Fréttablaðið - 12.09.2016, Síða 6

Fréttablaðið - 12.09.2016, Síða 6
Beltone Legend™ Enn snjallara heyrnartæki Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.Bel to ne L eg en d ge ng ur m eð iP ho ne 6 s og e ld ri ge rð um , i Pa d A ir, iP ad (4 . k yn sl óð ), iP ad m in i m eð R et in a, iP ad m in i og iP od to uc h (5 . k yn sl óð ) m eð iO S eð a ný rr a st ýr ik er . A pp le , i Ph on e, iP ad o g iP od to uc h er u vö ru m er ki s em ti lh ey ra A pp le In c, s kr áð í Ba nd ar ík ju nu m o g öð ru m lö nd um . Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN Tyrkland Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, segir landið skyld- ugt til að sigra Íslamska ríkið í Sýr- landi. Erdogan segir í tilkynningu að aðgerðir Tyrkja í Sýrlandi upp á síð- kastið séu bara fyrstu skrefin í bar- áttunni við hryðjuverkasamtökin. Hann sagði að það þyrfti að ganga frá samtökunum í Sýrlandi og koma andstæðingunum á þann stað að ekki sé hægt að ráðast á Tyrkland. Erdogan hefur á seinustu dögum bolað 24 kúrdískum bæjarstjórum úr embætti. Hann telur þá hafa verið í tengslum við uppreisnar- hópa. Mikil mótmæli brutust út í kjölfarið og þurfti lögregla meðal annars að beita táragasi. – gj Skylda Tyrklands að sigra ISIS Erdogan ætlar að láta til sín taka í Sýr- landi. NordicphotoS/GEtty Kalla eftir sjálfstæði Mörg hundruð þúsund íbúar Katalóníu gengu um götur borga í héraðinu í gær til að kalla eftir sjálfstæði frá Spáni. Meira en hálf milljón gekk í Barcelona-borg einni. Stjórnvöld á Spáni reyna hvað þau geta að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Fréttablaðið/Epa STjórnmál Sigurður Ingi Jóhanns- son forsætisráðherra mun ekki setjast í stjórn með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni eftir landsþing flokksins þann 1. október. Sigurður sagði trúnaðarbrest hafa orðið á milli sín og stjórnar flokksins undanfarið og því gæti hann ekki setið í óbreyttri stjórn. Heimildir Fréttablaðsins herma að samskipti þeirra séu stirð og að stuðningsmenn forsætisráðherra séu allt eins undirbúnir því að hann fari í formannsframboð. Í samtölum við miðstjórnarfull- trúa Framsóknarflokksins eftir fundinn hefur komið fram að lands- þingið í október verði ekki kurteisis- samkoma. Þar mun verða tekist á um framtíð flokksins. Nokkrir þing- menn sem fréttastofa heyrði í eftir fundinn vilja komast í kosningabar- áttu og tala þá um sigra síðustu ára og góða málefnastöðu en efast um að þau mál komist að með Wintris- mál forsætisráðherra á bakinu. Fjölmargir hafa á síðustu dögum og vikum hvatt forsætisráðherra til þess að bjóða sig fram sem formann flokksins. Sveinbjörn Eyjólfsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Guðna Ágústssonar og núverandi forstöðu- maður á Hvanneyri, steig í pontu á miðstjórnarfundi og lýsti yfir fram- boði. „Það er mjög mikilvægt að Fram- sóknarmenn fái að kjósa um for- mannsembættið í flokknum,“ segir Sveinbjörn. Höskuldur Þórhallsson, þing- maður Framsóknar, sagði í hádegis- fréttum RÚV að forsætisráðherra hefði þurft að sitja undir reiðilestri formanns flokksins. Margir hafa sagt það ekki vera sannleikanum sam- kvæmt. Jón Pétursson, formaður Framsóknarfélagsins í Mosfellsbæ, segir orð Höskuldar vera lygi. „Ég var viðstaddur og veit nákvæmlega hvað fór fram. Ef eitt- hvað er þá var mikill vilji Sigmundar til að leita sátta við Sigurð Inga. Það er þyngra en tárum taki að samband þeirra sé stirt því þeir eru báðir sterkir stjórnmálamenn,“ segir Jón. Sigmundur Davíð tjáir sig ekki um hvað gerðist undir lok fundarins. Ekki náðist í Sigurð Inga sem er í opinberri heimsókn í Danmörku. sveinn@frettabladid.is Stirt milli formanns og forsætisráðherra Menn eru sammála um að samræður á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins um helgina hafi verið hreinskiptar og hreinsað and- rúmsloftið. Flokksmenn ósammála formanni samgöngunefndar þingsins um að formaður hafi lesið forsætisráðherra reiðilesturinn. Vaktaskipti urðu í forsætisráðuneytinu í apríl. Fréttablaðið/ErNir Erdogan hefur á seinustu dögum bolað 24 kúrdískum bæjarstjórum úr embætti. 1 2 . S e p T e m b e r 2 0 1 6 m á n U d a G U r6 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð 1 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 9 -3 F 7 0 1 A 8 9 -3 E 3 4 1 A 8 9 -3 C F 8 1 A 8 9 -3 B B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.