2. júní - 02.06.1939, Síða 4
4
2 J Ú N í
Nokkur
orð.
Langt til veggja, heiðið hátt,
hugann eggja bröttu sporin.
Hefði eg tveggja manna mátt
mundi eg leggjast út á vorin.
Þannig hugsaði og sagði Stefán
frá Hvítadal, og þannig munu
margir fleiri hugsa, og þá sérstak-
lega þeir sem í bæjunum búa og
lítil tækifæri hafa til að njóta hins
heilnæma og hreina lofts, þekkja
varla nema að nafninu, hvað
hreint öræfa og fjallaloft getur
verið. Vita tæpast hvað sterkur
og dragandi ylmurinn er af blóð-
bergi, rjúpnalaufi, lambagrasi og
mörgum fleiri smáplöntum, sem
ylmá af sól, sumri og gróandi
lífi. Þekkja ekki fegurð fjallanna
eins vel og Halla, sem ekki gat í
byggð unað.
Siglfirðingar hafa lítið af hreinu
fjallaloft að segja, yfir sumartímann,
þeir hafa fengið kolareyk í staðinn,
og það er auðvitað gott og blessað,
því fleira fylgir.
»En maðurinn lifir ekki á brauði
einu saman«. Hreint loft í lungun
skaðar ekki, hugsa skátarnir þegar
þeir draga af stað í útilegur sinar.
»Valkyrjur« vita að frjálst úti-
og ferðalög yfir holt hæðir, fjöll
og dali er hollt fyrir sál og líkama.
Syngjandi, með bakpokana leggja
þær land undir fót. Varpa frá sér
fýlu meðalmennskunnar og sín-
girninnar, draga á brattan, hærra,
lengra í sólarátt. Hugprúðar, hraust-
ar og drenglyndar, sannir skátar.
»Valkyrjur« og »Ljósálfar« eru
sumardags og sólskinsbörn. Þær
hafa líka verið gæfubörn að eign-
ast jafn ötulan leiðbeinanda og
frú Hrefnu Tynes, þar hefir farið
saman áhugi, dugnaður og dreng-
skapur. í öllum störfum hefir hún
kennt þeim samhald og samhjálp.
Ferðast með þeim, legið úti með
þeim, kveikt varðeldinn með þeim,
þennan heilaga eld skátanna.
Hrefna Tynes hefir bent þeim á
brattann, kennt þeim að skylja
að »tign býr í tindum, traust í
björgum, fegurð í fjalladölum, en
í fossum afl«. En sá skilningur er
ef til vill einn sterkasti þátturinn
í hinni sönnu ættjarðarást og átt-
hagakend hvers manns. í heiðríkju
bláma fjallatindanna hefir hún sýnt
þeim litina í íslenzka fánanum og
kennt þeim að virða hann, sem
tákn ættjarðarinnar.
Innan skamms flytur Hrefna
Tynes af landi burt, en þess er að
vænta að »Valkyrjur« gleymi
henni ekki, og það fræ, sem hún
hefir gróðursett í hugi siglfirzkra
æskumeyja megi vaxa og verða
voldug og blómrík grein á stofni
íslenzkrar skátareglu.
Frú Hrefna Tynes flytur nú
austur um haf, en með sér flytur
hún endurminnigar um útilegur
með »Valkyrjum« sínum. um
bjartar og blíðar sumarnætur um
»ljúflings Ijóð í lækjarklið, um lóu
kvak og fossanið«.
Endurminningar um allt það
í íslenzkri náttúru sem fylgir ljóð-
rænum sálum lífið á enda.
Frú Hrefna Tynes er »dóttir
eldfjalls og úthafs, frænka árfoss
og skers«.
Heil yfir hafið í austur!
Heil til baka í vestur!
MÓÐIR
Ferðanestið er bezt
að kaupa í Verzlun-
arfélaginu og
Nýju Kjötbúðinni.
Verzlunarfélag
Siglufjarðar h. f.
Ekki fljúgandi, en
því sem næst, sértu
á reiðhjðli við-
gerðu frá
»V A L«
SKÓVINNUST.OFA
Guðl. Sigurðssonar,
Suðurgötu 12.
Gerir við leður- og gúmmískófatnað.
— Ofanyfirlímingar á vatnsstígvél. —
Mestur vinnukraftur. Fljót afgreiðsla.
I