Fréttablað - 01.10.1966, Blaðsíða 1

Fréttablað - 01.10.1966, Blaðsíða 1
KIWAN ISKLÚ BBURI N N HEKLA 6 6. tbl. október 1966 1. árg. FRÚARKVÖLDIÐ - AFHENDING MYNDAVÉLANNA Frúarkvöld Klwanlsklúbbanna beggja var haldið í Leikhúskjallaranum 14. október s.l. og fór prýðilega fram. Bjarni B. Asgeirsson setti hófið og stjórnaði því. Magnús Jóhannesson flutti minni kvenna og gerði því góð skil. Kveðja barst frá Einari A. Jóns- syni, sem staddur var í Helsingfors. Forsetar Heklu og Kötlu, Arnór og Páll fluttu stutt ávörp. Þá voru gjafir klúbbanna, tvær magamyndavélar (gastro cameras) afhentar Krabbameinsfélagi Reykjavíkur og Borgarsjúkrahúsinu. Pró- fessor ólafur Bjarnason, formaður Læknafélags Islands, veitti annari vélinni viðtöku f.h. Krabbameinsfélagsins, en dr. Úlfar Þórðarson tók við hinni f.h. Borgarsjúkrahússins. Báðir fluttu þeir klúbbunum innilegar þakkir og lögðu áherzlu á, hve þýðingarmikil og gagnleg þessi ljósmyndunartæki eru við rann- sóknir og leit að meinsemdum í maga. Því næst var dansað og sungið undir leiðsögn Péturs Hjaltested, þar til röðin kom að aðalskemmtiatriði kvöldsins, gamanþætti ómars Ragnarssonar, og eftir að dregið hafði verið um gull og gersemar í happdrættinu, var haldið áfram dansinum til kl. 2 eftir miðnætti. KOSNING STJÓRNAR A aðalfundi Heklu þ. 18. október s.l. var kjörin stjórn klúbbsins fyrir næsta starfsár, og verður hún þannig skipuð: Júlíus Maggi Magnús, formaður - Þórir Hall, varaformaður ólafur J. Einarsson, ritari - Arni Garðar Kristinsson, erl. ritari Eyjólfur Hermannsson, féhirðir - Asgeir Guðlaugsson, gjaldkeri Meðstjórnendur verða: ólafur Pálsson, Kristján Skagfjörð, óskar Lilliendahl, Hákon Jóhannsson, Bjarni G. Magnússon, Haraldur Hjálmarsson og Rósar V. Egg- ertsson. "KÖTLPGOS" Kiwanisklúbburinn Katla gengst fyrir "Kötlugosi" laugardaginn 5. nóv. n.k. kl. 18.30 og eru allir Kiwanismenn velkomnir og mega gjarna taka með sér gesti (þó ekki kvenfólk). "Gosstöðvarnar” verða í nýjum samkomusal að Háa- leitisbraut 58-60, Miðbæ. Heyrst hefur úr einúi átt, að nafngift þessa herrakvölds gefi til kynna að hamfarir verði þar svo miklar að likja megi við eldgos, - en úr"hinni átt- inni” kom sú skýring að ekki yrði annað en gos(drykkir) á borðum ....... en, kæru bræður, takið ekki mark á slíkum sögum. Þeir, sem mæta á herrakvöldi Kiwanisklúbbs, verða ekki fyrir vonbrigðum. PENINGAGJAFIR Nýlega bárust rausnarlegar peningagjafir í sjóð klúbbsins frá tveim meðlimum, Gunnari Frederiksen og Guðmundi J. Andréssyni, og flytjum við þeim innilegar þakkir fyrir höfðingsskapinn. DANSKI KIVANISKLÚBBURINN Nú á tímum fara menn varla svo út fyrir landsteinana að þeir komi ekki

x

Fréttablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablað
https://timarit.is/publication/1177

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.