Mjölnir - 14.05.1929, Síða 3
MJOLNIR
3
s.s. „Blairholm". Ritstj. virðist ekki vera
þarna vandur að heimildum fyrir þeim gróu-
sögum er hann lepur á götum út:, frekar
en stundum oftar.
Skal það því framtekið hjer, að gefnu til-
-efni, að fjelagið greiddi timakaup sem hjer
seg!r:
Til 1. maí kr. 1,50 á klukkust. 1. maí.
kr. 3,00 og eftir 1. maí kr. 2. á klukku-
stund.
Skora jeg því á ritstj. „Siglfirðings,, að
birta í næsta blaði sínu, rjetta yfirlýsingu
á kaupgreiðslu hjá Losunarfjelaginu, við
losun á salti úr Blairholm. Annars lýsi jeg
hann hjermeð ósannindamann að tjeðum
ummælum.
//. E.
Afturför ritstj. „Siglf‘\
Sjóndapur virðist nú ritstj. „Siglfirðings“
vera orðinn, þar sem hann í næst síðasta
blaði sínU er hættur að sjá þann mikla
rauða lit, sem hann taldi vera á þessum
bæ við siðustu bæjarstjórnarkosningar. Get-
ur ritstj. sjer þess til, að við fjelagar höfum
horft nokkuð fast á rauða kvensvuntu eða
einhverja aðra rauða flik, þegar við rituðum
um rauða litinn. Veslings rifstj. „Siglf.“
rekur líklega minni til þess tima, þegar
hann var búðarloka í Haganesvík, því í
þá daga tíðkuðust mikið rauðar kvensvuntur,'
og jafnvel munu þær ekki hafa verið orðn-
ar jafn fásjeðar, og þær eru nú, þegar Jón
Jóhannesson (ekki ritstj. þá) var búðarloka
hjá Vilh.elm Jónssyni.
Frá þeim tíma að núv. ritstj. „Siglf.“ var
í hinum virðulegu búðarlokustörfum, bæði
hjer og í Haganesvík, munu það fáir vera,
sem minnast þess, að hann hafi þá litið
rauða litínn jafníllu auga, og hann gerir nú,
jafnvel þó á kvensvuntu væri.
Á sunnudaginn vár hjelt verkamannafjel.
fund. Var þar meðal annars rætt um kaup-
taxta fjelagsins, sem gekk í gildi 1. Maí.
Voru fjelagarnir allir á einu máli um, að
halda fast við kaupgjaldið, sem samþykt
hafði verið. Bar fundurinn vott um. að stjett-
meðvitund verkalýðsins hjer er vel vakandi.
Margir nýjir meðlimir gengu í fjelagið.
Er þeim nú óðum að fækka, sem standa
utan við verkalýðsfjelögin hjer, og eftir
næsta fund má enginn verkamaður standa
utan samtakanna.x
Verkakvennafjel. „Osk“ heldur fundi sína
síðasta þriðjudag í hverjum mánuði. Síðasti
fundur þess var haldinn 30. Apríl og voru
þar rædd kaupmál verkakvenna. Var þó
engin endanleg ákvörðun tekin um kaup-
gjaldið. Næsti fundur fjelagsins verður
haldinn 28. þ. m. og verða þá framhalds-
umræður um kaupmálið. Er fastlega skorað
á fjelagskonur að sýna áhuga sinn með
þvi, að mæta á þessum fundi. Pið verka-
konur, sem ekki eruð í fjelaginu, látið nú
sjá, að þið sjeuð ekki eftirbátar karlmann-
anna. Gangið inn á næsta fundi.
Engin verkakona má standa fyrir utan
fjelag’ð!