Fréttablaðið - 12.09.2016, Side 12
Í dag
18.50 Sunderland - Everton Sport
19.05 HK - Haukar Sport 3
21.00 Messan Sport 2
Olís-deild kvenna:
19.30 Valur - Fylkir Valshöllin
Nýjast
Man Utd 1 – 2 Man City
Arsenal 2 – 1 Southampton
Bournemouth 1 – 0 West Brom
Burnley 1 – 1 Hull City
Boro 1 – 2 Crystal Palace
Stoke City 0 – 4 Tottenham
West Ham 2 – 4 Watford
Liverpool 4 – 1 Leicester
Swansea 2 – 2 Chelsea
Efst
Man. City 12
Chelsea 10
Man Utd 9
Tottenham 8
Liverpool 7
Neðst
Leicester 4
West Ham 3
Southampton 2
Sunderland 1
Stoke City 1
Enska úrvalsdeildin
Pepsi-deild karla
KR - ÍBV 2-0
1-0 Morten Beck Andersen (73.), 2-0 Óskar
Örn Hauksson (87.).
Víkingur R. - Fjölnir 1-2
0-1 Martin Lund Pedersen (34.), 1-1 Bjarni
Páll Runólfsson (35.), 1-2 Pedersen (81.).
Fylkir - Víkingur Ó. 2-1
1-0 Jose „Sito“ Enrique (8.), 2-0 Arnar Bragi
Bergsson, víti (64.), 2-1 Pape M. Faye (83.).
Rautt spjald: Emir Dokara, Vík. Ó. (90+5.).
FH - Breiðablik 1-1
0-1 Árni Vilhjálmsson (32.), 1-1 Kristján Flóki
Finnbogason (33.).
Þróttur - ÍA 3-0
1-0 Christian Sörensen (25.), 2-0 Brynjar
Jónasson (48.), 3-0 Brynjar (80.).
Stjarnan - Valur 2-3
1-0 Ævar Ingi Jóhannesson (13.), 2-0 Hilmar
Árni Halldórsson (40.), 2-1 Sigurður Egill
Lárusson (45.), 2-2 Andreas Albech (78.), 2-3
Albech (90+6.).
Pepsi-deild kvenna
Stjarnan - Breiðablik 1-1
0-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir (53.), 1-1
Ana Victoria Cate (79.).
Rautt spjald: Arna Dís Arnþórsdóttir,
Breiðablik (75.).
Valur - ÍA 2-1
1-0 Mist Edvardsdóttir (8.), 2-0 Dóra María
Lárusdóttir (13.), 2-1 Hrefna Þuríður Leifs-
dóttir (70.).
Fylkir - FH 1-2
0-1 Alex Nicole Alugas (34.), 1-1 Kristín Erna
Sigurlásdóttir (64.), 1-2 Helena Ósk Hálf-
dánardóttir (89.).
ÍBV - KR 3-0
1-0 Abigail Cottam (61.), 2-0 Cloe Lacasse
(77.), 3-0 Sigríður Lára Garðarsdóttir (90+1.).
Selfoss - Þór/KA 0-0
Olís-deild karla
ÍBV - Haukar 34-28
Theodór Sigurbjörnsson 9/3, Sigurbergur
Sveinsson 8 - Guðmundur Árni Ólafsson 6/2
Stjarnan - Akureyri 26-23
Garðar B. Sigurjónsson 8/3, Ólafur Gústafs-
son 6 - Kristján Orri Jóhannsson 8/2.
FH - Valur 27-25
Ásbjörn Friðriksson 7, Óðinn Þór Ríkharðs-
son 5 - Sveinn Aron Sveinsson 10/4.
ÍBV 34 –25 Grótta
Stjarnan 20 – 21 Haukar
Selfoss 24 – 28 Fram
Olís-deild kvenna
HandbOlti Ólafur Gústafsson lék
sinn fyrsta leik með Stjörnunni þegar
liðið vann þriggja marka sigur, 26-23,
á Akureyri í 1. umferð Olís-deildar-
innar á laugardaginn.
„Sem nýliðar í deildinni vitum við
kannski ekki alveg hvar við stöndum,
þannig að það var mjög gott að byrja
á sigri,“ sagði Ólafur sem spilaði nær
allan leikinn, skoraði sex mörk og
var öflugur í vörninni.
Bara það eitt að spila heilan leik er
áfangi fyrir Ólaf en hann hefur lítið
spilað vegna erfiðra hnémeiðsla
undanfarin tvö ár.
Ólafur, sem er uppalinn FH-ingur,
fór út í atvinnumennsku síðla árs
2012 þegar þýska stórliðið Flens-
burg samdi við hann. Ólafur lék í tvö
ár með Flensburg og vann Meistara-
deild Evrópu með liðinu vorið 2014.
Þá um sumarið gekk hann í raðir Aal-
borg í Danmörku og strax á undir-
búningstímabilinu bankaði meiðsla-
draugurinn upp á.
„Þetta kom upp á undirbúnings-
tímabilinu. Ég var nýr í liðinu og
píndi mig áfram í einhvern tíma áður
en eitthvað var gert. Ég spilaði ekki
marga leiki og var aðallega nýttur í
vörninni,“ sagði Ólafur sem glímdi
við meiðsli á báðum hnjám. „Svo fór
ég í aðgerð síðasta sumar og var nán-
ast ekkert með á síðasta tímabili.“
Ólafur vildi spila áfram erlendis
en ákvað á endanum að koma aftur
heim.
„Maður vill alltaf halda sér úti. Ég
skoðaði einhverja möguleika og fór
á reynslu. En svo hugsaði ég með
mér að það væri mjög gott að koma
heim og hafa svigrúm til að ná mér
og byrja svolítið frá grunni. Ég sé ekki
eftir því,“ sagði Ólafur. En af hverju
varð Stjarnan fyrir valinu?
„Það voru lið sem settu sig í sam-
band við mig en ég endaði á því að
velja Stjörnuna. Þeir sýndu mjög
mikinn áhuga og voru fyrstir til að
tala við mig. Ég þekkti einhverja
leikmenn þarna sem og þjálfarann
[Einar Jónsson],“ sagði Ólafur og
bætti því við að markmið Stjörn-
unnar væri að festa sig í sessi í Olís-
deildinni en liðið hefur flakkað á
milli deilda undanfarin ár.
Ólafur var heill í sumar, æfði vel og
segist vera í góðu formi.
„Ástandið er mjög gott. Ég var
á fullu á undirbúningstímabilinu,
nema ég fékk hvíld í nokkrum
æfingaleikjum til að stýra álaginu.
Maður var allt í einu kominn í úti-
hlaupin og allt þetta skemmtilega
aftur,“ sagði Ólafur sem nýtur þess
að vera inni í vellinum í stað þess
að vera á sjúkrabekknum eða uppi
í stúku.
„Mér líður mjög vel í líkamanum
eins og er og sé ekkert því til fyrir-
stöðu að ég leiki flesta leiki í vetur.
Það er gaman að vera kominn til
baka og farinn að spila handbolta.
Ég reyni bara að njóta þess. Þetta er
það skemmtilegasta sem ég geri,“
sagði Ólafur að endingu.
ingvithor@365.is
Reyni að njóta
þess að spila
Ólafur Gústafsson er kominn aftur á ról eftir erfið og
langvinn meiðsli. Eftir fjögur ár í atvinnumennsku
ákvað hann að koma heim og endurræsa ferilinn.
Mér líður mjög vel í
líkamanum eins og
er og sé ekkert því
til fyrirstöðu að
ég leiki flesta
leiki í vetur.
Ólafur Gústafsson
Meistararnir í draumastöðu
Sjö stiga forskot FH-ingar eru með bestu spilin á hendi í toppbaráttu Pepsi-deildar karla eftir 1-1 jafntefli við Breiðablik í Kaplakrika í gær. FH er
því áfram með sjö stiga forystu á toppnum þegar fjórum umferðum er ólokið. Það þarf því mikið að ganga á ef Fimleikafélagið verður ekki Íslands-
meistari annað árið í röð og í áttunda sinn á síðustu 13 árum. Næsti leikur FH er gegn Fylki í Árbænum á fimmtudaginn. FRéttABlAðið/ERNiR
1 2 . s e P t e m b e r 2 0 1 6 m Á n U d a G U r12 s P O r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð
sport
1
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
9
-1
3
0
0
1
A
8
9
-1
1
C
4
1
A
8
9
-1
0
8
8
1
A
8
9
-0
F
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K