Fréttablaðið - 03.01.2017, Síða 8
- Vanræktu ekki viðhaldið -
Allt til kerrusmíða
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða?
Iðnaðarmann
Bílstjóra
Bifvélavirkja
Þjónustufólk
Öryggisvörð
Lagerstarfsmann
Matreiðslumann
Tyrkland Daish-samtökin, sem
nefna sig Íslamskt ríki, hafa sent frá
sér yfirlýsingu þar sem þau segjast
bera ábyrgð á skotárásinni í nætur-
klúbbi í Istanbúl á nýársnótt.
Í yfirlýsingunni kemur þó ekki
fram hvort árásarmaðurinn hafi
verið sendur út af örkinni til að
drepa fólk eða tekið það upp hjá
sjálfum sér.
Hann myrti að minnsta kosti 39
manns og særði 69. Hinir látnu voru
af tólf þjóðernum, flestir frá Tyrk-
landi og Sádi-Arabíu en einn til þrír
frá Líbanon, Írak, Túnis, Indlandi,
Marokkó, Jórdaníu, Kúveit, Kanada,
Ísrael, Sýrlandi og Rússlandi.
Átta manns voru handteknir í gær
í tengslum við árásina, en árásar-
maðurinn var ekki þar á meðal.
Honum tókst að sleppa og gekk
enn laus í gær.
Síðustu tvö ár hafa hryðjuverk
og árásir af ýmsu tagi verið tíðar
í Tyrklandi. Ýmist eru það Daish-
samtökin eða herskáir Kúrdar
sem hafa lýst yfir ábyrgð eða eru
grunuð um ofbeldisverk þessi.
Þessar árásir hafa kostað hátt í
fimm hundruð manns lífið, en þar
eru þó ekki meðtaldir þeir sem
létu lífið í átökunum sem brutust
út eftir að hluti tyrkneska hersins
gerði misheppnaða tilraun til að
ræna völdum í landinu þann 15. júlí
á nýliðnu ári.
Þau átök kostuðu um 240 manns
lífið auk þess sem meira en 1.400
særðust.
Erdogan forseti segist sannfærður
um að Gülen-hreyfingin hafi staðið
á bak við þessa misheppnuðu
valdaránstilraun, enda þótt leið-
togi hennar, klerkurinn Fetullah
Gülen, sem býr í sjálfskipaðri útlegð
í Bandaríkjunum, þvertaki fyrir að
hafa átt nokkurn hlut að máli.
Í kjölfar valdaránstilraunarinnar
hóf Erdogan víðtækar hreinsanir í
flestum helstu valda- og áhrifastofn-
unum landsins. Tugir þúsunda her-
manna, lögreglumanna, dómara,
kennara og blaðamanna voru hand-
teknir og alls voru meira en hundr-
að þúsund manns teknir höndum.
Erdogan forseti hefur jafnframt
notað tímann til þess að undirbúa
breytingar á stjórnskipan landsins,
sem meðal annars eiga að tryggja
honum sjálfum stóraukin völd.
Drög að nýrri stjórnarskrá voru
samþykkt í þingnefnd rétt fyrir
áramótin, en óljóst
er hvort þau verða
borin undir þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Ólgan í Tyrklandi
síðustu misseri hefur
b i t n a ð á f e r ð a -
þjónustunni þar í
landi. Færri ferða-
menn leggja þangað
leið sína en áður,
þótt stjórnvöld leggi
áherslu á að fólki sé
alveg óhætt að koma.
gudsteinn@365.is
Árásarmannsins leitað
og átta teknir höndum
Hátt í fimm hundruð manns hafa fallið í árásum í Tyrklandi undanfarin tvö ár.
Átta manns voru handteknir í gær í tengslum við skotárásina í næturklúbbi í
Istanbúl á nýársnótt. Ólgan í Tyrklandi er farin að bitna illa á ferðaþjónustunni.
Fjöldi manns mætti í útför 23 ára gamals manns, Junus Gormek, sem lét lífið í skotárásinni í næturklúbbi í Istanbúl á nýársnótt
ásamt 38 öðrum. NordIcphotos/AFp
Mannskæðustu árásirnar í Tyrklandi
n Látnir n Særðir
20. júlí
Suruc
32 100
Daish kennt um
10. okt.
Ankara
95 200
Daish undir
grun
2015
Þeir sem árásar-
maðurinn myrti í
Istanbúl voru af tólf þjóð-
ernum, flestir frá Tyrklandi
og Sádi-Arabíu.
1. jan
Istanbúl
39 69
Daish lýsir yfir
ábyrgð
2017
2016
12. janúar
Istanbúl
10 15
Daish kennt
um
17. feb.
Ankara
28 61
TAK lýsir yfir
ábyrgð
13. mars
Ankara
37 70
TAK lýsir yfir
ábyrgð
7. júní
Istanbúl
11 36
TAK lýsir yfir
ábyrgð
28. júní
Istanbúl
41 239
Enginn lýsti
yfir ábyrgð
18 ágúst
Elazig og Van
14 300
PKK kennt
um
21. ágúst
Gaziantep
50 94
PKK, samtökum
Kúrda, kennt um
6. okt.
Hakkari
16 27
PKK lýsir yfir
ábyrgð
10. des.
Istanbúl
29 160
TAK lýsir yfir
ábyrgð
3 . j a n ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð j U d a G U r8 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a Ð I Ð
0
3
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
D
7
-3
A
6
C
1
B
D
7
-3
9
3
0
1
B
D
7
-3
7
F
4
1
B
D
7
-3
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K