Fréttablað - 01.03.1966, Blaðsíða 2
l.tbl.bls.2.
KIWANISKLÚBBURINK KATLA
Nú rekur hver stórviðburðurinn annan. Næstkomandi fimmtudag, 31. marz
á hádegi, verður haldinn svonefndur "organisations-fundur" Kiwanisklúbbsins
Kötlu, og hefur klúbburinn þá uppfyllt kröfur Kiwanis International og hlot-
ið viðurkenningu þeirra. Rúmum tveim mánuðum síðar, eða í kringum 10. júní
n.k., mun einn af stjórnarmönnum höfustöðvanna, hr. Harold M. Heimbaugh, af-
henda Kötlu formlega stofnskrána ("Charterinn”), en hann kemur hingað frá
Noregi, eftir að hafa afhent hinum nýju klúbbum í Drammen og Kolbotn stofn-
skrárnar.
LEIKTÆKI KEYPT FYRIR KR. 20 ÞÚSUND
Búið er að festa kaup á leiktækjum, sem klúbburinn ætlar að gefa upp-
eldisheimilinu Kumbaravogi. Keypt voru tvö vegasölt (á einni grind), rólusett
klifurbogi, rennibraut, ruggubátur og handboltamark. Tækin verða tilbúin síð-
asta laugardag vetrarins, og verður því væntanlega hægt að afhenda þau og
koma þeim fyrir sumardaginn fyrsta.
Ekki má gleyma því, að Asgeir Guðlaugsson gefur timbur í undirstöður
tækjanna og Hákon Jóhannsson fótbolta og e.t.v. fleiri slík leiktæki.
Kærar þakkir til þeirra beggja.
SYNDASELIR
I næsta eða þarnæsta blaði mun líklega birtast"svartur listi” með
nöfnum þeirra meðlima, sem illa sækja fundi klúbbsins. Þið, sem vitið upp
á ykkur skömmina, fáið tækifæri á að bæta ráð ykkar á næstu fundum, og við
skulum vona, að "svarti listinn" komizt ekki í framkvæmd, eða að hann verði
mjög lítinn og þunnskipaður. Það er undir ykkur komið.
HAFIÐ ÞIÐ HEYRT ÞENNAN?
(Tileinkað okkar ágæta klúbbforseta, Arnóri Hjálmarssyni)
Flugumferðarstjóri nokkur festi svohljóðandi tilkynningu upp í flug-
stöðinni: Takig eftir,
Allt flug yfir hina nýju nektarnýlendu, sem er í 12,8 mílna
fjarlægð frá vellinum (stefna SSV 190 gr\5ur réttvísandi) er stranglega
bannað. ’
Með Kiwaniskveðju,
öskar Lilliendahl