Morgunblaðið - 29.01.2016, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2016
Undirritaður sat áhuga-
verða ráðstefnu um afreks-
íþróttir í húsakynnum HR í að-
draganda Reykjavíkurleikanna.
Þar kom ýmislegt merkilegt fram
enda frambærilegir fyrirlesarar,
innlendir sem erlendir, og góður
erlendur gestur, Dwain Cham-
bers, fyrrverandi heims- og Evr-
ópumeistari.
Fimleika- og sjúkraþjálfarinn
Hlín Bjarnadóttir hélt þar erindi
um fimleikaþjálfun. Var þar lagt
út af því hversu góður grunnur
fyrir íþróttir getur falist í því að
æfa fimleika á unga aldri. Ég
hafði svo sem gert mér grein fyr-
ir þessu enda er alhliða styrkur
og liðleiki býsna gott veganesti
fyrir afreksíþróttafólk.
Þegar Hlín fór hins vegar að
telja upp ýmsar nafntogaðar ís-
lenskar íþróttakonur, sem gert
hafa það verulega gott í öðrum
íþróttagreinum en byrjað í fim-
leikum, þá varð sú upptalning
lengri og fjölbreyttari en ég hafði
ímyndað mér.
Hlín nefndi Þóreyju Eddu El-
ísdóttur, sem náði 5. sæti á Ól-
ympíuleikum, og Rögnu Ingólfs-
dóttur, fyrstu íslensku konuna
sem vinnur leik í badminton á Ól-
ympíuleikum. Úr boltagreinunum
nefndi hún Skúladæturnar úr
handboltanum en Hrafnhildur
var í landsliði Íslands sem vann
sig inn á stórmót í handbolta í
fyrsta skipti. Greta Mjöll Sam-
úelsdóttir var í landsliði Íslands
sem vann sig inn á stórmót í fót-
bolta í fyrsta skipti. Þá er ótalin
Fanney Hauksdóttir sem er
heimsmeistari og heimsmethafi
unglinga í kraftlyftingum. Þá
kom fram hjá Hlín að krossfit-
drottningarnar Annie Mist Þór-
isdóttir og Katrín Tanja Davíðs-
dóttir byrjuðu einnig í fimleikum.
Ég náði því ekki hvort Hlín
hefði sjálf þjálfað þær allar eða
hversu lengi þær hefðu verið í
fimleikum en þetta er óneit-
anlega afar glæsilegur hópur.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
18. UMFERÐ
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Hin 20 ára gamla Hallveig Jóns-
dóttir átti mjög góðan leik fyrir Val
þegar liðið hrósaði sigri á móti
Hamri í 18. umferð Dominos-
deildar kvenna í körfuknattleik.
Hallveig, sem spilar í stöðu bak-
varðar og er 1,80 metrar á hæð,
skoraði 18 stig í leiknum og lét vel
til sín taka í vörninni. Þá hitti hún
vel úr þriggja stiga skotum í leikn-
um.
Morgunblaðið setti sig í samband
við Guðbjörgu Sverrisdóttur, liðs-
félaga Hallveigar, og fékk hana til
að lýsa henni sem leikmanni en
Hallveig er leikmaður 18. umferðar-
innar hjá blaðinu.
,,Hallveig átti mjög góðan leik á
móti Hamri og hún hefur verið
mjög stöðug í leik sínum á tíma-
bilinu. Ef hún er ekki að skora ein-
hver 20 stig þá skilar hún frábær-
um varnarleik. Hennar helsti
styrkur er varnarleikurinn en hún
virðist vera með endalausa langa
útlimi. Hún sér um að gæta litlu
Kananna sem mæta okkur og þar
hefur hún sýnt hversu góður varn-
armaður hún er.
Hallveig er líka dugleg að skora
fyrir okkur. Hún er góður skotmað-
ur og er bara þannig leikmaður að
þú vilt frekar hafa hann með þér í
liði heldur en í liði mótherjanna.
Hún er fljót og fellur vel inn í okkar
lið,“ sagði Guðbjörg.
Fagnað þegar hún kom aftur
Hallveig byrjaði körfuboltafer-
ilinn 9 ára gömul með Breiðabliki
en gekk í raðir Vals árið 2012. Hún
lék þrjú tímabil með Valsliðinu áður
en hún fór til Keflavíkur þar sem
hún spilaði á síðustu leiktíð en hún
sneri aftur heim á Hlíðarenda fyrir
tímabilið. Hún hefur skorað 11,8
stig að meðtali í leik í deildinni á
tímabilinu og tekið 2,3 fráköst.
Hallveig hefur leikið með flestum
yngri landsliðunum og þá á hún
þrjá leiki að baki með A-landsliðinu.
,,Við erum fjórar í liðinu sem
höldum mjög góðu sambandi og það
var eins og vantaði part af okkur
þegar Hallveig fór til Keflavíkur.
Við fögnuðum því mjög þegar hún
ákvað að koma aftur. Hún hefur
alla burði til að bæta sig sem leik-
maður og ég spái því að hún vinni
sér aftur sæti í landsliðinu áður en
langt um líður. Ég held að hún hafi
spilað síðast með því árið 2013,“
segir Guðbjörg og það er hárrétt.
,,Hallveig er toppstelpa. Við er-
um í sama skóla og eitt af hennar
einkennum eru frasarnir. Hún er
með ofboðslega skemmtilegan orða-
forða og er mjög orðheppin,
skemmtileg manneskja og góður
liðsfélagi,“ sagði Guðbjörg Sverr-
isdóttir.
„Vilt frekar hafa hana
með þér í liði en á móti“
Hallveig Jónsdóttir úr Val er góður liðsfélagi með skemmtilegan orðaforða
Helsti styrkur hennar er frábær varnarleikur, segir Guðbjörg Sverrisdóttir
Morgunblaðið/Golli
Tvítug Hallveig Jónsdóttir er komin með talsverða reynslu þrátt fyrir ungan aldur og hefur látið talsvert að sér
kveða með Valsliðinu í vetur. Hér reynir hún skot í leik gegn Haukum í Dominos-deildinni fyrir skömmu.
HANDBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar Gróttu komust í
gærkvöldi í toppsæti Olís-deildar
kvenna í handbolta þegar liðið náði í
tvö stig á Akureyri. Grótta vann KA/
Þór en aðeins voru skoruð 36 mörk í
leiknum því Grótta vann 21:15. KA/
Þór er eftir sem áður í 11. sæti deild-
arinnar.
Titilvörn getur stundum reynst
liðum erfið en fínn gangur hefur ver-
ið í leik Gróttu í vetur. Liðið hefur
aðeins tapað tveimur af fyrstu
sautján leikjunum og er líklegt til af-
reka þegar fer að vora.
Fram er í 5. sæti deildarinnar eft-
ir öruggan sigur á Fjölni í hinum
leik gærkvöldsins. Liðin mættust í
Safamýrinni og landaði Fram ellefu
marka sigri 34:23. Fjölnir er í 10.
sæti með 8 stig, stigi meira en KA/
Þór. Fjölnisliðið hefur líklega komið
mörgum á óvart í vetur með ágætri
frammistöðu en lið Fram var númeri
of stórt í þetta skiptið.
Línur voru komnar í hvort liðið
myndi hafa betur að loknum fyrri
hálfleik en það var staðan orðin
17:10 fyrir Fram.
Ásta Birna Gunnarsdóttir var
markahæst í liði Fram með 8 mörk
en stórskyttan Ragnheiður Júl-
íusdóttir kom næst með 7 mörk. Þá
skoruðu Hildur Þorgeirsdóttir og
Steinunn Björnsdóttir 4 mörk hvor
en alls komust tíu leikmenn Fram á
blað í markaskorun.
Línumaðurinn reyndi Elísabet
Gunnarsdóttir lék ekki með Fram í
gærkvöldi og verður ekki meira með
liðinu á tímabilinu. Fram kemur á
netmiðlinum Fimmeinn.is að hún sé
ekki kona einsömul.
Örvhenta skyttan Díana Kristín
Sigmarsdóttir var atkvæðamest hjá
Fjölni eins og svo oft áður en hún
skoraði 7 mörk. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær þá hafnaði
Díana því að ganga til liðs við norska
liðið Molde á dögunum og stendur
enn til boða að spila með norska lið-
inu á næsta keppnistímabili. Berg-
lind Benediktsdóttir skoraði næst-
mest fyrir Fjölni eða 6 mörk.
Morgunblaðið/Golli
Markahæst Ásta Birna Gunnarsdóttir skorar eitt átta marka sinna fyrir Fram í gærkvöldi.
Sá fjórtándi
hjá Gróttu
Úrslit gærkvöldsins eftir bókinni
Körfubolti kvenna: Leikmaður umferðarinnar