Fréttablaðið - 12.09.2016, Side 41
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17.
INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16.
REEBOK WORKOUT 2.0
Herrastærðir: 42-46.
GOTT
VERD!
14.990
KviKmynd
The neon demon
HHHHH
Leikstjóri og handritshöfundur:
Nicolas Winding Refn
Framleiðendur: Lene Børglum, Nico-
las Winding Refn
Aðalhlutverk: Elle Fanning, Jena
Malone, Bella Heathcote
Danski leikstjórinn Nicolas Wind-
ing Refn er ekki sérstaklega þekktur
fyrir að fara fínt í hlutina eða með
hefðbundnum hætti. Hann hefur
sýnt og staðfest með myndum eins
og Valhalla Rising, Drive og Only
God Forgives hvað hann fer fag-
lega að því að móta draumkennt
andrúmsloft, hneyksla með áköfu
ofbeldi og ekki síður kljúfa áhorf-
endur í tvo hópa. Skiljanlega. Þessa
síðastnefndu er varla hægt að kalla
auðmelta kvikmynd og The Neon
Demon enn þá síður.
Sagan í grófum dráttum segir frá
hinni 16 ára Jesse sem flytur til Los
Angeles og dreymir um að gerast
fyrirsæta. Jesse býr yfir miklum
sakleysislegum sjarma og heillar
alla upp úr skónum. Það líður þó
ekki á löngu áður en samkeppni og
öfundsýki annarra lætur á sér kræla
og bráðlega kynnist Jesse því að í
þessum átakanlega fyrirsætubransa
snýst lífið annaðhvort um það að
éta eða vera étinn.
Myndinni er bæði stillt upp sem
eins konar grimmilegu ævintýri
og óforskammaðri skilaboðasögu
um útlitsdýrkun og spillingu sak-
leysisins. Refn notar tískugeirann
sem áhrifaríkan stökkpall til þess
að stúdera girnd, hégóma, fegurð
og hrylling, innri djöfla og ytri og
margs konar táknmyndir. Prakkar-
inn í honum skín þó vel í gegn og
nær að örva, ögra, stöku sinnum
dáleiða og kitla hinar allra svörtustu
hláturtaugar áhorfenda.
The Neon Demon er ekki bein-
línis aðgengileg, en meiriháttar
rugluð er hún, djörf og sérstök. Í
augum margra jaðrar úrvinnslan
við hreina og beina tilgerð. En hvort
sem manni líkar betur eða verr er
ljóst að Refn hefur mikið að segja
með þessu martraðarkennda inn-
liti sínu í útlitsbransann. Framvinda
myndarinnar er óútreiknanleg og
sterk og innan hennar er að finna
allnokkrar mátulega truflandi senur
sem eru ekki líklegar til að yfirgefa
heilabúið í bráð. Refn hefur einnig
einstaklega næmt auga fyrir stökum
römmum sem skera sig úr og gætu
staðið sem sjálfstæð listaverk.
Refn nýtir sér ýkta og draum-
kennda stílíseringu og leikur sér
með myndmál, andrúmsloft og
hugmyndir frekar en að binda sig
við ákveðnar handritsreglur. Kvik-
myndataka, lýsing, litanotkun og
almenn umgjörð er sérlega grípandi
og innsiglar öflug tónlistin frá Cliff
Martinez þessa stemningu leik-
stjórans og gefur verkinu góðan
púls. Leikkonurnar koma einnig
glæsilega út í krefjandi hlutverkum
og ekki skemmir fyrir að hafa einn
reiðan Keanu Reeves á svæðinu.
The Neon Demon er mynd sem
þarf fyrst og fremst að upplifa frekar
en að botna samstundis í. Hún veitir
engin einföld svör og bjóða ramm-
arnir upp á ýmsar klikkaðar túlkan-
ir og umræður. Hún er erfið, súr og
vægðarlaus og á köflum næstum því
yfirgengilega yfirdrifin, en á sama
tíma vekur hún mann til umhugs-
unar og kemur sínum skilaboðum
á framfæri á frumlegan og einkenn-
andi hátt. Ég verð hissa ef myndin
verður ekki talin költ-klassík eftir
áratug eða svo.
Tómas Valgeirsson
Fegurðin grimma
Heimur fyrirsætanna getur verið grimm-
ur og dregið það versta fram í fólki.
Nýjasta kvikmynd Nicolas Winding Refn, Neon Demon, segir frá hinni 16 ára Jesse sem flytur til Los Angeles og dreymir um að
gerast fyrirsæta.
Elle Fanning fer með aðalhlutverkið í The Neon Demon.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21m Á n U d A g U R 1 2 . s e p T e m B e R 2 0 1 6
1
2
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
9
-3
A
8
0
1
A
8
9
-3
9
4
4
1
A
8
9
-3
8
0
8
1
A
8
9
-3
6
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
1
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K