Ljóðormur - 01.06.1990, Síða 30

Ljóðormur - 01.06.1990, Síða 30
28 Johann P. Tammen hátt yfir okkur gnæfir hann öllum stundum dag eftir dag með báða fætur fjötraða við skylduna vindur sig snýr sér hátt yfir okkur takið hann af þakinu hanann og hann mun áður en hann hefur alveg gleymt því gala fullum hálsi. Skipin varpa akkeri á himni Talaðu ekki svona hratt barnið gott hættu að hvísla breiddu yflr þig ryk flíkanna af háaloftinu óttastu ekki fábreytt látbragðið sem líkir eftir leik hálmstráanna og töfra má fram í ljósi vetrar- brautanna sem opinbera svo lauslega fisklaga hamingjuna treystu stráum pensilsins sem hella tréhárri andlitsmynd haustsins niður í vögguna blá sigla skipin um himinhvolfið bláir í ldæðum næturinnar fara hásetarnir upp á þiljur draga upp toppfánann kæfa óendanlega langar bænir þínar með skrölti akkeris- keðjunnar hlýddu á ffoskinn lesa veðurspána líttu út um gluggann á Iandið hlauptu burt í mildum landsynningi og hrasaðu ekki um kirkjuturnspíruna háu ef vera skyldi við téð vindafar spámaður

x

Ljóðormur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljóðormur
https://timarit.is/publication/1207

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.