smjörið. Myljið Maltabitana
í matvinnsluvél. Hrærið
Maltamylsnunni út í súkku-
laðiblönduna ásarnt Rice
Crispies og þrýstið blöndunni í
ferkantað form sem klætt hefúr
verið meðbökunarpappír. Kælið
botninn og útbúið kremið.
Krem: Hitið rjómann ogbntjið
súkkulaðið út í. Hrærið þar
til súkkulaðið hefur bráðnað
Bætið smjörinu út í og hrærið
flórsykurinn hægt saman við.
Látið krenrið standa í 12-15
mín. Smyrjið kreminu á kaldan
botninn, stráið Nóa kroppi yfir
og kælið þar til kremið hefur
stífnað. Skerið í bita.
ttf/AAÞTOq qOTT
ÚKSAPTHrftTV/n oq
SÚKKUPA PIKÚStWuM
Innihald:
200 gSíríus suðusúkkidaði
10 gr. plöntufeiti
150 gr. salthnetur
125 gr. Nóa súkkulaðirúsínur
Leiðbeiningar:
Bræðið suðusúkkulaðið og
plöntufeitina í vatnsbaði.
Brytjið salthneturnar og
rúsínurnar gróft og setjið út
í súkkulaðibráðina. Hrærið
saman og setjið í lítil form.
Kælið.
TKÖÞÞAÞttq
t>ftPt f AÖr/PUKoq tttfS
HtrfTuqrnt- ttss ap
ÚrtSÚA KtKSÓf/UPtejA
JÓPAMt KktMtPA
Hráefni:
300 gr. fínt borðsalt
6 dl. sjóðandi vatn
1 msk. matarolía
300 gr. hveiti
Setjið borðsaltið í skál og hellið
vatninu yfir ásamt matarolíu.
Hrærið hveitinu smátt og smátt
saman við þar til að leirkúla
hefur myndast. Hnoðið deigið
í höndunum þar til það er
orðið mjúkt og teygjanlegt.
Bætið við hveiti eftir þörfum.
Síðan er bara að móta
úr deiginu það sem hug-
myndaflugið býður upp á. Því
næst eru listaverkin bökuð og
fer bökunartíminn eftir þykkt
listaverkanna.
Þunnar fígúrur bakast
við 175 gráður í eina og hálfa
klukkustund en þykkar við
sama hita í 2-3 klukkustundir.
Hvaðætli jólasveinunum þyki gott?
Gefðu mér
gott í skóinn
Að gefa í skóinn er margra alda gamall siður sem
ekki var þó uppgötvaður af íslenskum jólasveinum
að neinu ráði fyrr en eftir 1950.
Eitthvað voru jólasveinarnir okkar ruglaðir í nminu til þess
að byrja með og byrjuðu þeir þá að gefa í skóinn 1. desember
og fram að jólum. Gerðu jólasveinarnir mun á bömum eftir
efnahag og fengu þau nku oft ótæpilega mikið í skóinn sem
síðarolli erfiðleikum á skólalóðinni.
Það var síðan upp úr 1970 að það tókst að tala sveinana
þrettán til og fá þá til að koma bara hvern á sínum degi og
hætta þessum stóru gjöfum heldur láta hjartað ráða, gefa
öllum svipað og vera nú ekki að hrúga of miklu sælgæti og
stórum gjöfum í litla skó.
Eitthvað hafa jólasveinamir nú stundum gleymt sér og
enn þann dag í dag eiga þeir til í að missa sig við einstaka
glugga og gefa dýrar gjafir. Jólablaðið vonar að þeir haldi sig á
mottunni þetta árið svo öruggt sé að öll börn á landinu sitji við
sama borð.
En fyrir þá sem ekki eru með röðina á hreinu og eða
hvenær þeir koma ákváðum við að setja það hér upp. í sviga
fyrir aftan eru hugmyndir um það hvað þeim þykir gott að fá í
gluggann sinn. Eins þykir þeim voðalega gaman að fá bréf frá
börnunum.
Að kveldi 11. desember kemur
Stekkjastaur (elskar piparkökur og mjólk)
Að kveldi 12. desember kemur
Giljagaur (finnst svo gaman að fá bréf)
Að kveldi 13. desember kemur
StÚfur (eralltafað reyna að stækka'
I fá vítamín)
Að kveldi 14. desember kemur
Þvörusleikir (óhrein sleif er það besta sem hann veit)
Að kveldi 15. desember kemur
Pottaskefill (ekki láta mömmu þvo pottinn)
Að kveldi 16. desember kemur
Askasleikir (hreinlega dýrkar laufabrauð með smjöri)
Að kveldi 17. desember kemur
Hurðaskellir (suðusúkkulaðimoli og mjólkurdreitill)
Að kveldi 18. desember kemur
Skyrgámur (elskar að sjálfsögðu skyr)
Að kveldi 19. desember kemur
Bjúgnakrækir (pylsa kæmi sér vel)
Að kveldi 20 desember kemur
Gluggagægir (gluggahreinsilögur og tuska)
Að kveldi 21. desember kemur
Gáttaþefur (ilmvatnið hennar mömmu)
Að kveldi 22. desember kemur
Ketkrókur (flís af keti eða bara álegg)
Að kveldi 23. desember kemur
Kertasníkir (kertastubbar em hans líf og yndi)