Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 27

Morgunblaðið - 02.12.2015, Page 27
en því má ekki gleyma að skógrækt var hugsjónastefna á árum áður, ná- tengd þeirri ungmennafélags- og þjóðernisvakningu að byggja upp land og þjóð. Og áhugamálin, Jón? Skógrækt og útivist er að vísu líka áhugamál en við hjónin keyptum jörðina Stóra-Sandfell 1 árið 1994. Stóra-Sandfell er stór jörð og höfum við þegar gróðursett nokkur hund- ruð hektara og eru fyrstu gróður- setningarnar komnar á grisjunar- stig þannig að eftirlaunaþeginn Jón hefur nóg að gera í framtíðinni. Þeg- ar starfinu í skógrækt sleppir er það hestamennska. Hesturinn var lengst af þarfasti þjónninn hans afa á ferð- um hans, en hann skrifaði fræga hestabók, Sleipni, og starfaði í hestamannafélaginu Fáki. Einar, sonur hans, var mikið með hesta og við vorum með hesta í Kópavogi. Ég komst því ungur á bak. Eftir að ég kom austur hef ég alltaf verið með hesta. Útreiðartúrar í lok vinnudags endurnæra alltaf líkama og sál. Auk þess fer ég á skotveiði, á rjúpur og hreindýr, en ég hef alltaf verið ósnortinn af stangveiði.“ Fjölskylda Jón kvæntist 3.4. 1971 Berit Hel- ene Johnsen, f. 20.5. 1951, dósent í sérkennslufræði við Óslóarháskóla, búsett að Stóra-Sandfelli. Hún er dóttir Arne J. Johnsen, fyrrv. yfir- verkstjóra, og Kari G. Johnsen rit- ara sem bæði eru látin. Börn Jóns og Berit eru Loftur Þór, f. 4.9. 1971, lektor við háskólann í Bergen en kona hans er Edda Sif Óttarsdóttir talmeinafræðingur við Haukland sykehus í Bergen og eru börn þeirra Móeiður, f. 2004, Jón Starkaður, f. 2006, og Hrólfur, f. 2009; Andra Björk, f. 31.8. 1974, menntaskólakennari í Ósló en maður er Olav Andreas Hoemsnes, yfir- kerfisverkfræðingur við Óslóarhá- skóla en börn þeirra eru Nói Gunn- ar, f. 2005, og Anna Björk, f. 2008; Sólrún Kari, f. 8.6. 1977, viðskipta- fulltrúi við íslenska sendiráðið í Ósló, en maður hennar er Aimar Niedzwiedzki Braaten markaðs- stjóri og eru börn þeirra Nikulás, f. 2009, og Elena, f. 2011; Árni Berúlf- ur, f. 14.7. 1984, þrívíddar-tölvu- hönnuður í Reykjavík en kona hans er Saga Kjartansdóttir, MA í ráð- stefnutúlkun og er sonur þeirra Kjartan Loki, f. 2014, en sonur Árna og Sylvíu Erlendsdóttur er Ellert Úlfur, f. 2010. Bræður Jóns eru Einar Loftsson, f. 2.5. 1949, húsasmíðameistari í Kópavogi, og Yngvi Þór Loftsson, f. 11.2. 1952, landslagsarkitekt, búsett- ur í Kópavogi. Foreldrar Jóns voru Loftur Þór Einarsson, f. 26.6. 1921, d. 30.5. 1954, húsasmíðameistari í Reykja- vík, og Kópavogi, og k.h., Guðrún Einarsdóttir, f. 4.9. 1922, d. 2.9. 2003, húsfreyja. Úr frændgarði Jóns Loftssonar Jón Loftsson Guðrún Júlíana Jóhannsdóttir húsfreyja á Hrafnhóli Guðmundur Þorleifsson b. á Hrafnhóli í Hjaltadal Guðrún Sigfríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Rvík Einar Sæmundsen skógarvörður á Suðurlandi Guðrún Einarsdóttir húsfr. í Rvík og Kópavogi Guðrún Jónsdóttir á Surts- stöðum í Jökulsárhlíð Ingibjörg Jónsdóttir Ingibjörg Loftsdóttir húsfr., frá Vatnsskarðshólum Jón Pétursson b. á Setbergi í Fellum Pétur Valdimar Jóhannes- son b. í Teigi Sigríður Sæmundsen húsfr. í Winnipeg Þorsteinn Valdimars- son skáld Einar Árnason ritstj. Lögbergs í Winnipeg Soffía Emilía Haraldsdóttir húsfr. í Rvík Elín Sigríður Ellingsen húsfr. í Rvík Haraldur Ellingsen María Ellingsen leikkona Haraldur Sveinsson fyrrv. framkvæmdastj. Árvakurs Leifur Sveinsson lögfræðingur Sveinn K. Sveinsson verkfr. og fyrrv. forstj. Völundar Ólafur Sæmundsen skógfræðingur Einar Sæmundsen fyrrv. garðyrkjustj. Kópavogs Böðvar Guðmundsson fyrrv. skógarvörður á Suðurlandi Valgerður Jónsdóttir húsfr. á Rauðsgili í Hálsa- sveit og í Hafnarfirði Jón Jónsson b. í Klausturseli í Jökuldal Jón Helgason skáld og prófessor í Kaupmannahöfn Hrafnkell Jóns- son safnvörður á Egilsstöðum Guðfinna Pétursdóttir húsfr. á Glúmsstöðum, af Melaætt Stefán Hallgrímsson b. á Glúmsstöðum í Fljótsdal Ingunn Stefánsdóttir húsfr. á Geldingalæk vestri Einar Jónsson alþm. á Geldingalæk vestri á Rangárvöllum Loftur Þór Einarsson húsasmíðam. í Rvík og Kópavogi Þuríður Einarsdóttir húsfr., frá Gunnarsholti á Landi, bróðurdóttir Magnúsar á Stokkalæk, afa Böðvars, hreppstj. á Laugarvatni Jón Loftsson b. á Geldingalæk vestri Einar G.E. Sæmundsen skógarv. á SV-landi og framkvstj. Skógræktar- fél. Rvíkur Bergljót Sigurðardóttir húsfr. í Rvík Einar Sæmundsen kennari, var í Englandi og fór til Winnipeg 1885 Soffía Emelía Einarsd. húsfr. í Stykkishólmi ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2015 90 ára Þórunn Eggþóra Andrésdóttir 85 ára Hilmar Guðlaugsson Hrefna Björnsdóttir Jóhann Stefánsson 80 ára Bára Bergmann Pétursdóttir Garðar Jónsson Hjördís Halldórsdóttir Sveinn Gunnarsson 75 ára Gunnar Karlsson Halldóra S. Guðnadóttir 70 ára Bergsteinn Gíslason Brynhildur Vilhjálmsdóttir Ding Wei Yu Egon Thygesen Marcher Friðjón Magnússon Helga Hansen Helga Ragnarsdóttir Jóhannes S. Stefánsson Margrét Andrésdóttir Svala Þórhallsdóttir 60 ára Bjarni Þór Tryggvason Einar Kristinn Guðfinnsson Guðbjörg S. Sigurðardóttir Gyða Árný Helgadóttir Jón Arnkelsson 50 ára Arnheiður Runólfsdóttir Ásmundur Ísak Jónsson Björk Ásgeirsdóttir Hjálmar Guðmundsson Jóhann Geir Árnason Kristján Freyr Helgason Ólafur Melsted Rúnar Ásmundur Harðarson Röfn Friðriksdóttir Svandís Geirsdóttir 40 ára Barbara Myszak Bergþóra Silva Hólm Elfa Margrét Ingvadóttir Hrannar Már Sigrúnarson Hulda Margrét Þorláksdóttir Jenna Granz Kristín Guðmundsdóttir Már Ívar Henrysson Michael Danny Förster Regína Böðvarsdóttir Sylvía Ósk Kristínardóttir Ægir Gauti Þorvaldsson 30 ára Daníel Þór Víðisson Heiða María Gunnlaugsdóttir Helena Hrund Ingimundardóttir Sandra Árnadóttir Sigurður Hans Arason Snorri Snorrason Tinna Brekkan Una Dagný Hreiðarsdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Kolbrún ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk diplómaprófi í mótun við Myndlistaskólann í Reykjavík og starfar í gestamóttöku við hótel. Systkini: Ísleifur, f. 1980, Hrafnkell Ingi, f. 1991, og Védís, f. 1996. Foreldrar: Gissur Ísleifs- son, f. 1958, forstjóri hjá Tölvumiðlun, og Bjarney Linda Ingvarsdóttir, f. 1958, fyrrv. þjónn og bókari. Kolbrún Gissurardóttir 30 ára Ragnar ólst upp í Reykjavík, býr þar og starfar hjá Dagnýjar sam- lokum. Maki: María Denah K.R. Deluna, f. 1985, sjúkraliði. Stjúpsonur: James Liam, f. 2011. Foreldrar: Ragnar Daní- elsson, f. 1952, pípulagn- ingameistari, og Hanna Indíana Sigurgeirsdóttir, f. 1954, fyrrv. verslunar- maður. Þau eru bús. í Reykjavík. Ragnar Þór Ragnarsson 40 ára Sóley er Hafnfirð- ingur og er læknaritari á Landspítalanum Maki: Egill Björnsson, f. 1980, vinnur í Húsa- smiðjunni. Börn: Alexander Björn, f. 2007, Kristófer Árni, f. 2010, og Elís Hilmar, f. 2011. Foreldrar: Árni Gústafs- son, f. 1954, og Bára Ás- geirsdóttir, f. 1959. Þau reka Bitahöllina á Stór- höfða í Reykjavík. Sóley Árnadóttir Hinn 12. október sl. í Centre d’Imm- unologie de Marseille-Luminy (CIML) í Frakklandi varði Laufey Geirsdóttir doktorsritgerð sína í ónæmisfræði og stofnfrumuvísindum. Hún ber heitið: Sjálfsendurnýjun stórátsfruma, bar- áttan við Maf til að lifa að eilífu (e. Self-renewal of macrophages: Fight- ing Maf for eternity). Laufey útskrif- aðist með ,,PhD très honorable et félicitations du jury“, hæstu einkunn sem gefin er í frönskum háskólum. Grein hennar hefur verið samþykkt í hinu virta vísindariti Science. Almennt hefur verið talið að ein- ungis stofnfrumur geti endurnýjað sig með frumuskiptingum og þannig viðhaldið fjölda sínum um lengri tíma. Nú hefur nýlega komið í ljós að þessi endurnýjun getur einnig átt sér stað meðal vissra fruma ónæmiskerfisins, sem kallast stórátsfrumur (e. macro- phages) en undirliggjandi ferlar hafa ekki verið kannaðir. Við höfum áður sýnt fram á að vissir umritunarþættir, sem kallast MafB og c-Maf, spila meginhlutverk í sjálfsendurnýjun stó- rátsfruma, þar sem fjarvera þeirra leiðir til aukinnar sjálfsendurnýjunar. Þessi sjálfsendur- nýjun hefur ekki áhrif á eiginleika þeirra sem ónæmisfrumur þar sem þær starfa eðlilega í líkamanum og mynda ekki krabbamein. Meg- inmarkmið rannsóknarinnar var að skilja sameindafræðilega ferla sem stýra endurnýjun stórátsfruma í lík- amanum. Til að ná því markmiði var framkvæmd ChIP-seq greining á litn- isskipulagi í fjarveru MafB og bera saman við villigerðar litnisskipulag stórátsfruma. Einnig var framkvæmd einfruma RNA og próteingreining sem sýndi fram á að tjáning 16 gena er nauðsynleg til að stuðla að sjálfsend- urnýjun þeirra. Ennfremur, tjáning þessara gena er hömluð í návist MafB. Þessar niðurstöður eru mikil- vægar þar sem ekki hefur verið áður sýnt fram á hvernig sérhæfðar frum- ur geta stundað sjálfsendurnýjun með sameinda- og frumufræðilegum aðferðum. Laufey Geirsdóttir Laufey Geirsdóttir er fædd 1983. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund árið 2004 og BSc-prófi í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands árið 2008. Þremur árum síðar, árið 2011, lauk Laufey MSc-prófi frá Læknadeild Há- skóla Íslands með fyrstu einkunn og innritaðist sama ár í doktorsnám við Centre d’Immunologie de Marseille-Luminy (CIML) við Université Aix-Marseille í Frakk- landi. Laufey skipulagði IGSIC-ráðstefnu sem haldin var í Marseille árið 2013, þar sem doktorsnemar komu frá alls um 18 löndum víðsvegar um heim. Doktor Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Frá morgni líkama og sál fyrir alla fjölskylduna í þínu hverfi t i l kvölds Sími: 411 5000 • www.itr.is Fyrir líkama Laugarnar í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.