Morgunblaðið - 29.01.2016, Page 1

Morgunblaðið - 29.01.2016, Page 1
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2016 ÍÞRÓTTIR Hallveig Jónsdóttir Leikmaður umferðarinnar er tvítug Valskona . Góður liðsfélagi með skemmtilegan orðaforða. Frábær í vörninni og góð skytta. Samherji spáir henni landsliðssæti á ný innan tíðar. 4 Íþróttir mbl.is Valur og Fjölnir tryggðu sér í gær- kvöld sæti í undanúrslitum Reykja- víkurmóts karla í knattspyrnu. Val- ur lagði Þrótt, 2:0, og vann B-riðil með fullu húsi stiga og Fjölnir náði öðru sætinu með 2:2 jafntefli í hreinum úrslitaleik um það við Fram. Báðir leikir fóru fram í Eg- ilshöllinni. Leiknir er kominn áfram úr A- riðli en það skýrist í kvöld í loka- leikjum riðilsins hvort það verður Fylkir, Víkingur eða KR sem nær fjórða og síðasta undanúrslitasæt- inu. vs@mbl.is Valur og Fjölnir áfram HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Það hefur verið beðið eftir því árum saman að norska karlalandsliðið kæmist í fremstu röð á stórmóti. Loksins er það að takast,“ sagði Ak- ureyringurinn Axel Stefánsson sem árum saman hefur búið í Noregi og síðustu ár unnið hjá norska handknattleikssambandinu m.a. við þjálfun yngri landsliða kvenna og nú upp á síðkastið verið þjálf- ari B-landsliðs kvenna. „Liðið hefur komið á óvart og stemningin er mjög mikil meðal Norðmanna. Það er gaman þeg- ar ný lið koma fram á sjónarsviðið á stórmóti,“ sagði Axel. Norska karlalandsliðið leikur í fyrsta sinn í dag í undanúrslitum á Evróumeistaramóti karla í handknattleik þegar það mætir Þýskalandi. Axel segir að þrátt fyrir markvissan undirbúning árum saman hafi árangurinn komið fólki á óvart. Marg- ir hafi verið orðnir vanir því að karlalandsliðið væri „næstum því lið“ þar sem herslumuninn vantaði upp á. „Norska landsliðið hefur oft haft ákveðinn grunn til þess að ná langt á stórmótum, m.a. verið góðan markverði og leikið fínan varn- arleik. Sóknarleikurinn hefur hinsvegar verið á tíðum slakur svo ekki sé minnst á hraðaupp- hlaupin. Christian Berge landsliðsþjálfari hefur gjörbreytt sóknarleiknum til batnaðar sem orðið hefur til þess að norska landsliðið hefur skorað mjög mörg mörk í keppninni eftir hraðaupphlaup. Þá er uppstilltur sóknarleikur mikið beittari en áður,“ segir Axel og bætir við. „Það er svolítið ís- lenskur bragur á leik Norðmanna, góður varn- arleikur, vel útfærð hraðaupphlaup og skemmti- legur uppstilltur sóknarleikur,“ segir Axel. Geisla af sjálfstrausti „Norska landsliðið hefur geislað af sjálfs- trausti, haldið skipulagi auk þess sem þjálfararnir hafa stjórnað liðinu mjög vel, dreift álaginu á milli leikmanna sem er lykilatriði í löngu og ströngu móti,“ sagði Axel og bendir á að þegar litið er á leik norska liðsins þá virðist verkaskipting leik- manna vera skýr. „Það hefur ekki gripið um sig örvænting meðal leikmanna þótt erfið staða hafi komið upp í leikjum. Góð liðsheild hefur skapast þar sem margir leikmenn hafa stigið fram í sviðs- ljósið og óhræddir tekið við stærri hlutverkum eins og til dæmis átti sér stað þegar Bjarte Myr- hol meiddist og tók ekki þátt í leikjum á eftir. Þá tóku aðrir hlutverk hans og leystu vel. Sama má segja um hornamennina, Magnus Jöndal og Kristian Björnsen. Magnus leikur í norsku deild- inni og Kristian í Svíþjóð. Lengi hefur verið beðið eftir að Espen Lie Hansen spryngi út. Hann hef- ur blómstrað í keppninni og sömu sögu má segja um Kent Robin Tönnesen sem leikur hjá Erlingi Richardssyni í Füchse Berlin,“ sagði Axel. Norska landsliðið mætir lærisveinum Dags Sigurðssonar í þýska landsliðinu í undanúrslitum í dag. Axel segist vera mátulega bjartsýnn. Þýska landsliðið væri e.t.v. það versta af þeim þremur sem eru í undanúrslitum ásamt Noregi til þess að mæta. „Þjóðverjarnir, sem eru í svipaðri upp- sveiflu og Norðmenn, hafa á að skipa einum kló- kasta þjálfaranum í keppninni. Það verður spenn- andi sjá hvernig leikurinn þróast.“ Eftir EM fyrir tveimur árum þega norska landsliðið komst ekki upp úr riðlakeppninni hætti Svíinn Robert Hedin sem landsliðsþjálfari. Við starfinu tók Christian Berge, fyrrverandi lands- liðsmaður Norðmanna sem lengi lék í Þýskalandi. Berge fékk Glenn Solberg, gamlan landsliðs- mann, með sér í þjálfarateymið auk Zeljko Tomac og Kent Harry Andersson, en tveir þeir síð- arnefndu voru einnig í þjálfarateymi forvera Berge. Einnig kom Ole Martin Viken, fyrrverandi styrktarþjálfari hjá Kiel í Þýskalandi, inn í hóp- inn. „Eftir að Berge og Solberg tóku við hafa þeir tekið inn í sína vinnu margt af því sem gert hefur verið með kvennalandsliðið árum saman og gefist vel. Meðal annars hafa þeir komið á reglubundn- um morgunæfingum með yngri leikmönnum eins og gert hefur verið með kvennalandsliðið árum saman. Ef menn ætla sér að komast í A-landsliðið þá verða þeir að æfa miklu meira en þeir gera með félagsliðum sínum hér í Noregi.“ Klókur að velja fólk með sér Solberg hafði ekki þjálfað áður en hann fór að vinna við hlið Berge sem hafði gert það gott með Elverum áður en hann tók við landsliðinu. „Þeir eru báðir hörkugóðir þjálfarar. Berge er sér- staklega öflugur sóknarþjálfari,“ sagði Axel sem vann með Berge hjá karlaliði Elverum um nokk- urra ára skeið. „Hann er með klókari sóknarþjálf- urum sem ég hef kynnst. Annar styrkur Berge er að hann á auðvelt með að velja til samstarfs gott fólk sem er öflugt á þeim sviðum þar sem veik- leikar hans liggja,“ sagði Axel. Að markvörðunum tveimur og Erlend Mamel- und undanskildum eru leikmenn norska landsliðs- ins á EM á aldrinum frá 20 og upp í 27 ára. Þrír leikmenn, Petter Överby, André Lindboe og fyrr- nefndur Jöndal leika með norskum félagsliðum. Aðrir leika í Danmörku, Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi og í Austurríki. „Norðmenn hafa ver- ið frekar heimakærir og í gegnum tíðina hafa ekki margir leikið utan landsteinanna fyrr en á allra síðustu árum. Eins og heima á Íslandi er mik- ilvægt fyrir þá er vilja styrkjast og verða betri að fara út til Evrópu í betri lið þar sem meira er æft og meiri kröfur eru gerðar.“ Færri drengir æfa handbolta Á síðustu árum hefur ungum piltum sem æfa handknattleik fækkað frá því sem áður var vegna aukinnar samkeppni og meira framboðs á íþrótta- greinum. Axel segir að á sama tíma hafi norska handknattleikssambandið hafa lagt meiri metnað í þjálfun yngri landsliða sinna með betri þjálf- urum þannig að vandað væri meiri til þeirra sem skara fram úr. „Sandor Sagosen kom ungur fram á sjónarsviðið sem mikið efni. Þá var fljótlega tekin ákvörðun um að byggja liðið upp í kringum Sagosen,“ sagði Axel. Kvennaliðið er mjólkurkýrin Norska kvennalandsliðið hefur lengi verið með- al þeirra allra bestu og er um þessar mundir Evr- ópu-, heims-, og Ólympíumeistari. Karlalandsliðið hefur óneitanlega staðið í skugganum þar sem ár- angur þess hefur ekki verið nærri því sambæri- legur. Tekjur norska handknattleikssambandsins hafa orðið til í kringum kvennaliðið enda var lengi vel mun meira fé varið til þess en karlaliðsins. Ax- el segir að ákveðið hafi verið fyrir fjórum árum að rétta við hlutföllin og freista þess að koma karla- liðinu skrefi framar. Það sé nú að skila sér. Takist karlaliðinu að halda sínu striki á næstu mótum sé ljóst að auknar tekjur komi inn til sambandsins í gegnum það. Þar af leiðir að áragnur skipti nú miklu mál,“ segir Axel Stefánsson, þjálfari norska B-landsliðs kvenna í handknattleik. Íslenskur bragur á liðinu  Mikill handboltaáhugi hefur vaknað meðal Norðmanna undanfarna daga  Berge og Solberg hafa byggt upp góða liðsheild  Þýskaland er versti mótherjinn AFP Himinlifandi Kristian Björnsen, Kent Robin Tönnesen og Ole Erevik fögnuðu vel og innilega eftir að þeir höfðu lagt hið öfluga lið Frakka að velli á sannfærandi hátt. Noregur og Þýskaland mætast í dag.  Bergur Ingi Pétursson setti glæsi- legt Íslandsmet í sleggjukasti árið 2008, sem enn stendur. Kastaði hann 74,48 m í Hafnarfirði í maí.  Bergur er fæddur 1985 og keppir fyrir FH. Bergur bætti eigið met í Hafnarfirði en hann hafði áður sett Ís- landsmet í Split í mars 2008. Góður árangur hans fyrri hluta ársins tryggði honum keppnisrétt á Ólympíu- leikunum í Peking 2008 og varð hann þá fyrsti Íslendingurinn til að keppa í sleggjukasti á Ólympíuleikum. Bergur keppti einnig á HM í Berlín árið eftir. Bergur er margfaldur Íslandsmeistari í greininni og setti einnig fjölmörg Ís- landsmet í yngri flokkum. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS Alfreð Gíslason, þjálfari þýska meistaraliðsins Kiel, neitar að fé- lagið hafi gert tilboð í Aron Pálmarsson, leik- mann ungverska meistaraliðsins Veszprém, en frá því var m.a. greint í Morgun- blaðinu gær. „Við höfum ekki gert tilboð í Aron,“ sagði Alfreð í sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Auk þess lýsti Aron því yfir fyrir skömmu að sér líkaði vel hjá Veszp- rém og ætlað að standa við sinn samning,“ sagði Alfreð og bætti við að frétt Morgunblaðsins væri úr lausu lofti gripin. Að gefnu tilefni þá stendur Morg- unblaðið við frétt sína um að Kiel hafi gert Veszprém tilboð í Aron enda telur blaðið heimildir sínar, sem eru úr fleiri en einni átt, vera traustar þótt Alfreð hafi kosið að gera lítið úr þeim í samtölum við Morgunblaðið og fleiri fjölmiðla í gær. iben@mbl.is Alfreð neitar fregnum af Aroni Alfreð Gíslason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.