Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1990, Side 9

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1990, Side 9
Inngangur Introduction 1. Lög um sveitarstjórnarkosningar I. Legislation conceming local govemment elections Um kosningar til sveitarstjóma gilda lög um kosningar til Alþingis, nr. 80 16. október 1987, með þeim frávikum sem kveðið er á um í sveitarstjómarlögum nr. 8 18. apríl 1986. Samkvæmtsveitarstjórnarlögum erkjörtímabilsveitarstjóma fjögur ár og fara almennar sveitarstjórnarkosningar fram síðasta laugardag í maímánuði sem ekki ber upp á laugardag fyrir hvítasunnu. Heimilt er, að ósk sveitarstjóma, að fresta kosningum í sveitarfélögum, þar sem færri en 3/4 hlutar íbúannaeru búsettir íkauptúnum, til annars laugardagsíjúní. Osk um frestun kosninganna skal hafa borist félagsmála- ráðuneytinu fyrir 1. aprfl kosningaársins. Sveitarstjórnarlögin 1986 komu í stað sveitarstjórnarlaga nr. 58/1961 með áorðnum breytingum (lög nr. 28/1968, 52/ 1972,41/1976,19/1978,9/1982og 12/1983),lagaum sveitar- stjórnarkosningar nr. 5/1962 með áorðnum breytingum (lög nr. 5/1966,7/1978, 8/1982,10/1982 og 64/1984) og laga um sameiningu sveitarfélaga nr. 70/1970. Kosningartíminn er meðal þeirra atriða, sem nýju lögin breyta. Eftir lögunum frá 1961 var kosið til sveitarstjómar í kaupstöðum og þeim hreppum, þar sem fullir 3/4 íbúanna bjuggu í kauptúni („kauptúnahreppum"), síðasta sunnudag í maímánuði, sem ekki bar upp á hvítasunnu, en í öðrum hreppum síðasta sunnudagíjúní. Með lögum nr. 9/1982, sem komu til framkvæmda þá um vorið, var kosningardagur færður frá sunnudegi til laugardags á sama tíma, og skyldi hann á sama hátt ekki bera upp á aðfangadag hvítasunnu. Samkvæmt ákvæðum til bráðabirgða varðandi kosningarnar 1986 gilti fyiri skipan á þessu að öðm leyti en því, að þar sem annars hefði verið kosið siðasta laugardag íjúní skyldi kosið laugardaginn 14. júní. I kaupstöðum og kauptúnahreppum var kosið laugardaginn 31. maí. Samkvæmt eldri lögum var ákveðið að í kaupstöðum og kauptúnahreppum skyldi kosning vera hlutbundin, nema enginn listi kæmi fram, þá yrði hún óhlutbundin. I þeim hreppum, sem kosið var í í júní, skyldi kosning vera óbundin, nema 1/10 hluti kjósenda eða 25 þeirra hið fæsta krefðust hlutbundinnar kosningar. I nýju lögunum er sami greinar- munur gerður á sveitarfélögum, nema að í stað þess að kosningartíminn greini á milli, því að hann verður alls staðar hinn sami (nema frestur sé veittur), er aðalreglan sú að í sveitarfélögum þar sem íbúar eru fleiri en 300 skal kjósa bundinni hlutfallskosningu, en í fámennari sveitarfélögum óbundinni kosningu, hvort tveggja með sömu undantekningu og fyrr, nema að talan 25 kjósendur er færð í 20 kjósendur. Framboðsfrestur er til klukkan 12 á hádegi tveimur vikum fyrir kjördag. Sú nýjung er í lögunum, að komi aðeins einn framboðslisti fram fyrirlok framboðsfrests, lengistfresturinn um tvo sólarhringa. Sé þá enn aðeins einn listi í kjöri verður hann sjálfkjörinn án kosningar, eins og áður var. Til þess að framboðslisti teljist réttilega borinn fram þarf tiltekinn fjöldi kjósenda að mæla með listanum. Lágmarks- fjöldi meðmælenda í sveitarfélagi með færri en 500 íbúa er 10, í sveitarfélagi með 501 -2.000 fbúa 20, í sveitarfélagi með 2.001-16.000 íbúa 40, og í sveitarfélagi með 16.001 íbúaog fleiri 100. Hámarkstala meðmælenda er tvöföld tilskilin lágmarkstala. Meðal þess sem breytt var í sveitarstjómarlögum 1986, var skipan sveitarfélaga í kaupstaði og sýslur. Sýslufélög hurfu úr sögunni og urðu ekki lengur hin lögbundnu samtök hreppa. Þau átti að leggja niður eigi síðar en í árslok 1988. í stað þeirra mynda sveitarfélög héraðsnefndir sem þau skipa sér sjálf saman í. Aður urðu hreppar að kaupstað með laga- setningu og fengu þá sérstöðu og voru utan sýslufélaga. Sveitarfélög nefnast hreppar, bæir eða kaupstaðir, og hafa með sér byggðasamlög um sameiginleg verkefni eftir því sem semst á milli þeirra. Þar sem meiri hluti íbúa hrepps býr í þéttbýli og íbúafjöldi hefur náð að minnsta kosti 1.000 í þrjú ár samfellt, getur hreppsnefnd ákveðið í samþykkt um stjóm sveitarfélagsins að það nefnist bær, og nýtur það þá þeirrar stöðu sem kaupstaðir hafa haft. Með lögum nr. 26 18. maí 1988 um breytingu á sveitarstjórnarlögunum var kveðið nánar á um að réttarstaða bæja skuli vera hin sama og kaup- staða samkvæmt sérlögum. I sveitarstjórn skal fjöldi fulltrúa standa áoddatölu og vera innan eftirtalinna marka: 3-5 aðalmenn þar sem íbúar eru innan við 200, 5-7 aðalmenn þar sem íbúar eru 200-999,7- 11 aðalmennþarsemíbúareru 1.000-9.999,1 l-15aðalmenn þar sem íbúar eru 10.000-50.000 og 15-27 aðalmenn þar sem íbúar em fleiri en 50.000. Þrátt fyrir þessi ákvæði er ekki skylt að fækka eða fjölga sveitarstjórnarfulltrúum fyrr en íbúatala sveitarfélags hefur verið hærri eða lægri en við- miðunarmörkin í átta ár samfellt. Um úthlutun fulltrúa til framboðslista fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaganna en þau eru sams konar og giltu fyrir úthlutun þingsæta í kjördæmum við alþingiskosningar fram að setningu nýrra laga um kosningar til Alþingis 1984. f atkvæðatölu hvers Iista skal deila með tölunum 1,2, 3, 4 og svo framvegis. Fyrsta fulltrúa fær sá listi, sem hæsta hefur útkomutöluna, annan sá sem hefur hana næsthæsta, uns úthlutað hefur veriðjafnmörgum fulltrúum og kjósa á. Efof fá nöfn eru á lista til þess að hann nægi til úthlutunar skal gengið fram hjá honum við frekari úthlutun, og ef tvær eða fleiri útkomutölur eru jafnháar þegar að þeim kemur skal hluta um röð þeirra. Til þess að ftnna hvaða frambjóðendur hafi náð kosningu af hverjum lista er farið eftir sömu reglum og gilda nú um alþingiskosningar. Kjörstjóm tekur saman þá lista þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti og svo framvegis. Næst tekur kjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverjar breytingar á röð frambjóðenda og telur atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti listans. Nöfnum frambjóðenda á listanum er nú raðað þannig að sá sem hlotið hefur flest atkvæði í fyrsta sæti hlýturþað, sá sem að honum slepptum hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti hlýtur 2. sætið og svo framvegis.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.