Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2016, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 12.09.2016, Qupperneq 11
Nánari upplýsingar í síma 666 4000 eða leiga@reginn.is GLÆSILEGT IÐNAÐAR- OG LAGERHÚSNÆÐI TIL LEIGU Um er að ræða gott og bjart endabil, alls 554 m2 á góðum stað í vaxandi hverfi. Milliloft er yfir hluta af rýminu sem nýta mætti í t.d. lager eða skrifstofur. Lofthæð er mikil og innkeyrsludyr stórar og góðar. Frábært athafnasvæði á lóð fylgir rýminu. Róleg og snyrtileg starfsemi er í öðrum hlutum hússins. Glæsilegt húsnæði til leigu við Miðhellu 2 í Hafnarfirði reginn.is reginn@reginn.is sími 512 8900 Tíðindi helgarinnar í próf-kjörsmálum voru ótíðindi í flestum skilningi. Í fyrsta lagi er tilfinningin sú að ekkert hafi í rauninni gerst – engin tíðindi hafi orðið – ríkjandi ástand haldi bara áfram út í hið óendanlega. Í öðru lagi komust í örugg sæti menn sem manni finnst ekki eiga erindi á þing; enn séu kjósendur að senda okkur fulltrúa sem ekki séu líklegir til að auka virðingu fyrir þessari mikilvægustu stofnun landsins. Og í þriðja lagi: fimm alþingis- konur detta út af þingi. Í furðu mörgum prófkjörum helgarinnar taka kjósendur undir með Skarp- héðni í Njálu þegar hann svarar frýjunarorðum móður sinnar Berg- þóru (sem var drengur góður) með þessum orðum: „Ekki höfum vér kvennaskap.“ Helmingur mannkyns Móðir mín sagði einhvern tímann aðspurð um jafnréttismál að hún skildi ekki hvernig karlar gætu haft fordóma gagnvart konum – konur væru helmingur mannkyns. Og bætti við: „Ekki hef ég neina for- dóma gagnvart körlum.“ Fjórir karlar í efstu sætum Sjálf- stæðismanna í Suðvesturkjördæmi. Þrír karlar í efstu sætum í Suður- kjördæmi. Tilviljun segja sumir; bara stjórnmálamenn sem dæmdir eru af verkum sínum. Ég veit það ekki. Þegar horft er á karlana sem völdust og konurnar sem sagt var að vera úti þá blasir aðeins eitt við. Ekki höfum vér kvennaskap. Því fer auðvitað fjarri að konur séu alltaf betri stjórnmálamenn en karlar. Margrét Thatcher stóð fyrir breytingum á bresku samfélagi sem voru til óþurftar fyrir flest fólk – niðurrifi á samfélagslegri þjónustu, græðgisvæðingu og auðvaldseflingu sem við erum enn að súpa seyðið af. Og valdníðslu og vitleysisgang vondra kvenstjórnmálamanna á Íslandi þarf ekki að hafa mörg orð um. Skárra væri það nú. Konur eru alls konar. Þær eru með öðrum orðum helmingur mannkynsins, og verður að teljast með nokkrum ólíkindum hversu illa kjósendum Sjálfstæðisflokksins gengur að finna konu að sínu skapi. Þó að konur geti verið skelfilegir stjórnmálamenn – eins og dæmin sanna – þá höfum við óþægilega mörg dæmi um farsælar, vinnusam- ar og réttsýnar konur sem nú hverfa af þingi af margvíslegum ástæðum: Brynhildur Pétursdóttir úr BF, Katr- ín Júlíusdóttir úr SF og Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr Sjálfstæðisflokki eru allar að hætta þingmennsku of snemma. Margrét Tryggvadóttir hefði svo sannarlega átt erindi aftur á þing. Og eru þá ótaldar þær þingkonur sem kjósendur höfn- uðu í prófkjörum helgarinnar, en völdu í staðinn karla sem virðast margir síðri kostur. Samfylkingin sér af Ísafjarðarskörungnum Ólínu Þorvarðardóttur, sem er rökföst og hefur ríka réttlætiskennd – og Val- gerði Bjarnadóttur sem hefur verið með ágætustu og hugsjónaríkustu þingmönnum Samfylkingar og sú sem bar hitann og þungann inni á þingi af því að reyna að koma hér á nýrri stjórnarskrá. Kynleiðrétting Sjálfstæðismenn höfnuðu Elínu Hirst úr Kraganum og varaþing- manninum Bryndísi Loftsdóttur, sem báðar eru mjög frambærilegir þingmenn. Þeir höfnuðu líka Unni Brá Konráðsdóttur sem vakið hefur virðingu langt út fyrir flokksraðir fyrir góð störf og Ragnheiði Elínu Árnadóttur sem er umdeildust þessara kvenna, enda hafa henni verið mislagðar hendur í störfum sínum. Hver þessara kvenna hefur verið með sínu móti í störfum sínum og þær ættu að höfða til ólíkra hópa. En nei, kjósendur flokksins völdu heldur kall sem hefur haldið þruglræður í Trump-stíl um inn- flytjendamál og notað orðið „mús- limistar“ um útlent fólk sem ekki „Ekki höfum vér kvenna skap“ Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í dag Skólarnir eru lífæð byggðanna og þar slá hjörtu íbúanna. Leik-skólar, grunnskólar, framhalds- skólar – öll menntun í heimabyggð skiptir miklu máli fyrir lífsgæði og val á búsetu fólks. Framhaldsnám í heimabyggð hefur verið sérstakt baráttumál landsbyggðarinnar á undanförnum árum. Sjálfræðisaldurinn er jú 18 ár og foreldrar vilja ógjarnan senda börn sín ung að heiman í fjarlæga landshluta til að geta sótt þá mennt- un sem þau eiga rétt á. Stöðugt þarf að verja fjárveitingar til eldri framhaldsskólanna hvar sem er á landinu. Mér verður m.a. hugsað til Menntaskólans á Ísafirði og Fjölbrautaskólanna á Akranesi og Sauðárkróki. Mennt er máttur. Það þurfti að berjast fyrir stofnun Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði, Mennta- skólans í Borgarnesi, Menntaskólans á Tröllaskaga og framhaldsdeildanna í Vesturbyggð á Patreksfirði og nú síðast á Hólmavík, Hvammstanga og Blönduósi svo dæmi séu nefnd. Með samstöðu og einbeittum vilja heimamanna og velvilja stjórnvalda tókst að koma á þessu mikla hags- munamáli íbúanna. Sem sveitar- stjórnarmaður, á vettvangi lands- hlutasamtakanna og sem formaður skólanefndar FNV var ánægjulegt að geta stutt þessa baráttu heimafólks fyrir auknu framboði menntunar á svæðunum. Framhaldsdeildirnar á Hólmavík, Hvammstanga og á Blönduósi hafa FNV á Sauðárkróki sem móðurskóla sinn en framhalds- deildin á Patreksfirði sækir til Fjöl- brautaskóla Snæfellinga í Grundar- firði. Nærsamfélagið skiptir máli Unglingsárin eru tími mikilla umbrota hjá hverjum einstaklingi og ákvarðanir teknar sem skipta miklu máli fyrir framtíðina bæði í leik og starfi. Fyrir fjölskylduna eru það hrein mannréttindi að geta verið í sem mestum samvistum við unglingana sína á þessum tíma og veitt þeim allan stuðning og hvatningu sem nærsamfélagið getur lagt þeim til. Þessar staðreyndir eru í raun árétt- aðar í sjálfræðislögunum, en með þeim hafa heimili og fjölskylda axlað ábyrgð á börnum sínum að átján ára aldri og því er eðlilegt að skipulag menntunar í landinu taki mið af því. Auk þess er sá kostnaður óheyrilegur sem leggst á fjölskyldur við að senda börn langan veg til að njóta sjálfsagðrar menntunar og ekki á allra færi að standa undir honum. Sóknarfærin eru í menntun Fjölbreytt námsframboð í heima- byggð styrkir sjálfsímyndina, eykur samkeppnishæfni og hefur marg- feldisáhrif í nærsamfélaginu. Fram- farir í fjarskiptatækni bjóða upp á margþættan stuðning og möguleika í þessu starfi. Með stofnun framhalds- deildanna á smærri stöðum hafa opnast nýir möguleikar fyrir fólk sem ekki átti tök á í uppvextinum að sækja sér framhaldsmenntun. Það var því mikil skammsýni og afturför þegar núverandi stjórnvöld ákváðu að takmarka framlög og stuðning ríkisins til framhaldsskólanna við nemendur undir 25 ára aldri. Sóknar- færi landsbyggðarinnar ásamt jafn- rétti íbúanna eru einmitt fólgin í því að geta fléttað þetta tvennt saman, framhaldsmenntun ungs fólks og eldri íbúa, sem vegna fjarlægðar og kostnaðar gátu ekki sótt sér þessa grunnmenntun á sínum tíma. Framhaldsskólarnir hafi mögu- leika til sóknar Framhaldsskólarnir, móðurskólar framhaldsmenntunar í landinu, sem og hinar nýju framhaldsdeildir út um land, þurfa að búa við öryggi og möguleika til sóknar. Óvissan um fjármagn og óttinn við niðurskurð og lokanir deilda ásamt auknum kröfum um lágmarksfjölda í ein- stökum áföngum frá ári til árs gerir starfsumhverfið óöruggt. Mikilvægt er að framhaldsskólarnir fái aukinn skilning og fjárstuðning til að þróa námið og endurnýja og bæta tækni- búnað sinn. Verður mér þar sérstaklega hugsað til verknámsins þar sem ég þekki best til við Fjölbrautaskólana á Akranesi og Sauðárkróki, sem þurfa verulega aukinn stuðning, en þar er unnið afar gott starf. Þörfin fyrir bætta stöðu þessarar menntunar sýnir sig best í hinni gríðarlegu eftirspurn eftir iðnmennt- uðum starfsmönnum á flestum svið- um atvinnulífsins. Íbúarnir og starfs- fólkið vill að sjálfsögðu hafa skólann sinn og nám barna sinna í öruggum höndum á heimaslóð. Menntun í heimabyggð Bjarni Jónsson sveitarstjórnar- maður og formaður Vg í Skagafirði, býður sig fram í 1. sæti Vg í forvali í Norð- vesturkjördæmi hefur annað til saka unnið en að vilja búa hér; og kall sem gat sér orð þegar hann var valinn til að stýra fátækri menningarstofnun og lét það þá verða sitt fyrsta verk að láta stofnunina kaupa handa sér rán- dýran montjeppa – fór svo að reka fólk til að afla fjár. Og kall sem lítur á hvalveiðar og stóriðju sem helstu hugsjónamál Íslands. Og kall sem er að finna í Panamaskjölum. Og kall og kall og kall. Skiptir það máli hvort karlar eða konur veljast? Nei. Og þess vegna skiptir það einmitt máli þegar aðeins karlar veljast. Því karlar eru alls konar og konur eru alls konar – og konur eru sem sé helmingur mannkyns. Og þess vegna tekur maður eftir því þegar annað kynið nánast hverfur af vettvangi hjá svo stórum og öflugum flokki. Nema Sjálfstæðisflokkurinn telji að nú sé kominn tími fyrir kynleiðréttingu hjá sér – eftir þær umbætur að losa sig við frjálslynda fólkið í Viðreisn. Móðir mín sagði einhvern tímann aðspurð um jafn- réttismál að hún skildi ekki hvernig karlar gætu haft fordóma gagnvart konum – konur væru helmingur mannkyns. Og bætti við: „Ekki hef ég neina fordóma gagnvart körlum.“ Þörfin fyrir bætta stöðu þessarar menntunar sýnir sig best í hinni gríðarlegu eftir- spurn eftir iðnmenntuðum starfsmönnum á flestum sviðum atvinnulífsins. Íbú- arnir og starfsfólkið vill að sjálfsögðu hafa skólann sinn og nám barna sinna í örugg- um höndum á heimaslóð. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 1 2 . s e p T e M B e R 2 0 1 6 1 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 9 -1 7 F 0 1 A 8 9 -1 6 B 4 1 A 8 9 -1 5 7 8 1 A 8 9 -1 4 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.