Iðjuþjálfinn - 01.11.2008, Blaðsíða 47
Auk staðarnáms er boðið upp á iðjuþjálfun í fjarnámi. Með þessu móti er hægt að
stunda nám í iðjuþjálfun hvar sem er á landinu. Allt námsefnið er aðgengilegt á
vefnum, auk þess sem fjarnemar koma í kennslulotur á Akureyri. Í lotunum sækja
fjarnemar kennslustundir með staðarnemum þar sem megináhersla er lögð á
verklega þjálfun og umræðu.
IÐJUÞJÁLFUN
H E I L B R I G Ð I S D E I L D
Iðjuþjálfun
Háskólinn á Akureyri er eina íslenska menntastofnunin sem býður upp á nám í
iðjuþjálfun. Áherslur og námsefni eru sótt til iðjuvísinda, heilbrigðisvísinda,
raunvísinda og félagsvísinda. Góð aðstaða er til verklegs náms í sérstökum
verknámsstofum. Vettvangsnám er samtals 25 vikur og fer fram í fjölbreytilegu
starfsumhverfi víða um land undir handleiðslu starfandi iðjuþjálfa. Námið er
markviss undirbúningur undir þau fjölbreyttu störf sem iðjuþjálfar sinna innan
heilbrigðis- og félagsþjónustu, í skólakerfinu og á almennum markaði.
Diplómu- og meistaranám í heilbrigðisvísindum
Í Háskólanum á Akureyri er boðið upp á diplómu- og meistaranám í heilbrigðis-
vísindum. Námið er þverfaglegt og hentar vel fyrir þá sem eru með B.S.-próf í
iðjuþjálfun. Lögð er áhersla á frelsi nemenda til að velja sér áherslur í náminu og
að þeir fái ráðgjöf í því vali. Meðal viðfangsefna í námskeiðum eru fötlun, lang-
vinnir sjúkdómar, öldrun, stjórnun og rekstur, endurhæfing, krabbamein og
líknandi meðferð.
www.unak.is
Heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri
Sólborg v/Norðurslóð
600 Akureyri
Sími: 460 8000 (skiptiborð)
eða 460 8036 (skrifstofa heilbrigðisdeildar)
Björg Jónína Gunnarsdóttir,
nemandi á 4. ári
Síðastliðin þrjú ár hafa
verið ánægjuleg, áhuga-
verð, lærdómsrík og á
sama tíma krefjandi.