Fréttablaðið - 12.09.2016, Side 14
Hjartkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Páll Lárusson Rist
bóndi og fyrrum lögregluþjónn,
Litla-Hóli, Eyjafjarðarsveit,
sem lést á heimili sínu þriðjudaginn
30. ágúst, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 14. september klukkan 13.30.
Kristín Þorgeirsdóttir
Þórður Rist Lára Jósefína Jónsdóttir
Jóhann Pálsson Rist Brynhildur Pétursdóttir
Þorgeir Jóhannesson Ragnheiður Sigfúsdóttir
Margrét Rist Björgvin Tómasson
Vilhjálmur Rist Jane Victoria Appleton
Ólöf Rist Stéphane Aubergy
afabörn og langafabörn.
Te & Kaffi hefur unnið það afrek
að safna um þrjátíu milljónum
króna fyrir UNICEF, Barnahjálp
Sameinuðu þjóðanna, frá því að
fyrirtækið gerðist styrktaraðili
UNICEF árið 2008.
Fénu hefur verið safnað með sölu
á kaffi til fyrirtækja til styrktar UNI-
CEF á Íslandi og með átaksverkefn-
um. Eitt slíkt, Klárum málið sem er
átaksverkefni gegn mænusótt (löm-
unarveiki), fór í gang föstudaginn
2. september og stendur út þessa
viku. Mænusótt er einungis landlæg
í tveimur ríkjum í dag en þau voru
125 árið 1988.
„Við hjá UNICEF á Íslandi erum
stolt af samstarfinu við Te & Kaffi og
það er yndislegt að finna hvað þau
láta sig hjálparstarfið og baráttuna
fyrir réttindum barna miklu máli
skipta,“ segir Sigríður Víðis Jóns-
dóttir, kynningarstjóri og upplýs-
ingafulltrúi UNICEF á Íslandi, um
söfnunina.
„Framlögin sem hafa safnast hjá
Te & Kaffi frá 2008 hafa farið í rétt-
indabaráttu fyrir börn um allan
heim, baráttuna gegn mænusótt,
baráttu gegn ebólu og í mennta-
verkefni fyrir börn í Kólumbíu upp
á síðkastið. Það er mjög fallegt verk-
efni. Kaffið sem við höfum selt fyrir-
tækjum er ræktað í Cauca-héraðinu
í Kólumbíu og það eru konur sem
eiga og reka búgarðinn og handtína
baunirnar. Framlögin sem safnast
með kaffisölunni hér á landi fara
síðan í að styðja börn frá frum-
byggjasamfélögum á þessu sama
svæði til náms, í gegnum mennta-
verkefni UNICEF,“ segir Sigríður.
„Við hjá Te & Kaffi erum stolt af
samstarfinu við UNICEF á Íslandi
og þykir afskaplega vænt um það.
Við erum búin að vera stoltur
styrktaraðili frá árinu 2008 og
höfum á þeim tíma safnað um þrjá-
tíu milljónum króna og erum hvergi
nærri hætt. Samstarfið við UNICEF
er hryggjarstykkið í okkar stefnu
um samfélagslega ábyrgð og nýtur
hún mikils stuðnings starfsmanna
alls staðar í fyrirtækinu,“ segir
Guðmundur Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Te & Kaffi.
Fram til sunnudags mun Te &
Kaffi gefa andvirði einnar bólu-
setningar gegn mænusótt fyrir
hvern seldan drykk og er við-
skiptavinum boðið að gera það
sama. Skammtur af bóluefninu
kostar einungis 25 krónur. „Ég held
að við séum búin að safna fyrir tíu
þúsund bólusetningum núna, við
keyrum bara eins mikið á þetta og
við getum þessa viku og vonumst
til að safna sem mestu,“ segir Guð-
mundur.
saeunn@frettabladid.is
Hafa safnað 30 milljónum fyrir UNICEF
Frá árinu 2008 hefur Te & Kaffi safnað þrjátíu milljónum fyrir Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna með sölu til fyrirtækja og átaksverkefn-
um. Núna stendur yfir átaksverkefni gegn mænusótt. Framlögin sem hafa safnast hafa farið í réttindabaráttu fyrir börn um allan heim.
Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF, Eliza Reid forsetafrú og Guðmundur Halldórsson, framkvæmdastjóri hjá Te & Kaffi, þegar átaksverkefnið Klárum málið fór af stað. MyNd/UNICEF
Í dag eru liðin 54 ár frá því að David Ben-
Gurion, fyrsti forsætisráðherra Ísraels,
kom í opinbera heimsókn til Íslands.
Ben-Gurion lenti á Reykjavíkurflug-
velli en þar beið margmenni. Ólafur
Thors, þáverandi forsætisráðherra, tók
á móti ísraelska starfsbróður sínum fyrir
Íslands hönd.
Ísraelski forsætisráðherrann dvaldist
hér á landi í fjóra daga. Á þeim tíma
snæddi hann með forseta Íslands,
Ásgeiri Ásgeirssyni, og síðar með borg-
arstjórn Reykjavíkur. Þá skoðaði hann
Háskóla Íslands, Þingvelli og Þjóðminja-
safnið en með í för voru dr. Kristján
Eldjárn, þáverandi þjóðminjavörður,
og Gylfi Þ. Gíslason sem þá var mennta-
málaráðherra. – jóe
Þ ETTa G E R ð I ST 1 2 . S E p T E M B E R 1 9 6 2
David Ben-Gurion heimsækir Ísland
david Ben-Gurion var fyrsti forsætisráðherra Ísraels. NoRdICPHoTos/GETTy
1 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r14 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
1
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
9
-2
1
D
0
1
A
8
9
-2
0
9
4
1
A
8
9
-1
F
5
8
1
A
8
9
-1
E
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K