Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Blaðsíða 26

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1991, Blaðsíða 26
24 Alþingiskosningar 1991 9. Breytingaráframboðslistum Changes in candidate lists Samkvæmt 84. gr. kosningalaga er kjósanda heimilað að breyta röð frambjóðenda á þeim lista, er hann kýs, með því að rita tölustafinn 1 fyrir framan það nafn er hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir framan það nafn sem hann vill hafa annað í röðinni og svoframvegis. Vilji kjósandi hafna frambjóðanda á þeim lista, sent hann kýs, strikar hann yfir nafn hans. Frambjóðandinn hlýtur þá ekkert atkvæði af þeim seðli, en þeir sem neðar standa á listanum færast upp um sæti. Í2.og3.mgr. 115.gr. segirsíðanhvernigfmnaskalhverjir frambjóðendur hafa náð kosningu á h verjurn lista í kjördæmi. A að reikna frambjóðendum atkvæðatölu á þennan hátt: „Yfirkjörstjórn tekur saman þá kjörseðla þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv. Næst tekur yfirkjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjósendur hafa gert einhverjar breytingar á röð frambjóðanda og telur atkvæði hvers frambjóðenda í hvert sæti listans. Landskjörstjórn skal raða nöfnum frambjóðenda á hverjum lista þannig að sá, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti, samkvæmt næstu málsgrein hér á undan, lilýtur það sæti. Sá frambjóðandi, að þessum slepptum, sent hlotið hefur flest atkvæði íl. og 2. sæti samanlegt, hlýtur 2. sætið o.s.frv. uns raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans 10. Kjörnir þingmenn Elected Memhers of the Althing í töflu 10 á bls. 64-66 eru taldir kjörnir þingmenn og varamenn í hverju kjördæmi í alþingiskosningunum 1991. Þar er sýnt hvaða stjórnmálasamtök þeir eru kjörnir fyrir og úthlutunartölur þær sem kjör þeirra byggist á og lýst er í töflum 4-9 og í 8. og 9. kafla þessa inngangs. Sex þingmenn kjömir í alþingiskosningunum 1987 afsöluðu sérþingmennskuákjörtímabilinu: SveirirHennannsson 1988, AlbertGuðmundsson 1989, KjartanJóhannsson I989,Kristín Halldórsdóttir 1989, Guðrún Agnarsdóttir 1990 og Birgir ísleifur Gunnarsson 1991. Varamenn þeirra tóku sæti á Alþingi sem aðalmenn: Kristinn Pétursson (f. 12. mars 1951), Benedikt Bogason (f. 17. september 1933), Rannveig Guðmundsdóttir (f. 15. september 1940), Anna Olafsdóttir Björnsson (f. 4. júní 1952), Guðrún Halldórsdóttir (f. 28. febrúar 1935) og Sólveig Pétursdóttir (f. 11. mars 1952). Benedikt Bogason lést 30. júní 1989 og tók þá Ásgeir Hannes Eiríksson (f. 19. maí 1947) sæti sem aðalmaður á Alþingi. Fimm þingmenn sem setið höfðu sem aðalmenn við lok nýliðins kjörtímabils voru ekki í framboði. Þeir voru Ásgeir Hannes Eiríksson, Guðmundur G. Þórarinsson, Hreggviður Jónsson, Stefán Valgeirsson og Þorvaldur Garðar Kristjáns- son. Af öðrum fráfarandi þingmönnum voru 8 svo neðarlega á lista að þeir stefndu augljóslega ekki að endurkjöri: Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, Alexander Stefánsson, Friðjón Þórðarson, Geir Gunnarsson, Karvel Pálmason, Matthías Á. Mathiesen, Ragnhildur Helgadóttir og Skúli Alexandersson. Aðrir 4 þingmenn tóku sæti neðar á lista en nægði til kjörs í að Ijóst sé hverjir teljast þingmenn hans í kjördæminu og hverjir varaþingmenn." Reglur þessar eru allt aðraren þær sem giltu frá hausti 1959 til 1983. Samkvæmtþeimreglumskyldireiknaframbjóðanda atkvæðatölu að tveim þriðju hlutum eins og engin breyting hefði verið gerð á listanum, en að einum þriðja hluta eftir listanum að teknu tilliti til breytinga. Fyrsta sæti á lista hlaut atkvæðatölu listans, en hvert sæti er á eftir fór hlaut það brot af þessari atkvæðatölu að í teljara væri tala þeirra þingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti, að frádreginni tölu þeirra sæta sem á undan voru á listanum og í nefnara tala þeirra þingmanna og varaþingmanna sem kjósa átti. Fram til sumars 1959 varatkvæðatala frambjóðendareiknuð á sama hátt nema að hún fór að öllu leyti eftir listanum eins og hann var eftir breytingar. Samkvæmt þeim reglunt sem gilda nú skipta frambjóðendur um sæti ef meiri hluti kjósenda færir þann sem ofar er niður fyrir hinn með því að strika yfir nafn hans eða lækka hann á lista með nýrri tölusetningu. I aftasta dálki í töflu 10 á bls. 64-66 sést atkvæðatala sem hver þingmaður hlaut í sitt sæti á lista eða ofar. Breytingar á listum breyttu engu um röð manna á þeim í alþingis- kosningunum 1991. kosningunum 1987: Guðmundur H. Garðarsson var í 11. sæti á lista, en listinn hafði haft 6 þingmenn í kjördæminu, Kristinn Pétursson var í 3. sæti á lista sem hafði haft 2 þingmenn í kjördæminu og Guðrún Halldórsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir voru í 4. og 6. sæti á lista, en listinn hafði haft 3 þingmenn í kjördæminu. Átta hinna 46 þingmanna, sem sóttust eftir endurkjöri, náðu ekki kosningu: Árni Gunnarsson, Danfríður Kristín Skarphéðinsdóttir,GuðmundurÁgústsson,JóhannEinvarðs- son, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Júlíus Sólnes, Málmfríður Sigurðardóttir og Oli Þ. Guðbjartsson. Náðu því kjöri 38 af fráfarandi þingmönnum en nýkosnir þingmenn voru 25: Árni R. Árnason, Árni Johnsen, Árni M. Mathiesen, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Einar K. Guðfinnsson, Finnur Ingólfsson, Guðjón Guðmundsson, Guðmundur Hall varðsson, Gunnlaugur Stefánsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, Jóhann Ársælsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, KristinnH.Gunnarsson,KristínÁstgeirsdóttir, LáraMargrét Ragnarsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson, Sigbjörn Gunnars- son, Sigríður A. Þórðardóttir, Sturla Böðvarsson, Tómas Ingi Olrich, Vilhjálmur Egilsson og Össur Skarphéðinsson. Þrír þessarajúngmanna höfðu verið kjörnir sem aðalmenn á þing áður: Arni Johnsen (1983), Gunnlaugur Stefánsson (1978) og Ólafur Ragnar Grímsson (1978 og 1979). Árni og Ólafur Ragnarhöfðu einnig tekið sæti á Alþingi sem varamenn. Það höfðu einnig þau Einar K. Guðfinnsson, Finnur Ingólfs- son, Jóhann Ársælsson, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Kristín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.