Stjórnartíðindi fyrir Ísland: C-deild - 01.12.1890, Side 96
92
Athugasemdir-
Verzlunarskýrslum þeim, sem að framan eru prentaðar, skal taka fram til skýr-
ingar það, sem hjer segir :
1. Aðfluttar vörur.
I dálkinum naðrar korntegundir* eru taldar allar þær korntegundir, sem eigi eru
áður nefndar, malaðar og ómalaðar, svo sem malt, mais, hveitigrjón, bygggrjón, hafra-
grjón, byggmjöl, haframjöl o. fl. ; enn fremur salep og sagógrjón.
Með miðursoðnum maU er átt við sardínur, humra, niðursoðið kjöt, kjötextrakt,
lax o. fl.
Með nkaffiróU er einnig talinn allskonar kafiibætir, svo sem export-kaffi, malað
kaffi o. fl.
I dálkinum njmsar nýlenduvörur« eru taldar þær af slíkum (colonial-) vörum, sem
ónefndar eru í dálkunum á undan, svo sem rúsínur, sveskjur, gráfíkjur, sjokolade og
allskonar kryddjurtir t. d. allehaande, engifer, kanel, cassia lignea, nellikker, pipar,
cardemomme, múskat- hnetur, vanille, sennep o. fl.
Með meyktóbakú hafa brjefviudlar (cigaretter) verið taldir en eigi með tóbaks-
vindlum.
Með tóðrum drykkjarfönguvu eru að eins óáfengir drykkir taldir svo sem lemonade
allskonar, ölkelduvatn, mineralvatn t. d. sodavatn o. fl.
Með »ljerepti úr bómull og hör« er talinn segldúkur, boldang, strigi, allskonar
sirtz o. fl.
Með nöðrum vefnaðú er átt við allar þær -vefnaðartegundir sem eigi gátu talist
með í næst undanförnum þremur dálkum og heldur eigi mátti heimfæra undir tilbúinn
fatnað.
Með ttilbúnum fatnaðú hafa meðal annars verið talin höfuðföt allskonar, sjöl,
treflar og klútar, allskonar skófatnaður o. s. frv.
Með nsápzu er einnig talinn soda og stivelsi.
Með ntrjeílátuma eru taldar tunnur, kyrnur og hylki ýmiskonar.
I dálkinum »stofugögm eru taldir sofar, stólar, borð, speglar, rúmstæði, kommóður
og aðrar þess konar hirzlur o. fl.
Með »öðru Ijósmetú eru talið stearin-kerti, parafin o. fl.
Með töðru eldsneytú er talið cokes, cinders, breuni o. fl.
Undir tjárnvörum hinum smcerrú er talið ýmislegt fínt isenkram, ónefnt í töluliðun-
um á undan, svo sem meðal annars naglar allskonar og skrúfur, nálar, hnífar, gaflar>
þjalir, skæri, hefiltannir, sagir, sporjárn, naglbítir, allskonar vír m. m.; enn fremur
kaffikvarnir, ullarkambar, brýni, púður og högl o. fl.
Með tjárnvörum hinum stœrrú er þar á móti talið ýmislegt gróft isönkram, áður
ótalið, svo sem akkeri, járnhlekkir, byssur, skóflur og önnur jarðyrkjutól, hverfistemar
m. m.
Með tglysvarningú er átt við allskonar galanteri-vörur, hverju nafni sem nefnast,
þar á meðal t. d. leikföng allskonar o. fl.
Með »öðrum ritföngumt eru talin brjefaumslög, blek, pennar, lakk o. fl.
Jpegar plankar, borð eða spírur hafa verið annaðhvort lengri eða styttri en 12 l0*'
hefur tölunni verið breytt eptir því sem við hefur átt þannig að allt hefur verið reiknað
eptir 12 feta lengd.
Með tfarfav er talið allskonar efni í farfa.