Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.09.2016, Qupperneq 41

Fréttablaðið - 12.09.2016, Qupperneq 41
INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 11 - 17. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. REEBOK WORKOUT 2.0 Herrastærðir: 42-46. GOTT VERD! 14.990 KviKmynd The neon demon HHHHH Leikstjóri og handritshöfundur: Nicolas Winding Refn Framleiðendur: Lene Børglum, Nico- las Winding Refn Aðalhlutverk: Elle Fanning, Jena Malone, Bella Heathcote Danski leikstjórinn Nicolas Wind- ing Refn er ekki sérstaklega þekktur fyrir að fara fínt í hlutina eða með hefðbundnum hætti. Hann hefur sýnt og staðfest með myndum eins og Valhalla Rising, Drive og Only God Forgives hvað hann fer fag- lega að því að móta draumkennt andrúmsloft, hneyksla með áköfu ofbeldi og ekki síður kljúfa áhorf- endur í tvo hópa. Skiljanlega. Þessa síðastnefndu er varla hægt að kalla auðmelta kvikmynd og The Neon Demon enn þá síður. Sagan í grófum dráttum segir frá hinni 16 ára Jesse sem flytur til Los Angeles og dreymir um að gerast fyrirsæta. Jesse býr yfir miklum sakleysislegum sjarma og heillar alla upp úr skónum. Það líður þó ekki á löngu áður en samkeppni og öfundsýki annarra lætur á sér kræla og bráðlega kynnist Jesse því að í þessum átakanlega fyrirsætubransa snýst lífið annaðhvort um það að éta eða vera étinn. Myndinni er bæði stillt upp sem eins konar grimmilegu ævintýri og óforskammaðri skilaboðasögu um útlitsdýrkun og spillingu sak- leysisins. Refn notar tískugeirann sem áhrifaríkan stökkpall til þess að stúdera girnd, hégóma, fegurð og hrylling, innri djöfla og ytri og margs konar táknmyndir. Prakkar- inn í honum skín þó vel í gegn og nær að örva, ögra, stöku sinnum dáleiða og kitla hinar allra svörtustu hláturtaugar áhorfenda. The Neon Demon er ekki bein- línis aðgengileg, en meiriháttar rugluð er hún, djörf og sérstök. Í augum margra jaðrar úrvinnslan við hreina og beina tilgerð. En hvort sem manni líkar betur eða verr er ljóst að Refn hefur mikið að segja með þessu martraðarkennda inn- liti sínu í útlitsbransann. Framvinda myndarinnar er óútreiknanleg og sterk og innan hennar er að finna allnokkrar mátulega truflandi senur sem eru ekki líklegar til að yfirgefa heilabúið í bráð. Refn hefur einnig einstaklega næmt auga fyrir stökum römmum sem skera sig úr og gætu staðið sem sjálfstæð listaverk. Refn nýtir sér ýkta og draum- kennda stílíseringu og leikur sér með myndmál, andrúmsloft og hugmyndir frekar en að binda sig við ákveðnar handritsreglur. Kvik- myndataka, lýsing, litanotkun og almenn umgjörð er sérlega grípandi og innsiglar öflug tónlistin frá Cliff Martinez þessa stemningu leik- stjórans og gefur verkinu góðan púls. Leikkonurnar koma einnig glæsilega út í krefjandi hlutverkum og ekki skemmir fyrir að hafa einn reiðan Keanu Reeves á svæðinu. The Neon Demon er mynd sem þarf fyrst og fremst að upplifa frekar en að botna samstundis í. Hún veitir engin einföld svör og bjóða ramm- arnir upp á ýmsar klikkaðar túlkan- ir og umræður. Hún er erfið, súr og vægðarlaus og á köflum næstum því yfirgengilega yfirdrifin, en á sama tíma vekur hún mann til umhugs- unar og kemur sínum skilaboðum á framfæri á frumlegan og einkenn- andi hátt. Ég verð hissa ef myndin verður ekki talin költ-klassík eftir áratug eða svo. Tómas Valgeirsson Fegurðin grimma Heimur fyrirsætanna getur verið grimm- ur og dregið það versta fram í fólki. Nýjasta kvikmynd Nicolas Winding Refn, Neon Demon, segir frá hinni 16 ára Jesse sem flytur til Los Angeles og dreymir um að gerast fyrirsæta. Elle Fanning fer með aðalhlutverkið í The Neon Demon. m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21m Á n U d A g U R 1 2 . s e p T e m B e R 2 0 1 6 1 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K _ N Ý. p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 9 -3 A 8 0 1 A 8 9 -3 9 4 4 1 A 8 9 -3 8 0 8 1 A 8 9 -3 6 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.