Skólavarðan - 01.12.2002, Side 25
BETT sýningin
Úrval Útsýn í Smáranum mun standa fyrir
hópferð á Bett sýninguna í London 8. - 12. jan-
úar 2003. Hún er öllum opin, slóðin er
www.bettshow.com
Þessi sýning er ein sú besta sinnar tegundar
á Bretlandi, þar sem hægt er að finna allt
milli himins og jarðar sem við kemur menntun og upplýsinga-
tækni. Að venju fjölmenna kennarar á sýninguna en enn eru
laus sæti að því er Skólavarðan kemst næst.
VERÐ:
Thistle Kensington Gardens:
Eins manns herbergi m/v þrjár nætur
kr. 56.300 + sk. 4.640
aukanótt kr. 6.000
Tveggja manna herbergi m/v þrjár nætur
kr. 48.200 + sk. 4.640
aukanótt kr. 3.800
Selfridge Hotel:
Eins manns herbergi m/v þrjár nætur kr. 57.800
+ sk. 4.640 aukanótt kr. 6.500
Tveggja manna herbergi m/v þrjár nætur kr. 51.800
+ sk. 4.640 aukanótt kr. 4.200
Fararstjóri verður Jón Karl Einarsson
Nánari upplýsingar veitir Jón Karl eða Lilja Guðrún í síma
585 4100 jonkarl@uu.is, liljag@uu.is
Íbúða/húsaskipti
Er einhver sem vill hafa íbúða eða húsaskipti við okkur næsta
skólaár 2003-2004? Við búum í 135 fm einbýlishúsi í Álaborg
(øst) Danmörku, stutt frá helstu menntastofnunum. Í húsinu
eru fjögur svefnherbergi, stór og fallegur garður ásamt bílskúr.
Við höfum áhuga á að skipta við einhvern á höfuðborgarsvæð-
inu.
Í Álaborg er Háskóli, útibú frá DPU (Danmarks Pædagogiske
Universitet) og fleiri skólar. Hér búa um 300 Íslendingar og
félagslíf er blómlegt.
Áhugasamir hafið samband í síma 0045 98 18 78 39 eða
sendið okkur tölvupóst.
Þuríður Óttarsdóttir og
Hannes Guðmundsson, askur@stofanet.dk
Frá VONarsjóði KÍ (Verkefna- og námsstyrkjasjóði)
Hækkun starfsmenntunarstyrkja til
einstaklinga
Í október síðastliðnum tóku gildi nýjar vinnureglur
sjóðsstjórnar við úthlutun starfsmenntunarstyrkja til
endurmenntunar innanlands og utan.
Hámarksstyrkur er nú kr. 90.000, sem félagsmenn í Félagi
grunnskólakennara og Skólastjórafélagi Íslands geta fengið á
tveggja ára fresti, í stað kr. 60.000 áður. Gildir þetta fyrir nám-
skeið, ráðstefnur eða kynnisferðir innanlands og utan (þó ekki
hópstyrkir vegna kynnisferða). Styrkur er veittur fyrir kostnaði
vegna námskeiðs/ráðstefnugjalds, fargjalds og gistingar.
Úthlutað er sex sinnum á ári og umsóknarfrestur til 15. des-
ember, 15. febrúar, 15. apríl, 15. júní, 15. ágúst og 15. október.
Námsstyrkir til grunnskólakennara og skólastjórnenda
í framhaldsnámi
Grunnskólakennurum og skólastjórnendum í framhaldsnámi
er bent á að hægt er að sækja um námsstyrki vegna fram-
haldsnáms á skólaárinu 2002-2003. Styrkir þessir eru óháðir
öðrum styrkveitingum úr sjóðnum. Upphæð styrkja fer eftir
umfangi náms og námstíma.
Úthlutað er sex sinnum á ári og umsóknarfrestur til 15. des-
ember, 15. febrúar, 15. apríl, 15. júní, 15. ágúst og 15. október.
Skóli morgundagsins
Norræna ráðherranefndin efnir til ráðstefnu í Osló
dagana 5. og 6. desember undir yfirskriftinni „Mor-
gendagens skole i Norden“. 150 fulltrúum frá öllum
Norðurlöndum hefur verið boðið að sækja ráðstefn-
una þar af eru 14 frá Íslandi.
Með ráðstefnunni er ætlunin að efla stefnumótun í mennta-
málum á Norðurlöndum til næstu 10 -15 ára með því að vera
vettvangur umræðna um þær kröfur sem ætla má að gerðar
verði til grundvallarmenntunar í framtíðinni, einkum í ljósi
upplýsingatækni og almennrar tækni- og samfélagsþróunar.
Gefið hefur verið út greinasafn þar sem einn sérfræðingur
frá hverju landi fjallar um framangreint efni. Gerður G. Óskars-
dóttir fræðslustjóri í Reykjavík var fengin til að fjalla um það frá
íslenskum sjónarhóli. Fyrri dag ráðstefnunnar fylgja höfundar
greinum sínum úr hlaði í fyrirlestum en síðan verða pall-
borðsumræður þar sem fulltrúar ýmissa faghópa og hags-
munaaðila verða meðal þátttakenda. Sölvi Sveinsson skóla-
meistari Fjölbrautaskólans við Ármúla tekur þátt í pallborðinu
sem fulltrúi norrænna skólastjórnenda. Seinni dag ráðstefn-
unnar geta þátttakendur tekið þátt í umræðum í nokkrum mál-
stofum.
Hægt er að nálgast greinasafnið og frekari upplýsingar um
ráðstefnuna á heimasíðu hennar, en slóðin er:
http://www.odin.dk/morgendagen/.
Fimm fulltrúar frá Kennarasambandi Íslands sækja ráðstefn-
una: Eiríkur Jónsson, formaður KÍ, Björg Bjarnadóttir, formað-
ur Félags leikskólakennara, Finnbogi Sigurðsson, formaður
Félags grunnskólakennara, Elna K. Jónsdóttir, formaður Félags
framhaldsskólakennara, og Hanna Hjartardóttir, formaður
Skólastjórafélags Íslands.
Styrkir til samstarfsverkefna skóla í Evrópu
Sókrates/Comeníus styrkir kennara í leit að
samstarfsaðilum til að sækja þriggjatil fjög-
urra daga tengslaráðstefnur (Contact
seminars) víðs vegar um Evrópu. Einstakt
tækifæri til að tengjast evrópskum skólum.
Lista yfir ráðstefnur, þemu og lönd, er að finna á www.ask.hi.is
Frétt i r, smáauglýs ingar og t i lkynningar
29