Fréttablaðið - 12.09.2016, Qupperneq 2
SAGA Mynt frá því er Ólafur kyrri
réð ríkjum yfir Íslandi var skilað til
minjavarðar Norðurlands í síðustu
viku. Peningurinn fannst skömmu
eftir heimsstyrjöldina síðari en
ástæða þess að honum var skilað
nú er fréttaflutningur af fornminja-
fundi liðinnar viku.
„Þetta er mynt sem hefur fylgt
mér lengi. Ég held ég hafi fundið
hana skömmu fyrir 1950,“ segir
Hermann Jónsson, fyrrverandi
hafnarvörður á Akureyri.
„Ég var bara patti, um sjö ára að
ég held, að leika mér að bílum í
moldinni heima þegar ég rakst á
hann. Einhverra hluta vegna ákvað
ég að taka hann upp. Síðan þá hef
ég geymt myntina.“
Hermann ólst upp á Mýlaugs-
stöðum í Aðaldal en flutti til
Akureyrar árið 1963. Peningurinn
var með í för. Hann segist lengi
hafa ætlað sér að fara með hann
til minjavarðar en það hafi alltaf
gleymst þar til nú.
„Ég fór með hann núna í síðustu
viku eftir að það var sagt frá sverð-
inu sem fannst í Skaftárhreppi. Það
var vítamínsprautan sem þurfti til,“
segir Hermann.
Peningurinn er tæpir fimmtán
millimetrar í þvermál og úr silfri.
Fyrri eigandi hans hefur sennilega
notað hann sem hálsmen því á
einum stað í jaðri hans hefur verið
gert lítið gat. Þar má ímynda sér að
snæri hafi verið dregið í gegn og
myntin sett um háls einhvers.
„Peningurinn hefur örlítið látið á
sjá síðan ég fann hann því ég man
að fyrst þegar ég fann hann var
gatið heilt. Hann hefur aðeins tærst
upp en táknin á báðum hliðum
sjást enn nokkur greinilega. Tím-
Viltu stofna fyrirtæki?
Hnitmiðað námskeið um félagaform,
skattlagningu fyrirtækja, frádráttarbæran
rekstrarkostnað, útgáfu reikninga,
ábyrgð stjórnenda fyrirtækja, fjármál o.fl.
kennt þriðjud. 20. sept., 27. sept og 4. okt. kl. 9-12
2. Síðdegisnámskeið,
kennt 21. sept., 26. sept. og 3. okt. kl. 16:30-19:30
Námskeiðsstaður er Holtasmári 1, Kópavogi (Hjartverndarhúsið).
Fyrirlesari er Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M
Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is Nánari upplýsingar og skráning í síma
552 609
Námskeiðið skiptist í þrjá hluta og verður
kennt þriðjudagana 13., 20. og
27. september kl. 16:10 – 19.
Námskeiðsstaður er Katrínartún 2 (Höfðatorg),
16. hæð, Reykjavík.
Sjá námskeiðslýsingu á www.lexista.is
Fyrirlesari: Anna Linda Bjarnadóttir, héraðsdómslögmaður, LL.M
N nari upplýsingar og skráning í síma 894-6090 eða á alb@lexista.i
Námskeiðsgjald er 40.000 kr. og greiðist við skráningu.
VR og fleiri félög styrkja
félagsmenn sína til þátttöku
á námskeiðinu um 50%.
Truflanir af Tour of Reykjavík
Hjólreiðakeppnin Tour of Reykjavík sem fram fór í gær gekk vel þótt nokkuð ergelsi hafi verið hjá vegfarendum er margar af helstu umferðaræðum
borgarinnar voru lokaðar. Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Grey Line rútufyrirtækisins, segir að notaðar hafa verið 25 rútur í stað 10 eins og
vant er til að allir kæmust á áfangastað. Það hafi tekist á endanum þótt ekki hafi allir komist á áfangastaðinn á réttum tíma. Fréttablaðið/Ernir
löGGæSlA „Viðbragðstími lög-
reglu þegar alvarleg atvik eiga sér
stað er eins og dæmin hafa sannað
með öllu óviðunandi og veldur því
að hætta skapast og íbúar upplifa
óöryggi,“ segir sveitarstjórn Húna-
þings vestra sem kveður fámenni
lögreglunnar á Norðurlandi vestra
vera óviðunandi. Mikil óánægja er
í Húnaþingi eftir að það tók lög-
reglu tvær klukkustundir að koma
á Hvammstanga eftir að ökumaður
fór í höfnina og drukknaði.
Þá ítrekar sveitarstjórnin kröfur
sem settar hafi verið fram frá því að
lögregluumdæmi voru sameinuð
árið 2014 um að á Hvammstanga
verði mönnuð lögreglustöð. „Til að
hægt verði að manna lögreglustöð
á Hvammstanga þarf að fjölga í lög-
regluliði umdæmisins alls og gerir
sveitarstjórn Húnaþings vestra
kröfu um að svo verði gert hið allra
fyrsta.“ – gar
Gera kröfu um
lögreglustöð á
Hvammstanga
Veður
Allhvöss eða hvöss norðanátt á morgun.
Talsverð rigning norðan og austan til, en
mikil rigning á Austfjörðum fram eftir
morgni. Sjá Síðu 16
Myntin er frá bilinu 1065-
1080 en hún fannst skömmu
fyrir 1950 á Mýlaugsstöðum
í aðaldal.
Framhliðina prýðir and-
litsmynd af konungi en á
bakhliðinni er krossmark.
Umræddur konungur er
sennilega Ólafur kyrri, sonur
Haraldar harðráða.
Hlutverk krossmarksins
var tvíþætt. annars vegar
trúarlegt en einnig til að
auðvelda það að skipta
peningnum upp í helminga
eða fjórðunga.
Áletranir á myntum þessa
tíma eru oftast út í hött þar
sem myntsláttumenn voru
sjaldnast læsir.
MýlaUgsstaðir
í aðaldal
Sjaldgæft að gamlar myntir finnist á íslandi
Myntin sEM
Fannst
Gat var gert af
fyrri eiganda og
myntin notuð
sem hálsmen.
Mynt frá 11. öld skilað
sextíu árum eftir fund
Fréttaflutningur af fundi forns sverðs í síðustu viku varð til þess að fyrrverandi
hafnarvörður skilaði mynt frá 11. öld til minjavarðar. Myntin fannst í Aðaldal
skömmu eftir síðari heimsstyrjöldina. Peningurinn hefur tærst frá fundinum.
Ég var bara patti að
leika mér að bílum í
moldinni heima þegar ég
rakst á hann.
Hermann Jónsson,
fyrrverandi hafnar
vörður á Akureyri
Það eru helst
Þingvellir sem skera
sig úr hvað fjölda fundinna
mynta varðar.
Anton Holt, mynt
sérfræðingur
inn vinnur á honum líkt og öðrum
hlutum.“
Mynt frá þessum tíma er afar
fágæt, bæði hér á landi sem og í
öðrum löndum, segir Anton Holt
myntsérfræðingur. Þó hafa nokkr-
ar slíkar fundist hér víða um land.
„Það eru helst Þingvellir sem skera
sig úr hvað fjölda fundinna mynta
varðar enda fornleifauppgreftir þar
verið reglulegir,“ segir Anton.
johannoli@frettabladid.is
íþróttir Jón Margeir Sverrisson
endaði í 4. sæti í 200 metra skrið-
sundi í flokki S14 á Ólympíumóti
fatlaðra í Ríó í gærkvöldi. Þetta er
sama grein og Jón Margeir vann
til gullverðlauna í á Ólympíumóti
fatlaðra í London fyrir fjórum
árum. Þá synti hann á 1:59,62 mín-
útum og setti heimsmet.
Jón Margeir synti á 1:57,50
mínútum í gær og var 1,18 sek-
úndum á eftir sigurvegaranum,
Wai Lok Tang frá Hong Kong. Jón
Margeir var 81 sekúndubroti frá
því að komast á verðlaunapall, á
öðru Ólympíumóti fatlaðra í röð.
Thomas Hamer frá Bretlandi varð
annar og Daniel Fox frá Ástralíu
þriðji.
Jón Margeir tryggði sér sæti í
úrslitum í morgun þegar hann synti
á 2:00,01 mínútu í undanrásunum.
Jón Margeir var með fimmta besta
tímann í undanrásunum. – iþs
Jón Margeir fjórði í Ríó
Jón Margeir sverrisson synti á Ólympíueikunum í gær. Mynd/svErrir gíslason
1 2 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 m á N u D A G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð
1
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
9
-1
7
F
0
1
A
8
9
-1
6
B
4
1
A
8
9
-1
5
7
8
1
A
8
9
-1
4
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K