Ljóðormur - 01.07.1988, Page 16

Ljóðormur - 01.07.1988, Page 16
14 Halla Jónsdóttir I sumar verða berin á trjánum rauð, safarík og ffeistandi. Þau Iokka og seðja. í haust verða blöð trjánna gul og visnuð. Þau fara sömu leið og blómin. Eftir standa naktir trjástólpar. aumkunarverðir bíða þeir eftir snjónum sem hylur nekt þeirra. Þannig hefur allt sinn tíma. Það gerir augnablikið svo óendanlega dýrmætt. Vetur Berfætt í hrjóstrugri vegleysu Klæðlaus í kuldanum. Með blóðuga fætur og frosin brjóst Bláar hendur og bleikt andlit. Bið ég snjótittling um vængi og tvær fjaðrir á brjóstin.

x

Ljóðormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.