Fréttabréf - 01.02.1993, Síða 7

Fréttabréf - 01.02.1993, Síða 7
raska ekki náttúrulegum umhverfisþáttum. Stefna aö eðlilegu jafnvægi manns og náttúru. En hvemig elgum við þá aö auka hagvöxt og atvinnu? Við eigum enn ónýttar auðlindir. Auðlindir mannsand- ans em þar stærstar, og þær endumýja sig sífellt með nýjum kynslóöum. Viö höfum ekki enn viðurkennt nema í orði mikil- vaagi rannsókna og þróunarstarfsemi fyrir atvinnusköpun og verömætaaukningu. Slíku er ekki fylgt eftir af neinum krafti. Dregiö er úr fjármagni til menntunar á öllum skólastigum. Fjármagn til rannsókna og þróunarstarfsemi er í algjöru lág- marki. Það er ekki nóg aö tala fjálglega um að 1/5 hluti af sölu eigna ríkislns eigi aö fara til aukinna rannsóknarstarfa eins og gert er í fjárlögum nú. Þaö er ekkert sem segir að þær eignir seljist. Þessi loforö em því eins og fugl i skógi, en ekkert fast í hendi. Vissulega hafa nokkur sjávarútvegsfyrirtæki skilið mikilvægi þessa og lagt fjármagn til rannsókna og þróunar, m.a. meö ráöningu háskólamenntaöra sjávarútvegsfræöinga til aö vinna aö nýjum verkefnum og samvinnuverkefnum, m.a. Rannsóknarstofnun fiskiönaöarins. Þaö hefur skilaö árangri, en betur má ef duga skai og þaö þarf vemlegt átak í þessum máium. Möguleikamir liggja þar sem viö höfum langa reynslu, eins og í ýmsum greinum sjávarútvegs og tækniþróun í tengsl- um viö hann. f fólkinu býr framtfðin. En stjómvöld skilja ekki sinn vitjunartíma. Þau horfa ekki í kringum sig og vinna úr þeim auðlindum sem þar em. Stóriöjuþankar yfirskyggja allt annaö. Enn er haldiö í von um álver þrátt fyrir lækkandi verö og mikiö framboö og lokun verksmiöja annars staöar í heiminum í framhaldi af því. Álverið í Straumsvík berst í bökkum og er rekiö meö tapi. Sama gildir um Jámblendiverksmlöjuna á Qmndartanga, sem á í miklum rekstrarerfiöleikum. Og horft er framhjá því aö hér er um mengandi starfsemi aö ræöa. En viö eigum aukna möguleika í feröaþjónustu, nýtingu á hugviti og þekkingu, líftækni, orkunni og úrvinnslu á því hráefni, sem til er í landinu bæöi úr jurtaríki og dýraríki. Þessi atriði höfum viö ekki fullnýtt hingað til, og það er mikil skamm- sýni aö snúa sér ekki aö því í fullri alvöru aö nýta þessar auð- lindir. En viö veröum umfram allt aö hafa skilning á því, aö í fólkinu sjálfu býr hagvöxtur framtíöarinnar

x

Fréttabréf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.