Morgunblaðið - 29.01.2016, Side 3

Morgunblaðið - 29.01.2016, Side 3
adminton Sara Högnadóttir fór beint í 32ja manna úrslit. Morgunblaðið/Kristinn ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2016 MichaelBiegler, landsliðsþjálfari Pólverja í hand- knattleik karla, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta var tilkynnt á blaðamannfundi pólska hand- knattleikssambandsins í gær. Pólska landsliðið steinlá fyrir Króötum á heimavelli í fyrrakvöld, 37:23, og leikur um sjöunda sætið við Svía í dag. Úrslit leiksins voru algjört kjaftshögg fyrir gestgjafa EM, Pól- verja, en þeir höfðu gert sér góðar vonir um að leika um verðlaun á mótinu eftir að hafa krækt í brons- verðlaun á HM fyrir ári. Óvíst er hvað tekur við hjá Biegler sem missti hitt starf sitt á dögunum þeg- ar HSV Hamburg varð gjaldþrota. Biegler var þjálfari liðsins.    Makedóníumaðurinn Kiril Laz-arov, samherji Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Barcelona, er markahæstur á Evrópumótinu í handknattleik með 42 mörk. Laz- arov hefur hins vegar lokið keppni með Makedóníu á mótinu og mögu- leikar hans á að verða markakóngur mótsins eru litlir sem engir en hann hefur eins marks forystu á Spán- verjann Valero Rivera sem hefur gert 41 mark. Barys Pukhouski skoraði 37 mörk fyrir Hvít-Rússa en þeir hafa lokið keppni.    Serbinn NovakDjokovic er kominn í úrslit á opna ástralska meistaramótinu í tennis í sjötta sinn. Djokovic hafði betur gegn Svisslendingnum Roger Federer í undanúrslitum, 6:1, 6:2, 3:6 og 6:3. Djokovic á titil að verja en hann hef- ur fimm sinnum fagnað sigri á mótinu og hann stefnir að því að vinna sinn 11. risamót á ferlinum. Andstæðingur Serbans í úrslita- leiknum verður annaðhvort Kanda- maðurinn Milos Raonic eða Bretinn Andy Murray en þeir eigast við í dag.    Enskir fjölmiðlar greina frá þvíað Liverpool sé með Gary Ca- hill miðvörð Chelsea og enska lands- liðsins í sigtinu. Cahill er sagður óhress með stöðu sína hjá Chelsea en fækkað hefur mjög spiltímum hans með liðinu eftir að Guus Hidd- ink tók við liðinu. Cahill gerði nýjan fjögurra ára samning við Lund- únaliðið í desember en hefur aðeins byrjað inni á í tveimur leikjum eftir að Hiddink tók við stjórastarfinu af José Mourinho. John Terry og Kurt Zouma hafa haldið Cahill fyrir utan liðið.    Steinar Þorsteinsson skoraðiþrennu þegar ÍA burstaði Stjörnuna 6:1 í Fótbolta.net-mótinu. Fólk folk@mbl.is Ásgarður, Garðabæ, úrvalsdeild karla, Dominos-deildin, fimmtudaginn 28. janúar 2016. Gangur leiksins: 3:4, 11:6, 13:11, 20:13, 25:16, 28:25, 37:25, 42:29, 44:38, 51:41, 57:45, 60:52, 69:54, 77:55, 81:58, 91:70, 100:80. Stjarnan: Al’lonzo Coleman 22, Justin Shouse 21, Tómas Þórður Hilmarsson 16, Sæmundur Valdimarsson 13, Tómas Heiðar Tómarsson 13, Marvin Valdimarsson 8, Arnþór Freyr Guð- mundsson 5, Magnús Bjarki Guð- mundsson 2 ÍR: Jonathan Mitchell 35, Sveinbjörn Claessen 11, Hákon Örn Hjálmarsson 8, Eyjólfur Ásberg Halldórsson 7, Daði Berg Grétarsson 6, Björgvin Haf- þór Ríkharðsson 4, Vilhjálmur Theó- dór Jónsson 4, Sæþór Elmar Krist- jánsson 3, Kristján Pétur Andrésson 2  Vegna tölvubilunar í Ásgarði var ekki ítarlegri tölfræði fyrir hendi í gær- kvöld. Stjarnan – ÍR 100:80 Snæfell er komið af alvöru í slaginn um sæti sex til átta í úrvalsdeild karla í körfuknattleik eftir geysilega mik- ilvægan sigur á Grindavík, 110:105, í tvíframlengdum leik í Stykkishólmi í gærkvöld. Snæfellsliðið, sem virtist lengi vel í vetur ekki líklegt til að gera meira en að hanga í deildinni, hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum. Sherrod Wright átti enn einn stórleikinn og skoraði nú 49 stig, tók 16 fráköst og átti 5 stoðsendingar. Charles Garcia skoraði 30 stig fyrir Grindavík og tryggði liðinu fyrri framlenginguna þegar hann jafnaði fjórum sekúndum fyrir leikslok, 87:87. Grindavík jafnaði aftur undir lok framlengingar, 97:97. Wright skoraði fimm síðustu stig Snæfells af vítalínunni og tryggði sig- urinn. Þór burstaði FSu, 94:58, í Suðurlandsslagnum í Þorlákshöfn þar sem Vance Hall skoraði 33 stig. Þór er í góðum málum í efri hlutanum en Sel- fyssingarnir eru komnir í erfiða stöðu í botnbaráttunni. vs@mbl.is Wright magnaður í Hólminum Iceland Glacial-höllin, Þorlákshöfn, Dominos-deild karla, fimmtudaginn 28. janúar 2016. Gangur leiksins: 6:2, 10:6, 17:8, 17:14, 23:18, 28:24, 39:26, 43:32, 47:35, 51:38, 59:40, 70:42, 74:51, 84:53, 90:56, 94:58. Þór Þ.: Vance Hall 33/9 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 15/5 fráköst, Þor- steinn Már Ragnarsson 12/4 fráköst, Ragnar Nathanaelsson 12/16 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 6/5 fráköst, Emil Karel Einarsson 5/6 fráköst, Ragnar Örn Bragason 4/5 fráköst, Halldór G. Hermannsson 4, Magnús B. Þórðarson 2, Baldur Þór Ragnarsson 1. Fráköst: 37 í vörn, 16 í sókn. FSu: Christopher Woods 25/14 frá- köst, Hlynur Hreinsson 11/5 stoðsend- ingar, Bjarni Geir Gunnarsson 10, Gunnar Ingi Harðarson 5/6 fráköst, Arnþór Tryggvason 4/8 fráköst, Þór- arinn Friðriksson 3/5 fráköst. Fráköst: 20 í vörn, 17 í sókn. Þór Þ. – FSu 94:58 Það verða Serena Williams frá Bandaríkjunum og hinn þýska Angelique Kerber sem leika til úrslita á opna ástralska meistaramótinu í tennis í Mel- bourne á morgun. Takist Williams að vinna jafnar hún met Steffi Graf en sú þýska vann 22 risamót á löngum og glæsilegum ferli sínum. Í undanúrslitunum átti Williams ekki í vand- ræðum með að leggja hina pólsku Agnieszku Radwanska að velli en Williams vann nokkuð auð- veldlega í tveimur settum, 6:0 og 6:4. Hún á þar með möguleika á að vinna ástralska meistara- mótið í sjöunda sinn en í 25. sinn er hún komin í úrslit á einu af risamótunum fjórum. Serena vann mótið í sjötta sinn í fyrra en sigraði áður árin 2003, 2005, 2007, 2009 og 2010. Kerber bar sigurorð af Johannu Konta frá Bretlandi í tveimur sett- um, 7:5 og 6:4, en leikur þeirra var nokkuð jafn og spennandi. Sjöundi sigur Serenu? Serena Williams Sú staða gæti komið upp í Svíþjóð í kvöld að fyr- irliði íslenska landsliðsins, Hlynur Bæringsson, þyrfti að fylgjast með samherjum sínum af áhorf- endapöllunum vegna ógreiddra reikninga Sunds- vall-félagsins sem Hlynur spilar með. Í gær barst sú frétt að Hlynur og aðrir erlendir leikmenn liðsins yrðu í banni í deildarleik liðsins á morgun vegna þess að ekki hafi verið greiddir reikningar til sænska körfuboltasambandsins. Snúa þeir meðal annars að dómarakostnaði eftir því sem Morgunblaðið kemst næst. Mbl.is náði tali af Hlyni í gærkvöldi sem stað- festi þessi tíðindi. „Ég var bara á leiðinni á æfingu í dag þegar Af- tonbladet hringdi í mig og tilkynnti mér að ég mætti ekki spila á morg- un,“ sagði Hlynur meðal annars en nánar er rætt við hann á mbl.is/korfubolti. kris@mbl.is „Ekki skemmtileg staða“ Hlynur Bæringsson Í ÁSGARÐI Kristinn Friðriksson kiddigeirf@gmail.com Stjarnan hefur ekki riðið feitri meri reglulega þetta tímabil í Domino’s- deild karla í körfubolta. Þrátt fyrir það var liðið í 3ja sæti deildarinnar fyrir leik gærkveldsins gegn ÍR. Vandamál heimamanna hefur verið stöðugleiki og því var leikurinn í gær gríðarlega mik- ilvægur fyrir liðið til að sýna á hvaða leið það er. Stjörnumenn virðast hafa haft einmitt þetta að leiðarljósi í gær því leikmenn mættu til leiks eins og sannir atvinnumenn í íþróttinni og pökkuðu lánlausum ÍR-ingum saman, 100:80. Stjarnan náði valdi á leiknum strax í upphafi hans með frábærri vörn. Sókn- arleikurinn var ekki sá besti en yfir- drifið nægilega sterkur til þess að vinna bug á því sem varnarleikur ÍR bauð upp á. Á milli þess sem heima- menn spiluðu glimrandi bolta í fyrri hálfleiknum gerðu þeir sig hinsvegar seka um töluvert kæruleysi, sem varð til þess að ÍR hékk í pilsfaldi heima- manna mun lengur en Hrafn Krist- jánsson, þjálfari heimamanna, hefur óskað. Mín tilfinning í þessum fyrri hálfleik var sú að Stjörnumenn lékju blettatígurinn sem hafði Thomsons- gaselluna yfirbugaða en leyfði henni á stundum að standa upp og hlaupa, svona til þess að æfa sig aðeins. Náð- arhögg heimamanna kom svo sviplega í þriðja hlutanum, og virtist koma vegna þeirrar vitneskju að nóg væri komið af leikaraskap, slíkir voru yfirburðirnir. Sóló hjá Mitchell og skelfilegur varnarleikur ÍR, sem er enn vel inni í barátt- unnium 8. sætið mátti alveg tapa þess- um leik; enginn bjóst við sigri þeirra, og af spilamennsku liðsins að dæma, síst af öllu leikmenn sjálfir. Ég hefði hinsvegar viljað sjá þá mun beittari. Sóknarleikur liðsins var sólóleikur með Jonathan Mitchell fremstan í flokki og varnarleikurinn skelfilegur á köflum. Það er ekki hægt að sakast við liðið, sem er einfaldlega nokkrum númerum minna en Stjarnan. Liðsheildin þarf að gera betur í næstu leikjum ef 8. sætið á að vera raunhæft en þessi leikur er í raun bara hlutlaus í þeim viðskiptum. Þrátt fyrir vandamál Stjörnunnar í vetur er liðið klárlega á góðri leið að skapa sér þann stöðugleika sem þarf til þess að keppa við bestu liðin; varn- arleikurinn var frábær, eins og svo oft áður og þó að sóknin hafi ekki verið eins og beitt og leikmenn hafi viljað þá var frammistaðan í gær skref í rétta átt. Liðsheild heimamanna virtist alltaf meðvituð um stöðuna á vellinum; vissi alltaf hvenær þurfti að gefa í og hve- nær mátti slaka á. Þetta bendir mér á að mjög jákvæð þróun er að eiga sér stað í Garðabænum. Tómas Hilm- arsson, Tómas Tómasson og Sæmund- ur Valdimarsson voru allir mjög góðir á meðan bestu menn vallarins, Justin Shouse og Al’lonzo Coleman leiddu vagninn. Þarna fór liðsheildin sem Hrafn þjálfari vill sjá. Stjörnumenn á réttri leið Morgunblaðið/Styrmir Kári Bakverðir Sveinbjörn Claessen úr ÍR reynir að stöðva Stjörnumanninn Tómas Heiðar Tómasson í Ásgarði.  Léku eins og sannir atvinnumenn gegn ÍR  Stöðugleikinn virðist vera að koma Sherrod Wright

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.