Feykir - 13.12.2007, Blaðsíða 5
47/2007 Feykir 5
íþróttafréttir
Tindastóll - Kefíavík 94-105
Stólarnir úr leik í
Bikarkeppninnni
Keflvíkingar lögðu lió
Tindastóls í parket í Síkinu
á sunnudaginn og eru
Stólarnir úr leik í Bikar-
keppni KKÍ og Lýsingar.
Leikurinn var ágæt
skemmtun, Keflvíkingar
leiddu en Stólarnir voru þó
alltaf í frakkalafinu á þeim
og ef ekki hefói verió fyrir
slælega frammistöðu
dómaraparsins hefðu
Stólarnir getaó gert betur.
Lokatölur voru 94-105 en
staðan í hálfleik var 50-54.
Keflvíkingar náðu strax
yfirhöndinni, léku hraðan bolta
og sölluðu niður fínum körfum.
Stólarnir náðu hins vegar upp
góðri baráttu þegar líða tók á
fyrsta leikhluta og náðu að trufla
sóknarleik gestanna og gengu
síðan á lagið í sókninni. Staðan
20-26.
Annar leikhluti gekk svipað
fyrir sig, Keflvíkingar bjuggu til
forskot og Stólarnir reyndu að
brúa bilið. Heldur jókst harkan
í leiknum og ljóst að dómarar
leiksins, Rögnvaldur og Davíð,
voru ekki alveg með á nótunum.
Serge Poppe fékk duglegt
kjaftshögg ffá einum leikmanna
Keflvíkinga án athugasemda
dómaranna og varð að fara með
kappann á sjúkrahús til að
bródera sarnan góðan skurð.
Staðan 50-54 í hálfleik.
í síðari hálfleik fór verulega
að halla á ógjæfuhliðina hjá
dómurum leiksins og sam-
rærnið í dómgæslunni lítið.
Leikurinn engu að síður
æsispennandi og Stólarnir að
gera ágæta hluti, Isak var
þrælgóður og Helgi Rafir seigur
í sókn og refúr í vörninni. Það
var helst Brown sem virkaði
daufur en Keflvíkingar virtust
niega gera nánast hvað sem var
við kappann án þess að vera
refsað. Staðan 73-80 að loknum
þriðja leikhluta.
Keflvíkingar héldu haus í
fjórða og síðasta leikhlutanum
og höfðu um 10 stiga forskot
þegar fimm mínútur voru til
leiksloka. Það bil náðu Stólarnir
ekki að minnka að ráði og
Keflvíkingar tryggðu sér
öruggan sigur, 94-105.
Leikmenn eiga hrós skilið
fyrir ágætan leik og góða
baráttu. Jón Norðdal var í
þrunrustuði hjá gestunum og
setti öll 11 skot sín innan teigs
niður, gerði 24 stig. Bobby
Walker var góður og gerði 28
stig. Hjá heimamönnum var
óvenju mikið jafnræði með
leikmönnum; stigahæstur var
Isak með 19 stig en hann kætti
áhorfendur með tveimur
glæsilega vörðurn skoturn í
síðari hálfleik. Samir fékk lítinn
frið utan 3ja stiga línunnar en
setti niður fyóra. Þá var Svavar
seigur og Serge Poppe var
sprækur eftir saum. Nýr
leikmaður Stólanna, Philip
Perry, sýndi ágæta takta og setti
niður 10 stig. Það háði nokkuð
liði Tindastóls að það vantar
stóran dreka undir körfuna,
Keflvíkingar hirtu 28 fráköst á
meðan Stólarnir tóku 18.
Tindastólsmenn mæta KR í
næsta leik í DHL-höllinni nú í
kvöld. Síðasti heimaleikur
ársins verður föstudaginn á
inilli jóla og nýárs en þá koma
nýliðar Stjörnunnar í heim-
sókn.
Stig Tindastóls: ísak 19, Brown
18, Svavar 16, Shaptahovic 12,
Poppe 11, Perry 10 og Helgi
Rafn 8.
Frjálsíþróttir ISkagafirði 2006-2007_
Endaspretturinn
í síðasta Feyki birtist pistill eftirÁsbjöm Karlsson umfrjálsíþróttir
í Skagafirói 2006-2007. Því miður klipptist aðeins aftan af
textanum og hér á eftir fylgir endasprettur pistilsins.
Afrekshópur unglinga FRÍ er
fámennur hópur þeirra
unglinga sem að dómi ung-
lingalandsliðsþjálfarans eiga
möguleika til að komast í allra
fremstu röð í heiminum í
frjálsíþróttum. í hópnum nú
er Linda Björk.
Mótahald í Skagafirði var
fjölbreytt að vanda. Stærstu
verkefiiin í sumar voru Mf-
aðalhluti og Bikarkeppni FRÍ, 2.
deild, sein fram foru á
Sauðárkróksvelli. önnur stór
mót voru Grunnskólamót
innanhúss og utan, Lands-
bankahlaup, Vomtót UMSS,
Fimmtarþrautamiót UMSS
og Norðurlandsleikar ungl-
inga. Framkvæmd mótanna
krefst mikilfar vinnu, en hér í
Skagafirði er stór hópur af
reyndu og duglegu fólki, sem
ávallt er tilbúið til starfa þegar
eftir er leitað, þessu fólki em
færðar kærar þakkir.
Knattspyrna - Tindastóll_
Innanhúsboltinn
Meistaraflokkur karla hefur
spilað tvo leiki í íslandsmótinu
innanhúss.
I ár er spilað eftir nýju fyrir-
komulagi sem kallast Futsal.
Fyrsti leikur var á heimavelli
og vannst stór sigur á Vinurn 12-
1. Liðið spilaði svo á Siglufirði s.l.
föstudag og tapaði á móti sterku
liði KS/Leiftur í hörkuleik 8-5.
Róbert þjálfari segist mest
rnegnis vera að nota ungu
leikmennina, 3. og2. flokk, til að
spila í þessu móti. Hann leggur
ekki mikla áherslu á þetta mót,
enda hefúr liðið einungis 50
mínútur á viku í íþróttahúsinu
til æfingar.
www.tindastoll.is
MITT LIÐ
Tækni- og umhverfissviðs
Sveitarfélagsins
Skagafjarðar þykir góður
briddsspilari og í hádeginu
mundar hann stundum
bandmintonspaða af stakri
Isnilld. En hann eins og
fleiri, hefur áhuga á enska
boltanum og með hvaða liði
ætli hann haldi?
-LiðiðmitterTottenhamHotspur
og hefur verið eins lengi og ég
man eftir mér. Fæðingarár
j mitt, 1951, verður Spurs í
fyrsta sinn Englandsmeistarar,
en minni mitt nær nú ekki svo
| langt aftur. Á árunum upp úr
1960 eru þeir með besta liðið
á Englandi.
Möguleikarnir þá, til að fylgjast
með ensku knattspyrnunni,
I voru ekki miklir en maður las
allt sem maður komst yfir.
j Fylgdist með fréttum úr margra
ij daga gömlum dagblöðum
sem á þeim tíma bárust
aðeins tvisvar í viku norður í
!j land. Árið 1962 veröur liðið
I aftur Englandsmeistari og
vinnur líka FA Cup. 1963
urðum við sigun/egarar í
j Evrópukeppni bikarhafa og
vorum fyrsta breska félagið
til að sigra í Evrópukeppni.
j Þá var stórstjarnan Jimmy
Greaves markahæsti
leikmaður Tottenham og
skoraði á einu tímabili 37
mörk. Þarna var grunnurinn
lagður og síðan hefur Spurs
verið mitt lið. Nokkur mögur ár
hafa auðvitað komið en liðið
j hefur alla tíð spilað léttleikandi
sóknarfótbolta sem gaman er
á að horfa. Ég viðurkenni að
varnarleikurinn er ekki alltaf
gallalaus og ég verð að sætta
meistarar aftur fyrr en 2011.
Eini tíminn sem erfitt hefurverið
að vera Spursari var tímabilið
1998 - 2001 þegar Arsenal
maðurinn Georg Graham var
stjóri - það voru erfið ár.
Hefur þú einhvern tíman lent
í deilum vegna aðdáunar
þinnar á umræddu liði ?
Maður lendir ekki í deilum út
af aðdáun sinni á Spurs - sú
aðdáun er óumdeilanleg.
Hefur þú farið á leik með
liðinu þínu ?
Já ég hef komið á White Hart ;
Lane - mætti þar með félögum f j
mínum úr Mill-Jón. Við sáum j
Newcastletekiðíkennslustund. 3
Áttum líka góðar stundir á Bell \
& Hare fyrir og eftir leik.
Hvernig gengur að ala aðra
fjölskyldumeðlimi upp í
stuðningi við liðið ?
Uppeldið gengur illa. Sonurinn |
er Þoolari og tengdasynirnir
Utd-menn. Af litla afastráknum f
eru allar Tottenhamflíkur
teknar strax og settar á 90° í
þvottavélinni. Markvisst er litli
kútur heilaþveginn. Hann er
nú skynsamur svo það er ekki
vonlaust um að hann átti sig
þegar hann þroskast.
^orspvi^