Fréttablaðið - 12.09.2016, Page 46

Fréttablaðið - 12.09.2016, Page 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Q U I C K R E F R E S H ™ Á K L Æ Ð I Rennilás gerir það afar einfalt er að taka QuickRefresh áklæðið af dýnunni og þvo. FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Háþróað TEMPUR® efni Precision™ Micro gormar Við höfum endurskapað heilsudýnuna. Aftur. Rennilásinn er líklega það eina sem við endurhönnuðum ekki. NÝJA TEMPUR® Hybrid heilsudýnan Með því að sameina háþróaða TEMPUR® efnið og hina vönduðu Precision™ micro gorma aðlagar nýja TEMPUR® Hybrid heilsudýnan sig fullkomlega að líkama þínum og bregst við hreyfingum þínum þannig að þú upplifir réttan stuðning og hámarksþægindi. Til enn frekari þægindaauka er dýnan klædd QuickRefresh™ áklæði sem taka má af með rennilás og þvo. T E M P U R ® H Y B R I D H E I L S U DÝ N A N Frumlegasta hönnun TEMPUR til þessa! A F S L ÁT T U R 25% KO M D U N Ú N A ! T E M P U R-D A G A R Eiginnafnið Kristín er það þriðja algengasta á landinu, á eftir Guð-rúnu og Önnu. Alls heitir 3.571 kona Kristín og nú loksins hefur verið stofnaður hópur sem er ætlaður til þess að halda utan um þær. Það var hún Kristín Guðmundsdóttir sem hóf þetta allt saman en í dag eru í stofnhópnum þær Kristín Edda Frí- mannsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Kristín Björk Smáradóttir, Kristín Hildur Ragnarsdóttir og Kristín Sverrisdótt- ir. Þær ætla sér að bæta við hópinn hægt og rólega á næstu mánuðum. „Þetta kom þannig til að ég var að vinna með Kristínu Dóru og Krist- ínu Björk í allt sumar. Einn daginn var ég að tala um hvað ég þekkti margar skemmtilegar Kristínar. Þá hafði ég heyrt af hópi sem hélt utan um konur sem heita Ragnheiður og ég sagði þeim frá því. Þá var það bara slegið og hópurinn var stofnaður sama dag. Við erum sjö núna til að byrja með en ætlum að bæta  við þegar á líður,“ segir Kristín Guð- mundsdóttir. Það verður nóg um að vera hjá Kristínunum en stofnhópurinn vinnur að skipulagningu nokkurra viðburða á næstu mánuðum. „Við ætlum að hittast á hverjum árs- fjórðungi og þá bjóða alltaf með okkur Kristínum. Svo höfðum við hugsað okkur að bjóða strákum sem heita Kristinn á einn viðburðinn. Svo erum við að reyna að koma á fót þeirri reglu að hittast alltaf á kaffi- húsi fyrsta föstudaginn í mánuð- inum. Næsta sumar ætlum við að fara í helgarferð saman og ganga á Kristínartinda í Skaftafelli.“ Kristín segir að það geti komið upp fyndnar aðstæður þegar svo margar Kristínar eru samankomnar á einum stað en það sé alltaf auð- velt að skynja um hvaða Kristínu sé verið að tala. „Við vorum til dæmis á Kaffitári á dögunum og þá var Kristín kölluð upp því kaffið hennar var til- búið. Við litum auðvitað allar við enda getur þetta verið ruglandi.“ Fram undan hjá Kristínunum er að halda lokaviðburð fyrir stofnhópinn í október áður en þær stækka við sig. Um jólin á svo að halda alvöru veislu þar sem allir mega bjóða einni Krist- ínu með sér. „Þú þarft ekki endilega að þekkja Kristínuna sem þú býður með þér og þær sem mæta þurfa ekki endilega að verða partur af hópnum, þetta verður allt mjög frjálslegt.“ Úr nægu er að velja af flottum og frambærilegum Kristínum hér á landi og er vonin sú að einhverjar af þekktari Kristínunum sláist í hópinn á einhverjum tímapunkti. „Það væri draumur að fá Kristínu Ólafsdóttur kvikmyndaframleiðanda sem og Kristínu Ingólfsdóttur fyrrverandi rektor Háskóla Íslands. Það er alla- vega nóg um að velja.“ Mikið til af skemmtilegum Kristínum á Íslandi Sjö ungar stúlkur sem allar heita Kristín hafa stofnað hóp til þess að halda utan um konur sem bera það eiginnafn. Þær ætla hægt og rólega að bæta í hópinn og halda reglulega viðburði. Næsta sumar stefna þær á að ganga saman á Kristínartinda í Skaftafelli. Þær Kristín Guðmundsdóttir, Kristín Björk Smáradóttir, Kristín Dóra Ólafsdóttir, Kristín Ólafsdóttir og Kristín Edda Frímanns- dóttir bera nafn sitt með sóma. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Við VoruM til dæMis á Kaffitári á dögunuM og þá Var KristÍn Kölluð upp þVÍ Kaffið hennar Var tilbúið. Við lituM auðVitað allar Við enda getur þetta Verið ruglandi. 3.571 Kona ber eiginnafnið KristÍn á Íslandi. Gunnhildur Jónsdóttir gunnhildur@frettabladid.is Nafnahópar sem þessi eru ekki nýir af nálinni hér á landi. Til eru Facebook-hópar fyrir fólk sem heitir Ragnheiður og Stefán. stefán Í Facebook-hópnum sem heldur utan um menn sem heita Stefán eru 258 meðlimir. Þeir sem bera eiginnafnið Stefán hér á landi eru þó 2.205 talsins. ragnheiður Til er Facebook-hópur fyrir konur sem heita Ragnheiður á Íslandi. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, er ein af stjórnendum þessa hóps. 41 Ragnheiður er í hópnum en alls eru 1.302 sem bera eiginnafnið á landinu. aðrir nafnahópar 1 2 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m Á N U D A G U r26 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð 1 2 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :4 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 9 -2 6 C 0 1 A 8 9 -2 5 8 4 1 A 8 9 -2 4 4 8 1 A 8 9 -2 3 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 1 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.