Mjölnir - 14.05.1929, Side 2
2
MJOLNJR
M J Ö L N I R .
Utg. Jafnaðarmannafjelag Siglfirðinga.
Kemur út á þriðjudögum.
Verð: 0,/t0 kr. á mánuði og greiðiit fyrirfram.
Verð: einstök blöð 10 aura.
Auglýsingaverð: 1 kr. cm. eind.
Ábyrgðarm.: H.ermann Einarsson Grundarg. 16
Afgreiðslum. Gunnar Jóhennsson Túng. 41
Augiýsingum «je komið í prentsmiðjuna,
í síðasta lagi, á mánudag.
r
Arás ríkisstjórnarinnar
á verkalýðinn ^varað
Vinnustöðvun við verksmiðju Dr.'
Paul hjer, vegna innflutnings
erlendra verkamanna.
Á undanförnum árum hefir það viðgeng-
ist bæði í tíð íhaldsstjórnarinnar og Fram-
sóknarstjórnarinnar, að fluttir hafa verið inn
til landsins, erlendir verkamenn í stórum
stil. Hefir Framsóknarstjórnin dyggilega
fetað í fótspor fyrirrennara síns í því efni,
þrátt fyrir það, þótt núverandi forsætis- og
atvinnumálaráðherra Tryggvi Pórhallsson
hafi veitt Ihaldsstjórninni allþungar átölur
fyrir undirlægjuhátt í þessum efnum, meðan
hún sat við vold.
Nú síðastliðinn vetur, mun rikisstjórnin
hafa veitt verksmiðjueigendum hjer norðan-
lands undanþágu frá núgildandi lögum, og
leyft þeim að flytja inn erlenda verkamenn;
er slíkt athæfi beinlínis sett til höfuðs ís-
lenskum verkalýð, þar sem það er vitan-
legt, að því meira framboð, sem er at vinnu-
krafti, því óhægar er að halda uppi kaup-
kröfum verkalýðsins. En þetta tiltæki ríkis-
stjórnarinnar er í fullu samræmi við fyrri
gerðir hennar í garð verkalýðsins, og nægir
að benda á í því sambandi laun við vega-
vinnu og aðra vinnu, sem ríkið hefir lötið
framkvæma. Verður síðar vikið að því hjer
í blaðinu við tækifæri.
Á fjölmennum fundi, sem haldinn var
hjer í verkamannafjelaginu á sunnudaginn,
var samþykt með öllum atkvæðum, að
stöðva alla vinnu við verksmiðju Dr; Pauls,
meðan þeir útlendingar vinna þar, sem
ríkisstjórnin hefur veitt undanþágu með.
Er það full alvara verkamanna, að ganga
svo frá þessu máli að ríkisstjórnin taki
meira tillit til þeirra í framtíðinni en hing-
að til. Situr það ílla á núverandi ríkisstjórn,
sem studd er af fulltrúum verkamanna, að
leyfa innflutning erlendra verkamanna, og
bætir ekki úr skák, að útlendu verkstjórarn-
ir hafa reynst verkalýðnum þannig, að slík
framkoma á hvergi að líðast í nokkru sið-
uðu landi. Er nú mál til komið, að íslensk-
ur verkalýður sýni slíkum náungum, að
hann er upp úr því vaxinn. að láta berja
sig og fótumtroða.
„■Laglega á stað farið.“
í 25. tölubl. „Siglfirðings", þ. á. byrtist
smáklausa eftir ristjórann, með fyrirsögninni:
„Laglega á stað farið“. Heldur hann íram
í tjeðri grein, að Losunar- og lestunarfje-
lagið Kjer, hafi borgað tímakaup eftir taxta
Verkamannatjelagsins við losun á salti úr