Mjölnir - 14.05.1929, Qupperneq 4
4
MJOLNIR
íhaldsmaður svívirðir
verkamann.
Sophus Árnason íhaldskaupm. hjer í
bænum, hefir tekið upp nýjan auðborgara-
„sið“ til þess að rn'ða verkamenn. Á sunnu-
daginn var gaf að líta reikning til verkamanns
á hurðarrúðu kaupmannsins og var upp-
hæð reikningsins kr. 2,50 Var skrifað á
reikninginn að skuld þessi væri eftirgefin
1. Mai. Má ráða af áletruninni í hvaða
augnamiði þetta tiltæki er framið. Hefir
ekki annað vakað fyrir íhaldsmanninum en
að svívirða verkalýðssamtökin og frídag
verkamanna.
Verkalýðssamtökin hjer í bæ eru það öflug
að þau munu ekki líða neinum íhalds-
strák að svívirða einstaka fjelaga sína eða
samtökin í heild.
H. Á.
Þormóður Eyólfssoti, afgreiðslumaður Eim-
skipafjelags Islands, hefir ekki viljað borga
helgidagakauptaxta verkamanna. Stendur
í stappi á milli hans og stjórnar verka-
mannafjelagsins út af þessu. Má enginn
verkamaður taka kaup sitt hjá honum eða
öðrum sem ekki vilja greiða það kaupgjald
sem þeir eru búnir að samþykkja.
Til lesendanna. Vegna rúmleysis í blað-
inu verða útl. og innl. frjettir að bíða næsta
blaðs. Sömuleiðis frjettir af bæjarstjórnar-
fundi, sem haldinn var í gær.
Verkamenn! “Rjettur er eina tímarit ykkar.
Kaupið það og útbreiðið.
B L Ó M .
Fátt prýðir heimilið meíra en falleg
BLÓM. — Útvega inni- og útiblóm
og alt sem til blóma heyrir. Hefi
nokkur sýnishorn á staðnum.
Steinþóra Einarsdóttir, Túng. 41.
Til hvítasunnunnar.
Nýkomið:
Svínsflesk, reykt og saltað.
Medisterpylsur
Reyktar pylsur
Skinke o. fl.
Kjötbúðin.
Svartir kvensokkar fl. tegundir.
Persil, Skúripúlver, Eldspítur.
Ýmsar matvörur og krydd.
Nýkomið.
Si£, Fanndal.
Verkamenn og konur!
Verslið að öðru jöfnu við þá, sem
auglýsa í blaði ykkar.
Siglufjarðarprentsmiðja 1929.